Tíu staðreyndir um olíuverðlækkanir

Olía hefur lækkað mikið í verði á und­an­förnu einu og hálfu ári, með til­heyr­andi efna­hags­legum áhrifum. Nei­kvæðum og jákvæðum.

1. Á ríf­lega fimmtán mán­uðum hefur verðið á tunnu af hrá­olíu, á Banda­ríkja­mark­aði, farið úr 114,6 Banda­ríkja­dölum niður í 30,4 Banda­ríkja­dali nú, þegar þetta er ritað. Það er verð­fall sem nemur 74 pró­sentum. Það sama má segja um Norð­ursjáv­ar­ol­í­una. Hlut­föllin þar eru svipuð, en verðið á henni nemur 33,3 Banda­ríkja­dölum á tunn­una, miðað við þróun mála í dag. Ástæða verð­lækk­un­ar­innar verður með ein­föld­uðum hætti skýrð með því, að dregið hefur úr eft­ir­spurn eftir olíu, á sama tíma og fram­boð hefur hald­ist stöðug. Sam­dráttur í fjár­fest­ingum og minnk­andi umsvif í heims­bú­skap eru helstu orsaka­valdar.

2. Íslend­ingar fá olí­una að mestu úr Norð­ur­sjó, einkum frá stærsta olíu­fyr­ir­tæki Noregs, Statoil. Það félag er skráð á markað og 68 pró­sent hluta­bréfa þess í eigu norska rík­is­ins. Á Íslandi hefur olíu­verð lækkað, en það fylgir þó ekki heims­mark­aðs­verði náið eftir, þar sem inn í útsölu­verð­inu eru skattar og gjöld, sem ekki sveifl­ast með heims­mark­aðs­verði. Lítra­verð á bens­íni er nú í kringum 190 krónur, en var fyrir ári síðan í kringum 250 krónur. Helstu magn­kaup­endur olíu eru skip útgerð­ar­fyr­ir­tækja (sjáv­ar­út­vegur og flutn­ingar) og flug­vélar flug­fé­laga.

3. Eitt stærsta Íslend­inga­sam­fé­lag utan Íslands er í Roga­landi í Noregi, þar sem Stavan­ger er stærsta borgin með um 130 þús­und íbúa. Í Stavan­ger og nágrenni búa um fimm þús­und Íslend­inga en í Noregi búa nú um tíu þús­und Íslend­ingar. Verð­lækk­unin á olíu hefur komið illa við Rogaland og Stavan­ger, þar sem Statoil er með höf­uð­stöðvar, og hefur Dagens Nær­ingsliv, helsti við­skipta­f­rétta­mið­ill Noregs, sagt af því fréttir að und­an­förnu að verið sé að draga saman seglin víða í efna­hags­líf­inu á svæð­inu, en olíu­vinnslan og þjón­usta sem henni teng­ist, er helsta bak­beinið í efna­hags­líf­inu. Norska krónan kostar nú 14,9 íslenskar krónur en fyrir rúm­lega ári kost­aði hún 18,5 íslenskar krónur.

4. Nær algjört frost er nú á fast­eigna­mark­aði í Roga­landi, miðað við stöð­una sem var fyrir rúm­lega ári síðan, og upp­sagnir fyr­ir­tækja hafa auk­ist. Ennþá er of snemmt að tala um kreppu en sam­dráttur er stað­reynd. En verð­lækk­unin á olíu hefur þegar haft umtals­verð nei­kvæð áhrif í Noregi. Hluta­bréfa­verð hefur hríð­fallið að und­an­förnu, og nam lækk­unin í dag rúm­lega 3,3 pró­sentum. Þrátt fyrir það er Noregur eitt best stæða ríki heims­ins. Olíu­sjóður Noregs á eignir sem nema um einu pró­senti af öllum skráðum hluta­bréfum í Evrópu, en um 60 pró­sent sjóðs­ins er í hluta­bréfum. Stærð hans sveifl­ast því nokkuð eftir gengi hluta­bréfa, en á síð­asta ári námu eignir hans um 100 þús­und millj­örðum króna, eða sem nemur 6.700 millj­örðum norskra króna.

