Breyttur heimur eftir COVID-19

Afleið­ingar kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins sem nú gengur yfir heims­byggð­ina verða veru­legar og munu hafa mikil áhrif á líf venju­legs fólks. Sumt mun ganga yfir en aðrar breyt­ingar eru var­an­legar. Efna­hag­skreppan sem mun fylgja gæti orðið sú dýpsta í sög­unni og gæta þarf að lýð­ræð­inu í eft­ir­leik far­ald­urs­ins.

Breyttur heimur eftir COVID-19
Allt breytt Covid-19 far­ald­ur­inn hefur breytt mörgu fyrir venju­legt fólk. Sumt mun ganga yfir en annað er breytt til fram­tíðar. Mynd: Landspítali / Þorkell Þorkelsson

COVID-19 kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn hefur þegar valdið rót­tækum breyt­ingum á lífi millj­óna manna víðs vegar um heim­inn. Á Íslandi hafa sex manns látið lífið af völdum far­ald­urs­ins, um 1.600 smit­ast og þús­undir verið settir í sótt­kví. Sam­komu­bann ríkir sem veldur því að fjöldi fyr­ir­tækja hefur þurft að leggja niður starf­semi sína, með til­heyr­andi fjár­hags­legum skaða fyrir þau og starfs­fólk þess, sem í mörgum til­vikum hefur misst atvinnu, tíma­bundið eða til lengri tíma. 

Hvaða lang­tíma­á­hrif mun far­ald­ur­inn hafa á heil­brigði þjóð­ar­innar? Hver munu áhrifin verða á efna­hags­líf, mann­rétt­indi og lýð­ræði á Íslandi og á heims­vísu? Stundin leit­aði svara hjá sér­fræð­ingum hvað þessar spurn­ingar og fleiri varðar. 

Líklegt að faraldurinn komi ítrekað upp

Afar lík­legt er að COVID-19 far­ald­ur­inn muni koma upp ítrekað. Þetta segir Ólafur S. Andr­és­son, pró­fessor í erfða­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands. „Það er vegna þess að svo lít­ill hluti fólks smit­ast og öðl­ast þar með ónæmi,“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lærdómurinn af heimsfaraldrinum

Fjarstjórnun ekki síður mikilvæg en fjarvinna
ViðtalLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Fjar­stjórnun ekki síður mik­il­væg en fjar­vinna

Það er kúnst að reka fyr­ir­tæki sem reiðir sig á fjar­vinnu starfs­manna. Þetta segir Bjarney Sonja Ólafs­dóttir Breidert, fram­kvæmda­stjóri alþjóð­lega hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 1xINTER­NET. Hún segir að fólk verði jafn­vel agaðra og afkasta­meira í fjar­vinnu en í hefð­bundnu vinnu­um­hverfi, að því gefnu að hún sé vel skipu­lögð og ferlar séu skýrir.
Aukin togstreita á milli almennings og elítu
ErlentLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Aukin tog­streita á milli almenn­ings og elítu

And­stæð­ingar hnatt­væð­ingar vilja meina að heims­far­ald­ur­inn, sem nú stendur yfir, sé ekki síst afleið­ing þess að landa­mæri hafa minni þýð­ingu en áður. Margir sér­fræð­ingar á sviði alþjóða­sam­starfs telja þvert á móti að aukin alþjóða­væð­ing sé eina leiðin til að takast á við fjöl­þjóð­leg vanda­mál á borð við kór­óna­veiruna. Alþjóða­væð­ingin sé í raun mun flókn­ari og víð­tæk­ari en þorri fólks geri sér grein fyrir.
COVID-19 faraldurinn sýnir að það sem sagt var ómögulegt er vel hægt
FréttirLærdómurinn af heimsfaraldrinum

COVID-19 far­ald­ur­inn sýnir að það sem sagt var ómögu­legt er vel hægt

Skiptar skoð­anir eru um hvaða áhrif COVID-19 far­ald­ur­inn muni hafa á ferðir fólks til fram­tíðar. Fræði­menn telja þó að nú sé færi sem verði að nýta til að draga úr umhverf­is­á­hrifum flugs og ferða­mennsku. Þótt mis­mik­illar bjart­sýni gæti um hvort slíkt geti tek­ist þá hafa aðgerðir ríkja heims nú sýnt að hægt er að knýja fram veru­legar breyt­ingar á hegðun og neyslu fólks á mjög stuttum tíma, sé póli­tískur vilji fyrir því.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár