Markaðsvirði stærstu banka heimsins fellur verulega

Í Financial Times í dag segir að fjár­festar ótt­ist að óstöð­ug­leiki sé nú í heims­bú­skapnum, sem muni koma harka­lega niður á fjár­mála­stofn­unum á næstu mán­uðum.

Mark­aðsvirði stærstu banka heims­ins hefur hríð­fallið und­an­farna daga, en ástæð­urnar eru helst raktar til vax­andi óróa hjá fjár­festum vegna stöðu mála í heims­bú­skapnum, að því er segir í umfjöllun Financial Times (FT) í dag. Deutsche Bank féll um 9,1 pró­sent í gær og Goldman Sachs um 6,1 pró­sent. Evr­ópskir bankar féllu að með­al­tali um 6,4 pró­sent, og þeir banda­rísku um 3,1 pró­sent.

Mestu lækkanir frá evru-krísunni

Skarpar lækk­anir eins og þessar, á stærstu bönkum heims­ins, hafa ekki sést síðan verstu lægð­irnar voru á hluta­bréfa­mark­aði á árunum 2010 og 2012, sem lauk með því að Seðla­banki Evrópu ýtti undir auk­inn hag­vöxt og fram­gang í efna­hags­líf­inu með stuðn­ings­að­gerðum og fjárinn­spýt­ingu.

„Þessi við­brögð hjá fjár­festum eru eins og að skjóta fyrst, og spyrja spurn­inga seinna,“ segir Ewen Cameron Watt, aðal­ráð­gjafi BlackRock Invest­ment, í við­tali við FT í dag. Vísar hann til þess að fjár­festar bregð­ist hraðar við orðrómi en áður, og því séu sveiflur oft ýktar, bæði til hækk­unar og lækk­unar. En það sem hræði stærstu fjár­fest­ana mest, sjóði og fjár­mála­fyr­ir­tæki meðal ann­ars, sé við­var­andi óstöð­ug­leiki og óvissa.

Miklar sveiflur hafa ein­kennt hluta­bréfa­mark­aði á þessu ári, en þegar á heild­ina er litið þá hefur verð á hluta­bréfum lækkað um meira en tíu pró­sent á rúm­lega einum mán­uði, bæði í Banda­ríkj­unum og Evrópu. Í Asíu hefur lækk­unin verið enn meiri, þrátt fyrir mót­væg­is­að­gerðir Seðla­banka Kína og einnig nei­kvæða vexti í Japan, en stýri­vextir þar í landi voru lækk­aðir úr núll í -0,1 pró­sent í síð­asta mán­uði. Allt er því reynt til að örva hag­kerfið, með von um auk­inn vöxt og fjár­fest­ingu í huga. Hag­vöxtur í Kína mæld­ist í fyrra sá minnsti í ald­ar­fjórð­ung, eða 6,9 pró­sent. Í fyrsta skipti í meira tvo ára­tugi var hag­vöxtur í Indlandi meiri en í Kína, eða 7,5 pró­sent.

Olíuverðið hefur fallið, eftirspurn minnkar

Olíuverð hefur lækkað mikið á und­an­förnu, eins og fjallað hefur verið um að vef Kjarnans, en lækk­unin nemur um 75 pró­sent þegar horft er yfir fimmtán mán­aða tíma­bil. Um þessar mundir hefur verðið á hrá­olíu sveifl­ast í kringum 30 Banda­ríkja­dali á tunn­una, en undir lok árs 2014 fór það hæst í 115 Banda­ríkja­dali.

Verð­lækk­unin hefur öðru fremur verið skýrð með því að eft­ir­spurn í heims­bú­skapnum sé að minnka, á meðan fram­leiðsla hefur hald­ist óbreytt. Þannig sé ójafn­vægi fyrir hendi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar.

Í FT í dag kemur fram að nú séu fjár­festar farnir að ótt­ast hið versta. Fjár­mála­kerfin séu ekki nógu burgðug til að takast á við sam­drátt­ar­skeið, og að skuldum vafnir rík­is­sjóðir, ekki síst Evr­óp­ur­landa, muni lenda í enn meiri erf­ið­leikum. Enn sem komið er eru það helst hluta­bréfa­mark­aðir sem sýna ein­kenni þess að fjár­festar ótt­ist næstu mán­uði. Hagtölur í Banda­ríkj­unum hafa verið að batna á und­an­förnum mán­uðum, og mælist atvinnu­leysi undir fimm pró­sentum þessi miss­erin, en nýjum störfum fækk­aði hins vegar nokkuð í jan­úar miðað við sama mánuð í fyrra.

Evrópu er atvinnu­leysi að með­al­tali ríf­lega tíu pró­sent, og hefur Seðla­banki Evrópu sagt að hugs­an­lega muni koma til þess að nýjum stuðn­ing­ar­að­gerðum bank­ans verið hrint í fram­kvæmd, sem miði að því að örva hag­kerfin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár