Flokkur

Erlent

Erlent

Angela Merkel manneskja ársins hjá TIME - lesendur völdu Bernie Sanders

Angela Merkel Þýska­lands­kanslari er manneskja ársins að mati tíma­ritsins TIME. „Þú getur verið sammála henni eða ekki, en hún er ekki að velja auðveldu leiðina. Á leiðtoga reynir aðeins þegar fólk vill ekki fylgja þeim. Fyrir að krefjast meira af þjóð sinni en flestir stjórn­málamenn myndu gera, fyrir að standa sterk gegn harðstjórn og hentug­leika, og fyrir að sýna staðfasta...
Erlent

Donald Trump vill banna öllum múslimum að koma til Banda­ríkjanna

Donald Trump, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Repúblíkana­flokksins, hefur kallað eftir því að landa­mærum Banda­ríkjanna verði að öllu leyti lokað fyrir múslimum. Þessi krafa Trump kemur í kjölfar árásanna í San Bernardino. The Guardian greinir frá. Trump hefur oft látið umdeild ummæli falla um ákveðna kynþætti og innflytj­endur síðan hann hóf sókn sína að því að hljóta útnefningu...
Erlent

Unga fólkið í dag þarf að takast á við loftslags­breytingar framtíðar

Ungt fólk í dag er fyrsta kynslóðin sem þarf að upplifa loftslags­breytingar og leysa úr vandanum, segir hinn 24 ára gamli Felix Antman Debels, einn sendi­fulltrúa frá Svíþjóð sem tekur þátt í loftslags­ráðstefnunni í París. Ungliðar á Norður­löndum héldu málþing um ungmenni á norðurslóðum og málefni upprunalegra íbúa á norðurslóðum í bás Norður­landaráðs í kvöld. Í sendi­nefndum Noregs, Svíþjóðar og...
Erlent

NY Times birtir leiðara á forsíðu: Stöðvið byssu­faraldurinn

Það er siðferð­is­legt hneyksli og þjóðar­skömm að Bandaríkja­menn geti með löglegum hætti keypt vopn sem eru hönnuð til þess að drepa fólk með miklum hraða og skilvirkni. Þessi vopn eru stríðs­vopn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í leiðara New York Times í dag, en leiðarinn, sem heitir The Gun Epidemic, eða Byssu­faraldurinn, birtist á forsíðu blaðsins. Þar er...
Erlent

Fyrstu spár benda til að Danir hafi sagt nei

Samkvæmt útgönguspá Danska sjón­varpsins sem birt var laust eftir klukkan átta, að dönskum tíma, og kjör­stöðum hafði verið lokað vilja Danir vera óbundnir af samningi Evrópu­sambandsins um samstarf í dóms-og lögreglu­málum og semja sérstak­lega um þessa mála­flokka við önnur ESB ríki. Samkvæmt útgönguspá Danska sjón­varpsins merktu 53.3% kjósenda við nei á kjör­seðlinum en 46.7% við já. Kjörsókn var meiri en...
Erlent

ESB hefur rannsókn á skatta­málum McDonald´s í Lúxemborg

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins (ESB) hefur staðfest að formleg rannsókn sé hafin á skatta­samningum milli Lúxemborg og alþjóð­lega skyndi­bit­ar­isans McDonald´s. Rann­sóknin snýr að því hvort samkomu­lagið sé svo hagstætt McDonald´s að í því felist ríkis­styrkur frá Lúxemborg. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skattamál McDonald´s í Lúxemborg eru til rann­sóknar. Fyrir tveimur árum rann­sökuðu frönsk yfirvöld þau og fyrr á þessu...

Mest lesið undanfarið ár