Obama: Allt eða ekkert fyrir framtíð mannkyns

Barack Obama ávarpaði ráðstefnuna í París rétt í þessu. Erindi hans lauk á orðunum: „Hefjumst nú handa“.
Barack Obama ávarp­aði ráð­stefn­una í París rétt í þessu. Erindi hans lauk á orð­unum: „Hefjumst nú handa“. Mynd: EPA

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, ávarp­aði lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna við upp­haf leið­toga­fund­ar­ins á þessum fyrsta degi ráð­stefn­unnar í París. Hann lagði áherslu á að góð nið­ur­staða ráð­stefn­unnar sé það eina sem bjargar fram­tíð mann­kyns­ins. Leið­togar 150 ríkja heims koma nú saman í París. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er full­trúi Íslands.

„Getum við ímyndað okkur betri umbun en það að börnin okkar og kyn­slóð­irnar sem koma á eftir okkur líti til þessa fundar sem bjarg­vætt mann­kyns­ins,“ sagði Obama í lok ræðu sinnar. „Látum það ekki fram­hjá okkur fara, næsta kyn­slóð er að fylgj­ast með hvað við gerum.“ Ræðuna má hlusta á í heild sinni hér að neðan. Einnig er beint streymi frá leið­toga­fund­inum að finna hér að neðan.

Leið­toga­fundur 150 full­trúa ríkja sem sækja ráð­stefnunna er fyrsti dag­skrár­liður lofts­lags­ráð­stefn­unnar COP21 í París. Er það gert til að gefa umræðum á fund­inum meira vægi en ella. Í Kaup­manna­höfn fyrir sex árum, þegar við­ræður runnu út í sand­inn, var leið­toga­fund­ur­inn skipu­lagður í lok ráð­stefn­unnar. Þegar leið­tog­arnir komu loks saman höfðu brotala­mirnar þegar gert vart við sig.

Banda­ríkin og Kína menga meira en nokk­urt annað land í heim­inum. Obama gerði það að umfjöll­un­ar­efni í ræðu sinni og lagði áherslu á að mestu meng­arar heims­ins þyrftu að bregð­ast við svo lítil lönd, sem munu fyrr finna fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga en vold­ug­ustu ríki heims, hverfi ekki í hafið. „Þessi litlu eyríki hafa ekki tæki­færi til að draga nóg úr mengun til að bjarga sjálfum sér,“ sagði Obama.

Ræða Barack Obama:

Ráðstefnan í beinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár