Trúleysi ungra Íslendinga vekur heimsathygli

Nið­ur­stöður könn­unar Sið­menntar um trú og lífs­skoð­anir Íslend­inga hafa vakið athygli víða um heim. Samkvæmt kön­unn­inni trúir eng­inn undir 25 ára að Guð hafi skapað alheim­inn, hvort sem við­kom­andi taldi sig krist­inn eður ei.

Mikið var fjallað um könn­un­ina í fréttum hér­lendis, meðal ann­ars að hlut­fall þeirra sem telja sig trú­aða á Íslandi hafi aldrei verið jafn lágt, eða 46 pró­sent, níu af hverjum tíu fram­sókn­ar­mönnum eru kristnir og að lang­flestir Íslend­ingar eru hlynntir líkn­andi dauða. Einnig kom fram að Íslend­ingar undir 25 ára aðhyll­ast ekki kenn­ingar Bibl­í­unnar.

Stórir erlendir miðlar taka málið upp

Und­an­farna daga hafa ýmsir erlendir miðlar fjallað um nið­ur­stöð­urnar og þá sér­stak­lega þá stað­reynd að ungir Íslend­ingar virð­ast vera þess full­vissir að Guð hafi ekki skapað heim­inn.

Banda­ríska dag­blaðið Washington Post slær upp fyr­ir­sögn­inni: Í þessu landi er bók­staf­lega ekk­ert kristið ung­menni sem trúir því að Guð hafi skapað heim­inn.

„Ef þú færð tæki­færi til að ræða við unga Íslend­inga um trú­ar­skoð­anir þeirra mun nokkuð koma þér á óvart. Nákvæm­lega núll pró­sent svar­enda nýrrar könn­unar segj­ast trúa því að Guð hafi skapað heim­inn,” segir í byrjun frétt­ar­innar. Þá er greint frá Gallup könnun frá árinu 2014 í Banda­ríkj­unum þar sem kom fram að 28 pró­sent Banda­ríkja­manna á aldr­inum 18 til 29 ára trúðu því að Guð hafi skapað mann­inn í núver­andi mynd ein­hvern tím­ann á síð­ustu 10.000 árum.

„Guðlausasta land Evrópu"

Írska blaðið Belfast Tel­egraph segir einnig frá könn­un­inni og sömu nið­ur­stöðum undir fyr­ir­sögn­inni: Enginn undir 25 ára á Íslandi trúir að Guð hafi skapað heim­inn. Í frétt­inni er síðan vísað í hinar ýmsu umræður um málið á net­inu og orð Francis páfa um að „Guð væri ekki töfra­maður með sprota" og að kenn­ingin um Mikla­hvell væri sönn. Það sama gerir breska blaðið Independent sem fjallar um málið á tveimur vef­svæðum sínum, á öðrum stað undir fyr­ir­sögn­inni: Þetta er Guð­laus­asta land Evrópu.

Mikill fjöldi vef­síðna sem meðal ann­ars snúa að trú­leysi og gagn­rýni á trú­ar­brögð hafa einnig greint frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar. Dæmi er að finna á síðum The Free Thinker, Patheos, Reddit, Skeptical Science, frétta­síð­unni Smashing Life og tölvu­leikjaum­ræðu­síð­unni NeoGAF.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár