Flokkur

Erlent

Erlent

Prent­útgáfu the Independent hætt í lok mars

Evgeny Lebedev, eigandi og útgefandi breska dagblaðsins the Indenpendent, hefur tilkynnt að prentun og útgáfu blaðsins, og helgar­blaðsins Independent on Sunday, verði hætt á næstunni. Síðasta eintakið af the Independent mun koma út 26. mars næst­komandi. Þar með lýkur 30 ára sögu blaðsins. Samkvæmt frétt the Guardian um málið segir Lebedev að breyt­ing­arnar séu liður í því að færa áherslur...
Erlent

Ein mesta vísinda­uppgvötun síðari tíma - Einstein hafði rétt fyrir sér

Vísinda­menn hafa í fyrsta sinn mælt þyngdar­bylgjur og þar með fært sönnur á afstæðis­kenningu Alberts Einsteins og varpað nýju ljósi á hið dular­fulla þyngdarafl. Þetta er almennt álitin ein mesta uppgötvun vísindanna í langan tíma, og segir á vef The Guardian að um eina mestu uppgvötun aldarinnar sé að ræða. Bylgjurnar urðu til við árekstur tveggja svarthola í órafjarlægð frá...
Erlent

Sanders og Trump unnu í New Hampshire

Demó­kratinn Bernie Sanders og repúblikaninn Donald Trump voru sigurveg­arar kosninganna í New Hampshire í gær, sem voru hluti af forvali flokkanna fyrir forseta­kosningarnar í Banda­ríkjunum. Sanders fékk tæplega 60 prósent fylgi á meðan Hillary Clinton fékk tæplega 40 prósent atkvæða hjá demó­krötum. Hjá repúblikönum fékk Donald Trump 34,5 prósent og John Kasich með 16,3 prósent. Ted Cruz, sem sigraði kosningarnar...
Erlent

Obama vill 1,8 milljarða dala til að berjast gegn Zika-veirunni

Barack Obama Bandaríkja­forseti mun óska eftir því við bandaríska þingið að það veiti 1,8 milljarða dala neyðar­fjármagn til þess að berjast gegn útbreiðslu Zika-veirunnar. Veiran breiðist nú hratt út, ekki síst í Rómönsku-Ameríku, og er talin valda alvarlegum fæðingar­galla, höfuðsmæðar­heilkenni. Flest smitin hafa orðið með moskító­flugum, en einnig eru dæmi um smit í gegnum kynmök. Fjár­magnið sem Obama óskar eftir...
Erlent

SÞ krefst þess að konur í Zika-löndum fái aðgang að fóstur­eyðingum

Mann­réttinda­stofnun Sameinuðu þjóðanna hefur kallað eftir því að ríki í Rómönsku-Ameríku, sem hafa orðið hvað verst úti vegna Zika-veirunnar, veiti konum aðgang að bæði fóstur­eyðingum og getnaðar­vörnum. Veiran, sem breiðist nú hratt út, er talin valda alvarlegum fæðingar­galla, höfuðsmæðar­heilkenni. Í mörgum þeirra ríkja þar sem hvað flestir hafa smitast er aðgangur að getnaðar­vörnum lítill og fóstur­eyðingar bannaðar. Til dæmis eru...
Erlent

Fylgi Trumps niður um 9% í fyrstu könnun eftir Iowa

Donald Trump hefur aðeins fjögurra prósenta forskot á helstu keppinauta sína í barátt­unni um útnefningu Repúblikana­flokksins til forseta Banda­ríkjanna, samkvæmt nýrri skoðana­könnun. Þetta er fyrsta skoðana­könnunin sem gerð var á landsvísu eftir kjör­fundinn í Iowa á mánudag. Það er Public Policy Polling sem gerði könnunina, en í síðustu könnun þeirra vikuna fyrir jól mældist Trump með 34% fylgi. Trump er...
Erlent

Breytir engu þótt Assange hafi verið í ólögmætri refsivist

Julian Assange, forsprakki Wikileaks, hefur verið í ólögmætri refsivist eftir að hann hóf að halda til í sendiráði Ekvadors í London. Vinnu­hópur um óréttmæta refsivist komst að þeirri niður­stöðu, samkvæmt heimildum BBC. Opinber­lega verður greint frá niður­stöðunni á morgun. Þetta breytir því ekki að hann verður hand­tekinn af bresku lögreglunni ef hann yfirgefur sendi­ráðið. Wikileaks-samtökin hafa sagt að þau bíði...
Erlent

Vilja koma í veg fyrir útilokun heillar kynslóðar Sýrlendinga

Leiðtogar víða að úr heiminum koma saman í London á morgun til þess að ræða flóttamanna­vandann vegna stríðsins í Sýrlandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra verður á ráðstefnunni, en hann fer til London frá Líbanon, þar sem hann hefur undan­farna daga kynnt sér aðstæður flótta­manna. Markmiðið með ráðstefnunni á morgun er að safna níu milljörðum Bandaríkja­dala fyrir sýrlenska flótta­menn og koma...

Mest lesið undanfarið ár