Aðili

Bragi Guðbrandsson

Greinar

Þriðja hvert barn á meðferðaheimilum sagði starfsmann hafa beitt sig ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Þriðja hvert barn á með­ferða­heim­ilum sagði starfs­mann hafa beitt sig ofbeldi

Í skýrslu fyrir Barna­vernd­ar­stofu kemur fram að tæp­lega þriðj­ungur barna sagð­ist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna á með­ferð­ar­heim­ilum á vegum barna­verndar árin 2000 til 2007. Samt segir að lítið ofbeldi hafi verið á með­ferð­ar­heim­il­unum og að sum til­felli til­kynnts ofbeldis hafi verið „hluti af því að stoppa óæski­lega hegðun barns“.
Barnaverndarstofa fer yfir mál kvennana sem dvöldu á Laugalandi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Barna­vernd­ar­stofa fer yfir mál kvenn­ana sem dvöldu á Lauga­landi

Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að farið verði yfir mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi, áður í Varp­holti, hjá stofn­un­inni í ljósi umfjöll­unar Stund­ar­innar um meint harð­ræði og ofbeldi gegn stúlkum sem þar voru vistaðar á árunum 1997 til 2007. Heiða Björg segir einnig að hún sé boðin og búin að funda með þeim konum sem lýst hafa ofbeld­inu sem þær hafi orðið fyrir á heim­il­inu, standi vilji þeirra til þess.
Ábendingar um harðræði og ofbeldi þegar komnar fram árið 2000
ÚttektVarnarlaus börn á vistheimili

Ábend­ingar um harð­ræði og ofbeldi þegar komnar fram árið 2000

Kvartað var undan fram­göngu Ingjalds Arn­þórs­sonar sem for­stöðu­manns Varp­holts og Lauga­lands strax árið 2000 til Barna­vernd­ar­stofu. Umboðs­maður barna fékk fjölda ábend­inga um ofbeldi og illa með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­unum árið 2001, bæði frá stúlkum sem þar dvöldu eða höfðu dvalið og frá for­eldrum. Svo virð­ist sem ásak­an­irnar sem voru settar fram hafi lítt eða ekki verið rann­sak­aðar af hálfu Barna­vernd­ar­stofu. Ingj­aldur starf­aði sem for­stöðu­maður Lauga­lands allt til árs­ins 2007 og hafnar ásök­unum.
Varnarlaus börn á vistheimili upplifðu ótta og ofríki
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Varn­ar­laus börn á vist­heim­ili upp­lifðu ótta og ofríki

Sex konur stíga fram í Stund­inni og lýsa alvar­legu ofbeldi sem þær segj­ast hafa orðið fyrir á meðan þær dvöldu á með­ferð­ar­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi, sem stýrt var af sömu aðilum. For­stöðu­maður heim­il­anna hafnar ásök­unum. Ábend­ingar um ofbeldið bár­ust þegar árið 2000 en Barna­vernd­ar­stofa taldi ekk­ert hafa átt sér stað. Konurnar upp­lifa að málum þeirra hafi verið sópað undir teppið. „Við vorum bara börn.“
Hafði „enda­þarms­mök“ við sofandi stúlku – Ekki nauðgun, segir lögregla
Fréttir

Hafði „enda­þarms­mök“ við sof­andi stúlku – Ekki nauðgun, segir lög­regla

Lögregla og rík­is­sak­sókn­ari töldu ekki til­efni til að rann­saka hvort nauðgun hefði átt sér stað þegar maður þröngvaði lim sínum í enda­þarm 17 ára stúlku meðan hún svaf. Maðurinn, fað­ir­inn í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða, við­ur­kenndi verkn­að­inn í yfir­heyrslu vegna ann­ars máls og sagð­ist hafa vitað að stúlkan væri mót­fallin enda­þarms­mökum.
Sagði sig ekki frá málinu en bað ráðuneytisstjóra um að gæta hlutleysis
FréttirBarnaverndarmál

Sagði sig ekki frá mál­inu en bað ráðu­neyt­is­stjóra um að gæta hlut­leysis

Ráðherra hélt upp­lýs­ingum um afskipti Braga Guð­brands­sonar leyndum fyrir Alþingi, samdi við hann um full for­stjóra­laun frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og lækaði Facebook-færslu um árásir eig­in­gjarnra barna­vernd­ar­starfs­manna á for­stjór­ann. Samt taldi hann sig hæfan til að end­ur­skoða fyrri ákvörðun ráðu­neytis síns.

Mest lesið undanfarið ár