Flokkur

Erlent

Erlent

Nýju Tarantino-myndinni lekið á netið áður en hún er frumsýnd

Nýjasta stórmynd leik­stjórans Quentin Tarantino, The Hateful Eight, verður frumsýnd í kvikmynda­húsum í Banda­ríkjunum á morgun, föstudag. Þrátt fyrir það er þegar búið að leka myndinni í góðum gæðum á internetið og hægt er að horfa á hana eða niðurhala á flestum ólöglegum streymi- eða niðurhals­síðum netheima. Það er vert að velta fyrir sér hvernig það getur gerst að kvik­myndir...
Erlent

Donald Trump lygari ársins

Donald Trump er lygari ársins að mati bandarísku staðreynda­vaktarinnar Politifact, sem kannar stað­hæfingar stjórn­málamanna í Banda­ríkjunum, og hefur meðal annars hlotið Pulitzer verðlaun fyrir störf sín. Politifact velur venjulega eina ákveðna lygi, en í þetta skipti gat ritstjórnin ekki valið úr þeim fjölmörgu lygum sem Trump lét út úr sér á árinu, að sögn Arons Sharockman, framkvæmda­stjóra Politifact. "Hann hefur...
Erlent

Erum ekki sérfræðingar í gulli segir danska lögreglan

Frumvarp dönsku ríkis­stjórnarinnar um að heimilt verði að gera upptækar eigur flótta­fólks sem kemur til Danmerkur hefur vakið mikla athygli og einskorðast ekki við Danmörku og nágranna­löndin. Bandaríska dagblaðið Washington Post sagði ítarlega frá þessum fyrir­ætlunum dönsku stjórn­ar­innar og sagði þær vekja upp óhugnanlegar minningar frá síðari heims­styrjöld. Frum­varpið nýtur stuðnings meirihluta þingmanna. Sá hluti þess sem snýst um persónulegar...
Erlent

Barack Obama: Við erum öll innflytj­endur - Erum of fljót að gleyma

„Við erum öll innflytj­endur. Það er kjarninn í okkar,“ sagði Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, í ræðu sinni við athöfn, þar sem innflytj­endur í Banda­ríkjunum urðu formlega bandarískir ríkis­borgarar, samtals frá 25 löndum. Obama gerði innflytj­endamál, og vanda flótta­manna frá stríðs­hrjáðum svæðum í Sýrlandi, Írak og Afganistan, sérstak­lega að umtals­efni. Sagði hann Banda­ríkin vera innflytjenda­land, og að það væri byggt af...
Erlent

Rússar segja minnis­kortið í svarta kassanum skemmt - Öllum steinum verður samt velt við

Minnis­kortið í hinum svonefnda svarta kassa, sem geymir upplýsingar um samskipti flugmanna og aðgerðir í flug­stjórnar­klefa, sem kemur úr rússneskum herþotunni sem skotin var niður við landamæri Tyrklands og Sýrlands, er skemmt og óvíst hvort upplýsingar úr kassanum muni nýtast við rannsókn málsins. Þetta kemur fram á vef breska ríkis­útvarpsins BBC. Rússar hafa sagt að Tyrkir hafi í órétti skotið...
Erlent

10 mikil­vægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Vefsíða Business Insider tekur daglega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati. Málþóf eða ekki málþóf á Alþingi Íslendinga kemst ekki á blað að þessu sinni, en það gerir ýmislegt annað áhugavert. Donald Trump finnst það mikill heiður að Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti hafi lýst yfir aðdáun á hæfi­leikum Trump.Stór­fyrirtækið Apple...
Erlent

Repúblikanar hóta að rífa Parísar-samkomu­lagið í tætlur

Leiðtogi repúblikana í fulltrúa­deild Banda­ríkjaþing,Mitch McConnell, segir að loftlags­samningur Sameinuðu þjóðanna verði rifinn í tætlur eftir rúmt ár, ef flokkur hans vinnur sigur í forseta­kosningunum sem fara fram í nóvember á næsta ári. McConnell segir að áður en alþjóð­legir félagar Barack Obama, forseta Banda­ríkjanna, taki tappann úr kampavíns­flöskunni ættu þeir að muna að samningurinn byggi á markmiðum sem ekki sé...
Erlent

Le Pen og félagar biðu ósigur í Frakk­landi en „hættan af hægri öfgum er ekki farin neitt“

Marine Le Pen og félagar hennar í hægri öfga­flokknum National Front, eða Þjóð­fylkingunni, náðu ekki völdum í neinu héraði Frakk­lands, samkvæmt útgönguspá. Í dag fór fram seinni umferðin í sveitar­stjórnar­kosningum í landinu. Útgöngu­spáin bendir til þess að Þjóð­fylkingin hafi orðið þriðji stærsti flokkurinn í seinni umferðinni. Flokkurinn fékk flest atkvæði í sex af þrettán héröðum í fyrri umferðinni fyrir viku...
Erlent

Sögulegt samkomulag samþykkt með dynjandi lófa­klappi í París

Samkomulag nærri 200 ríkja um lofts­lagsmál er í höfn. Það var samþykkt rétt fyrir klukkan 18:30 að íslenskum tíma, í lok tveggja vikna ráðstefnu í París. Samkomu­lagið er sögulegt og er í fyrsta sinn sem ríki um allan heim koma sér saman um minnkun gróðurhúsa­lofttegunda og reyna þannig að komast hjá verstu afleiðingum loftslags­breytinga á heiminn. https://x.com/COP21en/status/675746019078991872 Kjarninn hefur haldið...

Mest lesið undanfarið ár