Unga fólkið í dag þarf að takast á við loftslagsbreytingar framtíðar

Natan Obed, Josefina Skerk og Fredrik Hanertz fluttu erindi á málþinginu og voru í pallborði.
Natan Obed, Josefina Skerk og Fredrik Hanertz fluttu erindi á mál­þing­inu og voru í pall­borði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ungt fólk í dag er fyrsta kyn­slóðin sem þarf að upp­lifa lofts­lags­breyt­ingar og leysa úr vand­anum, segir hinn 24 ára gamli Felix Antman Debels, einn sendi­full­trúa frá Svíþjóð sem tekur þátt í lofts­lags­ráð­stefn­unni í París. Ungliðar á Norð­ur­löndum héldu mál­þing um ung­menni á norð­ur­slóðum og mál­efni upp­runa­legra íbúa á norð­ur­slóðum í bás Norð­ur­landa­ráðs í kvöld. Í sendi­nefndum Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands eru ung­liðar. Enginn ung­menni eru þátt­tak­endur hér á vegum stjórn­valda á Íslandi eða Danmörku.

Debels telur mik­il­vægi þess að ung­menni taki þátt í umræðum um lofts­lags­mál tví­skipt. „Fyrir það fyrsta þá þá erum við fyrsta kyn­slóðin sem mun finna fyrir loftlsag­breyt­ingum af fyrir alvöru og fyrir okkur mun þetta hafa mikil áhrif á líf okkar. Ungmenni víða um heim búa á svæðum sem eru mjög við­kvæm fyrir lofts­lag­breyt­ingum og þetta fólk mun finna veru­lega fyrir breyt­ing­unum,“ sagði hann í sam­tali við Kjarnann.

„Við erum einnig síð­asta kyn­slóðin sem getur leyst þennan vanda,“ segir Debels. Samkvæmt áætl­unum vís­inda­manna er talið að með­al­hiti jarðar muni hækka um 2,7 gráður árið 2100 miðað við með­al­hit­ann fyrir iðn­bylt­ingu. Slík hækkun mun hafa gríð­ar­lega alvar­leg áhrif fyrir ótrú­legan fjölda fólks um allan heim. Debels seg­ist aðal­lega hugsa til ungs fólks á smá­eyjum, upp­runa­lega íbúa á norð­ur­slóðum og fátæka í Indlandi og Afríku. Þar munu lofts­lags­breyt­ing­arnar hafa alvar­leg­ustu áhrifin.

Gestir mál­þings­ins sem Kjarninn ræddi við voru sam­mála því að mik­il­vægt sé fyrir ung­menni að láta í sér heyra. Þýskur hópur ung­menna sem hér eru staddir sem full­trúar umhverf­is­sinna sagði eftir mál­þingið að jafn­vel þó ákvarð­anir væru teknar af eldra fólki þá breyti það engu um hverjir það séu sem eigi raun­veru­lega eftir að finna fyrir lofts­lags­breyt­ingum. „Það er fólk sem er ungt í dag.“

„Ég held að við höfum mun ítar­legri skiln­ing á lofts­lags­breyt­ingum og við erum mun upp­tekn­ari af þessum málum. Þessi áhugi þarf að vera sjá­an­legur og það þarf að heyr­ast í okkur í þessum við­ræðum hér í París,“ sagði Debels að lokum.

Þrjú ung­menni frá Kanada og Svíþjóð fluttu erindi á mál­þing­inu. Fredrik Hanertz, póli­tískur ráð­gjafi sænska umhverf­is­ráð­herr­ans, Josefina, Skerk, vara­for­seti samíska þings­ins í Svíþjóð og Natan Obed, for­seti Inuit Tapiriit Kanatami.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár