Flokkur

Erlent

Erlent

Sjónum beint að flótta­börnum - minnst 10 þúsund börn týnd í Evrópu

Minnst 10 þúsund flótta­börn hafa horfið eftir að hafa komið til Evrópu að sögn evrópsku lögreglunnar Europol. Mörg eru talin vera fórnar­lömb mansals, enda séu skipulögð glæpa­samtök að herja á flótta­menn. Brian Donald, yfirmaður hjá Europol, segir að fimm þúsund börn hafi horfið á Ítalíu og þúsund séu týnd í Svíþjóð. „Það er ekki fjarri lagi að segja að við...
Skýring

Þorska­stríðið við Kína

Bandarískar B-52 sprengju­flugvélar flugu nokkrum sinnum í fyrra yfir Spratly-eyja­klasann nærri Filippseyjum. Stjórn­völd í Peking gera tilkall til eyjanna og brugðust ókvæða við og sökuðu Bandaríkja­menn um ögrun. Mörgum frétta­skýrendum þóttu yfir­lýsingar ríkis­fulltrúa í Peking merkilegar í ljósi þess að eyjarnar eru flestar eyðileg sandrif í órafjarlægð frá megin­landi Kína. Öðrum þykja afskipti Banda­ríkjanna óviðeigandi í ljósi þess að þau...
Erlent

Stóra danska flaggstanga­málið upplýst

Fyrir tíu dögum eða svo fengu forstöðu­menn danskra ríkis­fyrirtækja og stofnana bréf frá Fjármála­ráðuneytinu. Sumir þeirra héldu að bréfið væri einskonar fyrirfram 1. aprílgabb, en við nánari athugun kom í ljós að svo var ekki. Þeim var semsé skipað að telja þær utandyra­flaggs­tangir sem undir þeirra stofnun heyra og senda niður­stöður taln­ing­ar­innar til ráðu­neyt­isins. Í bréfinu var tilgangur taln­ing­ar­innar ekki...
Erlent

Nýr kafli í sögu Írans

Nýr kafli er hafinn í samskiptum Írans við heiminn eftir að alþjóð­legum viðskipta­þvingunum á ríkið hefur verið lyft. Þetta segir Hassan Rouhani forseti landsins. Viðskipta­þvinganir Sameinuðu þjóðanna, Banda­ríkjanna og Evrópu­sambandsins hafa haft mikil áhrif á efnahag Írans. Hluti af kjarnorku­samkomu­laginu sem náðist við Íran á síðasta ári fól það í sér að viðskipta­þvingunum yrði létt ef ákveðnum skilyrðum væri mætt....
Viðtal

„Ég horfði á Sýrland brenna“

Firas Fayyad var hand­tekinn og pyntaður í sýrlensku fangelsi. Hann segir markmiðið hafa verið að „brenni­merkja sál“ hans. Það tókst ekki enda heldur hann baráttu sinni fyrir frálsu Sýrlandi áfram með linsu mynda­vélarinnar að vopni. Fayyad vinnur að heimildar­mynd um sýrlenskan dreng og flótta hans til Evrópu. Hann heldur til í Tyrklandi á meðan Sýrland brennur fyrir framan augun á honum. Þorp systur hans var nýlega lagt í rúst í rússneskri loftárás.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár