Fréttamál

Covid-19

Greinar

ViðtalCovid-19

„Svaka partý þegar þetta er búið“

Hjónin Daði Freyr Pét­urs­son og Árný Fjóla Ásmunds­dóttir voru komin á fullt í Eurovision und­ir­bún­ingi þegar COVID-19 far­ald­ur­inn reið yfir. Keppn­inni var aflýst og þau hreiðra nú um sig í Berlín með eins árs dóttur sinni, sem lagið „Think About Things“ var samið til. Daði reynir að koma sér í gír­inn að semja meiri tón­list og segir lífið flókn­ara nú en þegar eng­inn var að hlusta.

Myndband15 mín. lestur

FréttirFólkið í framlínunni

Dagbók hjúkr­un­ar­fræð­ings á COVID-19 deild­inni

Ólíkt stríðum og nátt­úru­ham­förum, sem oft­ast eru stað­bundnar hörm­ungar í afmörk­uðum heims­hlutum, hefur COVID-19 sam­einað mann­kynið sem glímir alls staðar við sama sjúk­dóm­inn og afleið­ing­arnar sem hann hefur á sam­fé­lagið. Lýsingar heil­brigð­is­starfs­fólks um allan heim eru þær sömu, frá­sagnir af ringul­reið, skorti á hlífð­ar­bún­aði og fár­veikum sjúk­lingum en líka af náunga­kær­leik, dugn­aði og sam­stöðu.

10 mín. lestur

MyndirCovid-19

Við erum hér

Um 13.600 ein­stak­lingar hafa lok­ast inni á heim­ilum sínum vegna kór­óna­veirunnar. Aðstæður fólks eru mis­mun­andi, á meðan sumir eru aleinir eru aðrir með fjöl­skyld­una hjá sér. Þá er líka munur á því hvort það er í sótt­kví eða hvort það hefur greinst með stað­fest smit og er komið í ein­angrun, en í þeim hópi eru tæp­lega 1.100 manns. Fólk í sótt­kví má fara út í göngutúr og umgang­ast annað fólk, svo lengi sem það heldur tveggja metra fjar­lægð og fylgir ákveðnum reglum, en fólk sem er í ein­grun má hvergi fara og engan umgang­ast. Ljós­mynd­ar­inn Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir fang­aði þennan veru­leika.
FréttirAðskilin vegna veirunnar

„Mig langar bara til að fá að vera með henni um pásk­ana“

„Við erum vön að vera saman og þekkjum ekk­ert annað.“ Þetta segir Ármann Ingimagn Hall­dórs­son. Eig­in­kona hans, Gróa Ingileif Krist­manns­dóttir dvelur á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Dyngju á Egils­stöðum. Gróa, sem er 62 ára, er með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Beckers, hún er í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins og þarf mikla umönnun sem Ármann hefur sinnt að miklum hluta síðan hún veikt­ist. Vegna heim­sókna­banns hafa hjónin ekki hist í margar vikur.

Mest lesið undanfarið ár