Fréttamál

Covid-19

Greinar

ViðtalLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Fjar­stjórnun ekki síður mik­il­væg en fjar­vinna

Það er kúnst að reka fyr­ir­tæki sem reiðir sig á fjar­vinnu starfs­manna. Þetta segir Bjarney Sonja Ólafs­dóttir Breidert, fram­kvæmda­stjóri alþjóð­lega hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 1xINTER­NET. Hún segir að fólk verði jafn­vel agaðra og afkasta­meira í fjar­vinnu en í hefð­bundnu vinnu­um­hverfi, að því gefnu að hún sé vel skipu­lögð og ferlar séu skýrir.
FréttirCovid-19

Skóla­starf með eðli­legum hætti frá 4. maí og fjölda­tak­mörk rýmkuð

Skóla­starf í leik- og grunn­skólum verður með eðli­legum hætti frá og með 4. maí. Heimilt verður að opna fram­halds­skóla og háskóla og fjölda­tak­mörk á sam­komum verða rýmkuð. Íþrótta­starf barna og ung­linga verður leyft með vissum skil­yrðum. Þetta verður meðal þeirra breyt­inga sem verða gerðar á þeim höftum sem sett hafa verið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og taka gildi 4. maí.
ErlentLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Aukin tog­streita á milli almenn­ings og elítu

And­stæð­ingar hnatt­væð­ingar vilja meina að heims­far­ald­ur­inn, sem nú stendur yfir, sé ekki síst afleið­ing þess að landa­mæri hafa minni þýð­ingu en áður. Margir sér­fræð­ingar á sviði alþjóða­sam­starfs telja þvert á móti að aukin alþjóða­væð­ing sé eina leiðin til að takast á við fjöl­þjóð­leg vanda­mál á borð við kór­óna­veiruna. Alþjóða­væð­ingin sé í raun mun flókn­ari og víð­tæk­ari en þorri fólks geri sér grein fyrir.
FréttirLærdómurinn af heimsfaraldrinum

COVID-19 far­ald­ur­inn sýnir að það sem sagt var ómögu­legt er vel hægt

Skiptar skoð­anir eru um hvaða áhrif COVID-19 far­ald­ur­inn muni hafa á ferðir fólks til fram­tíðar. Fræði­menn telja þó að nú sé færi sem verði að nýta til að draga úr umhverf­is­á­hrifum flugs og ferða­mennsku. Þótt mis­mik­illar bjart­sýni gæti um hvort slíkt geti tek­ist þá hafa aðgerðir ríkja heims nú sýnt að hægt er að knýja fram veru­legar breyt­ingar á hegðun og neyslu fólks á mjög stuttum tíma, sé póli­tískur vilji fyrir því.

20 mín. lestur

FréttirFólkið í framlínunni

„Ég fer að gráta í hvert sinn“

Amy Mitchell vinnur sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur í Victoria British Columbia í Kanada. Spít­al­inn sem hún vinnur á, The Royal Jubilee Hospital, er annar af tveimur á Vancouver Island sem sinnir COVID-19 sjúk­lingum. Amy vinnur á hjarta­deild­inni, þar sem ástand sjúk­linga er nógu stöðugt til að þeir þurfi ekki að vera á gjör­gæslu, en ekki nógu stöðugt til að bíða heima eftir þvi að kom­ast í aðgerð. Eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn hófst sér deildin núna um alla sem eru með stað­fest og grunað smit og þurfa að vera undir hjarta­eft­ir­liti. Þegar þetta er ritað hafa 38 ein­stak­lingar lát­ist úr nýju kór­óna­veirunni á svæð­inu.

Mest lesið undanfarið ár