5. Verð­lækk­unin und­an­farin miss­eri hefur haft mikil áhrif á þróun efna­hags­mála í mörgum löndum þar sem olí­auð­lindir er að finna. Ríki eins og Brasilía, sem ítar­lega var fjallað um á vef Kjarnans ekki alls fyrir löngu, Rússland, Nígería, Sádí-Arabía og Venes­ú­ela, hafa öll fundið mikið fyrir mik­illi verð­lækkun. Verð­lækk­unin veldur því að hag­kerfin fá mun minni útflutn­ings­tekjur, sem hefur keðju­verk­andi áhrif um allt hag­kerfið, í ljósi þess hve mikið umfang olíu­vinnslu og hve mik­il­vægur grunnur það er fyrir aðra atvinnu­vegi. Í Rúss­landi, sem er með 143 millj­ónir íbúa, féll lands­fram­leiðsla í fyrra saman um 2,7 pró­sent og í Brasilíu, sem er með 200 millj­ónir íbúa – meira en í allri Suður-Evrópu – féll lands­fram­leiðsla saman um 4,5 pró­sent.

6. Ísland nýtur góðs af lágu olíu­verði, í það minnsta þegar beinu áhrifin eru skoðuð. Ef verðið er lágt, þá þarf minni gjald­eyri í að kaup olí­una heldur en þegar það er hátt. Óbeinu áhrifin eru síðan þau, að oft er fylgni milli verð­sveiflna olí­unnar og síðan ann­arra hrá­vara. Þannig skilar mikil lækkun á olíu­verði sér oft í því, með tím­anum, að verð lækkar á inn­fluttum afurðum. Það dregur síðan úr verð­bólgu. Verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­aði und­an­farið ár, og mælist nú 2,1 pró­sent á árs­grund­velli.

7. Stærstu olíu­fyri­tæki heims­ins eru Royal Dutch Shell (RDS), Exxon Mobil og Saudi Aramco, miðað við árið 2014. Ljóst er að tekjur fyr­ir­tækj­anna hafa vafa­lítið dreg­ist tölu­vert saman í fyrra, en end­an­leg upp­gjör hafa ekki enn verið kynnt. Tekjur RDS námu 421 millj­arði Banda­ríkja­dala, Exxon Mobil 378 millj­örðum Banda­ríkja­dala og hjá Saudi Aramco námu tekj­urnar 358,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala. Til að setja þessar tölur í sam­hengi þá námu tekjur RDS um 150 millj­örðum króna á dag.

8. Flestar spár gera ráð fyrir að olíu­verð muni hald­ast í lægri kant­inum á næstu miss­erum, en vandi er þó að spá fyrir um hvað sé framundan. Í því sam­hengi má nefna upp­lýs­ingar sem upp­lýs­inga­skrif­stofa banda­ríska orku­mála­ráðu­neyt­is­ins tók saman, og Orku­bloggið vitn­aði til. Samkvæmt spá þess verður verðið, á næsta ári, ein­hvers staðar á bil­inu 20 til 100 Banda­ríkja­dalir á tunn­una. Nákvæm­ari var nú ekki sú spá.

9. Eitt af því sem veldur alþjóð­legum fjár­festum áhyggjum, og hefur ýtt undir verð­lækk­anir á verð­bréfum og hrá­vöru, eru minni umsvif í kín­verska hag­kerf­inu en reiknað hafði verið með. Óhætt er að segja að það muni mikið um hvert pró­sentu­stig í hag­vexti fyrir heims­bú­skap­inn, þegar Kína er ann­ars vegar. Þar býr 20 pró­sent af íbúum jarðar, eða um 1,4 millj­arður manna. Í meira en ald­ar­fjórð­ung hefur hag­vöxtur í Kína verið 7 til 10 pró­sent á ári, en í fyrra fór hann undir sjö pró­sent. Þessi þróun er sögð ýta undir minnk­andi eft­ir­spurn, þar sem fyr­ir­tæki halda að sér höndum í fjár­fest­ingum og verða áhættu­fælin í rekstri sínum.

10. Eitt íslenskt olíu­fyr­ir­tæki – það er smá­sölu­að­ili olíu – er skráð á markað, N1. Það hækk­aði meira en öll önnur fyr­ir­tæki í kauhöll­inni í dag, eða um 2,73 pró­sent. Önnur fyr­ir­tæki á íslenska mark­aðnum, sem selja almenn­ingi og fyr­ir­tækjum olíu og bensín, eru Skelj­ungur, Olís og Atl­ants­olía.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár