Rýtingur í bak Kúrda leiðir til lokauppgjörs í Sýrlandi

Banda­ríkja­stjórn sveik sína nán­ustu banda­menn gegn ISIS á dög­unum með því að gefa Tyrkjum skot­leyfi á varn­ar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrk­lands­for­seti er hins vegar kom­inn í stór­kost­leg vand­ræði og inn­rás hans er í upp­námi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu banda­lag við Rússa og sýr­lenska stjórn­ar­her­inn. Um leið og Banda­ríkja­her er að hverfa á brott frá land­inu virð­ist allt stefna í loka­upp­gjör í borg­ara­stríð­inu sem hefur geisað í átta ár.

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til lokauppgjörs í Sýrlandi
Erdogan og Trump Ráða ráðum sínum á á fundi NATÓ í Brussel í fyrra. Sam­komu­lag Trumps við Erdogan, sem sá fyrr­nefndi gerði án þess að ráð­færa sig við ráð­gjafa, gaf þeim síð­ar­nefnda skot­leyfi á Kúrda í Sýrlandi. Mynd: Shutterstock

Fornt kúrdískt mál­tæki segir: „Kúrdar eiga enga vini nema fjöllin.“ Í gegnum ald­irnar hefur þjóðin ekki átt sitt eigið ríki heldur verið gest­kom­andi í grann­ríkjum sínum: Tyrk­landi, Íran, Sýrlandi og Írak. Þar hafa Kúrdar sætt kúgun og ítrekað þurft að flýja til fjalla og taka upp vopn til að bjarga þjóð­inni frá útrým­ingu. 

Það hafa komið tíma­bil þar sem þjóð­ar­brotið hefur náð að rísa til met­orða, t.d. Í Persa­veldi og um tíma í Ottóman­veld­inu þar sem þeir voru mik­ils­metnir her­menn, en eins og sagan segir eru Kúrdar vanir því að vera stungnir í bakið fyrr eða síðar og hafa alltaf verið sviknir um eigið ríki á end­anum.

Kúrdar eru í dag að minnsta kosti 40 millj­ónir, þó að erfitt sé að festa á það tölu vegna þess hve dreifðir þeir eru. Rúmur þriðj­ungur þeirra býr í Tyrk­landi þar sem þeir sæta sér­stak­lega mik­illi kúgun í dag. Tyrk­neska ríkið gerir allt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stríðið í Sýrlandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár