Aðalhagfræðingur AGS: Varúð, passið ykkur á Kína og nýmarkaðsríkjum

Aðal­hag­fræð­ingur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins telur að staða efna­hags­mála sé við­kvæm í heim­inum. Hag­vöxtur sé víða veik­burða og mörg ríki gangi nú í gegnum erf­ið­leika, vegna lágs hrá­vöru­verðs og minnk­andi eft­ir­spurnar.

Maury Obstfeld, aðal­hag­fræð­ingur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS), segir að fjár­festar og stjórn­völd ríkja, ekki síst í Banda­ríkj­unum og Evrópu, þurfi að vera á verði vegna stöðu mála í Kína og nýmark­aðs­ríkjum. Nýjar hag­tölur frá Kína sýna að meiri hæga­gangur er í hag­kerf­inu þar, en margir höfðu gert ráð fyrir, og féll verð á hluta­bréfum um þrjú til fimm pró­sent, að með­al­tali í gær, af þeim ástæðum ekki síst, að því er fram kom í umfjöllun Wall Street Journal, og fjallað var um á vef Kjarnans í gær.

Þetta var fyrsti stóri við­skipta­dagur árs­ins á verð­bréfa­mörk­uðum en mesta lækk­unin var á kín­versu Shanghai vísi­töl­unni, en hún lækk­aði um sjö pró­sent, sem telst mikið á einum degi. Lækkanir héldu áfram í dag, og lækk­aði verð á hluta­bréfum að með­al­tali á öllum helstu mörk­uðum Asíu um eitt pró­sent.

Obstfeld segir, í nýrri blogg­færslu á vef Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, að staða efna­hags­mála í Kína og nýmark­aðs­ríkjum, ekki síst þeim sem eigi mikið undir olíu­iðn­aði og útflutn­ingi til Kína, sé afar við­kvæm um þessar mundir, þar sem nið­ur­sveifla á hrá­vöru­mörk­uðum, ekki síst vegna lækk­andi olíu­verðs og minnk­andi eft­ir­spurnar, bitni harka­lega á þeim. Ekki sjá­ist enn til botns í þessum efnum. Dæmi um ríki sem glíma við mikil vanda­mál í augna­blik­inu er Brasilía, stærsta land Suður-Ameríku með 200 millj­ónir íbúa. 

Í Kína sé einnig hættu­legt ef stjórn­völd ákveða að ein­blína á að setja meiri opin­bera fjár­muni út á markað, með lánum og fjárinn­spýt­ingum, í stað þess að byggja upp heil­brigðan vöxt. Erfitt sé að greina hvar jafn­vægið sé á mark­aðnum, þegar þetta er gert í miklu mæli, og í versta falli geta það aukið á vand­ann til lengri tíma.

Þá muni árið 2016 ein­kenn­ast af því, að byggja upp sjálf­bæran hag­vöxt, ekki síst í þró­uðum ríkjum, þar sem tími örv­un­ar­að­gerðar stjórn­valda muni brátt líða undir lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár