Aðili

Donald Trump

Greinar

Huawei, „Kínaveiran“ og gula ógnin
Úttekt

Huawei, „Kína­veiran“ og gula ógnin

Banda­rískir fjöl­miðlar á borð við New York Times tala um að nýtt kalt stríð sé hafið, í þetta sinn á milli Banda­ríkj­anna og Kína. Í því stríði sé barist með hátækni, í netheimum og með áróðri og við­skipta­höftum. Eftir að hafa snúið baki sínu við alþjóða­sam­fé­lag­inu í fjögur ár seg­ist Trump Banda­ríkja­for­seti nú reiðu­bú­inn að leiða Vest­ur­lönd í bar­átt­unni gegn heims­yf­ir­ráðum Kínverja en efa­semdir eru um að hann hafi til þess burði.
„Hold the press!“
Úttekt

„Hold the press!“

Blaða­menn sem fylgj­ast með mót­mælum í Banda­ríkj­unum hafa orðið fyrir hörðum árásum lög­reglu. Meira en sex­tíu hafa verið hand­teknir við störf sín og tugir fengið að finna fyrir gúmmí­kúlum, táragasi og kylfum þar sem þeir reyna að flytja fréttir af vett­vangi mót­mæl­anna. Forseti lands­ins er í stríði við fjöl­miðla, sem hann sakar um að grafa undan sér, en tvö ár eru síðan Banda­ríkin komust fyrst á lista yfir hættu­leg­ustu ríki heims fyrir blaða­menn.
28 virkum dögum seinna
ErlentCovid-19

28 virkum dögum seinna

Vaxandi hópur Banda­ríkja­manna tekur þátt í mót­mælum gegn sam­komu­banni og öðrum fyr­ir­byggj­andi aðgerðum vegna kór­óna­veirunnar. Þeir virð­ast njóta stuðn­ings Donalds Trump for­seta og er hann sak­aður um að hvetja til upp­reisnar í ríkjum þar sem Demókratar eru við völd. Trump er mikið í mun að koma hag­kerf­inu aftur í gang fyrir kom­andi kosn­inga­bar­áttu, þrátt fyrir gríð­ar­legt og hratt vax­andi mann­fall af völdum veirunnar vest­an­hafs.
Rappstjarnan Donald Trump
Úttekt

Rapp­stjarnan Donald Trump

Fjöl­breyttur fer­ill Donalds Trump hefur verið sam­of­inn sögu banda­rískrar rapptón­listar nán­ast frá fyrsta degi. Hann var árum saman dásamaður í rapptextum sem tákn­mynd þess auðs og fjár­hags­legs sjálf­stæðis sem blökku­menn þráðu. Eftir að hann varð umdeild­asti for­seti í nútíma­sögu Banda­ríkj­anna hefur tónn­inn breyst þó að Trump sé enn að reyna að höfða til yngri kyn­slóða í gegnum hip-hop tón­list.
Rýtingur í bak Kúrda leiðir til lokauppgjörs í Sýrlandi
GreiningStríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til loka­upp­gjörs í Sýrlandi

Banda­ríkja­stjórn sveik sína nán­ustu banda­menn gegn ISIS á dög­unum með því að gefa Tyrkjum skot­leyfi á varn­ar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrk­lands­for­seti er hins vegar kom­inn í stór­kost­leg vand­ræði og inn­rás hans er í upp­námi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu banda­lag við Rússa og sýr­lenska stjórn­ar­her­inn. Um leið og Banda­ríkja­her er að hverfa á brott frá land­inu virð­ist allt stefna í loka­upp­gjör í borg­ara­stríð­inu sem hefur geisað í átta ár.
Komið að skuldadögum fyrir Trump?
Greining

Komið að skulda­dögum fyrir Trump?

Öll spjót standa á Donald Trump Banda­ríkja­for­seta nú þegar þingið hefur hafið rann­sókn á hvort hann hafi gerst brot­legur í starfi. Ljóst er að meiri­hluti er fyrir því í full­trúa­deild þings­ins að ákæra for­set­ann, enda virð­ist borð­leggj­andi mál að hann mis­not­aði emb­ætti sitt til að þrýsta á stjórn­völd í Úkraínu að rann­saka Joe Biden, sinn helsta stjórn­mála­and­stæð­ing. Um leið sætir Rudy Guiliani, einka­lög­fræð­ingur Trumps, sjálfur saka­mála­rann­sókn og tveir dul­ar­fullir aðstoð­ar­menn hans hafa verið hand­teknir fyrir að bera erlent fé á for­set­ann.

Mest lesið undanfarið ár