Brasilía í öldudal

Stærsta hag­kerfi Suður-Ameríku gengur nú í gegnum mikla erf­ið­leika. Þessi 200 millj­óna þjóð hyggst halda Ólymp­íu­leika á næsta ári, mitt í verstu efna­hag­skreppu í land­inu í 20 ár.

Brasilía gengur nú í gegnum mik­inn öldu­dal í efna­hags­líf­inu, eftir upp­gangs­tíma síð­ustu árin. Verðfall á mik­il­vægum útflutn­ings­vörum, olíu þar helst, hefur leitt til þess að sam­dráttur er í hag­kerf­inu og erf­ið­leikar eru orðnir aug­ljósir í fleiri geirum. Nýjustu tölur sýna 4,5 pró­sent sam­drátt í hag­kerf­inu frá sama tíma­bili í fyrra, og það versta er, að óveð­ur­skýin halda áfram að hrann­ast upp. Í skýrslu sem Wall Street Journal vitnar til í umfjöllun sinni kemur fram að botn­inum hafi ekki verið náð ennþá. André Perfeito, aðal­hag­fræð­ingur Gradual Investi­mentos, fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tækis í Brasilíu, segir að áhyggju­efnið sé ekki endi­lega þessi mikli sam­dráttur nú, heldur að hann geti haldið áfram í nokkuð langan tíma í við­bót.

Uppgangur, HM og Ólympíuleikar

Í eitt og hálft ár hefur hag­kerfið verið í sam­drætti, en í rúm­lega ára­tug þar á undan, fyrir utan þrjá árs­fjórð­unga, á árunum 2008 og 2009, þá hefur mik­ill hag­vöxtur ein­kennt þetta risa­vaxna hag­kerfi sem er það sjö­unda stærsta í heimi og það langstærsta í Suður-Ameríku.

Í fyrra fór Heims­meist­ara­mótið í fót­bolta fram í Brasilíu, og á næsta ári fara Ólymp­íu­leik­arnir fram í Ríó. Kostn­aður við þá er þegar kom­inn um 520 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 67,6 millj­örðum, fram úr áætl­unum, sam­kvæmt fréttum Bloomberg í dag, og eru stjórn­völd þegar farin að huga að leiðum til að hag­ræða.

Bras­il­íu­menn féllu úr keppni á HM eftir dramat­ískt stór­tap gegn Þjóð­verjum, 1-7, og má segja að það hafi verið ein­kenn­andi fyrir það sem á eftir fylgdi.

Olía hóf síð sum­ars í fyrra að lækka hratt, eftir að hafa farið hæst í 115 Banda­ríkja­dali á tunn­una, sé miðað við hrá­olíu. Nú stendur verðið í 40 Banda­ríkja­dölum. Fyrir vax­andi olíu­út­flutn­ings­ríki eins og Brasilíu þýðir þetta að erf­iðar tímar bíða lands­manna. En þetta er ekki það eina, því verð á mörgum öðrum hrá­vörum hefur lækkað vegna þess að eft­ir­spurn hefur minnkað. Þetta á ekki síst við um vörur sem seldar eru til Kína, en þar hefur minnk­andi eft­ir­spurn gert Brasilíu lífið leitt.

Fjármagnskostnaður gæti hækkað

Annað áhyggju­efni fyrir Brasilíu eru skrefin sem Seðla­banki Banda­ríkj­anna hyggst stíga á næst­unni með hækkun stýri­vaxta. Búist er við því að bank­inn hækki vexti á næsta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi sem fer fram dag­ana 15. til 16. des­em­ber. Seðla­banki Banda­ríkj­anna hefur haldið vöxtum í 0,25 pró­sentum í meira en sjö ár, og næstum við núllið í tæpan ára­tug. Þetta hefur þýtt að hag­stætt hefur verið fyrir þjóðir eins og Brasilíu að taka lán í Banda­ríkja­dal. Með hækkun vaxta eykst fjár­magns­kostn­að­ur­inn, og óbeinu áhrifin geta einnig verið þau að aðgangur banka­kerf­is­ins að ódýru lánsfé verður enn erf­ið­ari, sem síðan dregur enn úr slag­kraft­inum í hag­kerf­inu.

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans á dög­unum, þá nefndi einn virt­asti þjóð­hag­fræð­ingur heims­ins, Argent­ínu­mað­ur­inn Dr. Guill­ermo Calvo, í erindi á fundi Columbia háskóla um stöðu efna­hags­mála í heim­inum, að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn gæti bankað upp í Brasilíu á næst­unni ákveði Seðla­banki Banda­ríkj­anna að hækka vexti á næst­unni.

Áskoranir fyrir stór olíuríki

Í Brasilíu búa um 200 millj­ónir manna. Til sam­an­burðar er það mun meiri fjöldi en býr í Suður-Evrópu. Þar búa um 153 millj­ónir manna, og eru fjöl­menn­ustu ríkin Spánn með 47 millj­ónir íbúa, og Ítalía en þar búa rúm­lega 60 millj­ónir manna.

Ljóst er að fari svo að olíu­verð hald­ist áfram lágt, má búast við að frek­ari erf­ið­leikar geri vart við sig hjá stórum olíu­ríkjum. Nú þegar hafa Rússland og Nígería, sem bæði eru stórar olíu­út­flutn­ings­þjóðir, gengið í gegnum mikla erf­ið­leika vegna verð­falls á olíu og minnk­andi eft­ir­spurnar. Eftir því sem staðan dregst á lang­inn, því erf­ið­ari verður fyrir þessu stóru hag­kerfi að laga sig að breyttum veru­leika.

Ofan á efna­hags­lega erf­ið­leika í Brasilíu, glímir landið við mik­inn óró­leika í stjórn­málum. Ekki aðeins á lands­mála­stig­inu, þar sem Dilma Rouseff for­seti berst nú fyrir póli­tísku lífi sínu, heldur einnig í ein­stökum borgum og héröðum. Efna­hags­erf­ið­leik­arnir hafa komið hratt að Brasilíu og svo virð­ist sem stjórn­völd hafi ekki verið undir þessa miklu sveiflu búin. Þegar fjár­málakreppan var sem dýpst, á árunum 2007 til 2009, var brasil­íska hag­kerfið fljótt að ná sér á strik, einkum vegna vax­andi við­skipta við Kína og hækk­andi olíu­verðs. En nú er öldin önnur, og óvissan er næstum áþreif­an­leg í þessum mesta efna­hags­lega öldu­dal sem Brasilía hefur gengið í gegnum á und­an­förnum 20 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár