Flokkur

Aflandsfélög

Greinar

Óskattlagðar vaxtagreiðslur Alcoa úr álverinu nema 67 milljörðum króna
FréttirÁlver

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
Leyniflétta Júlíusar Vífils rakin upp
RannsóknPanamaskjölin

Leyni­flétta Júlíusar Vífils rakin upp

Borg­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi, Júlíus Vífill Ingv­ars­son, sem er til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna „rök­studds gruns“ um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti, sagði í sam­tali við Stundina að pen­ingar, sem hann geymdi á aflands­svæði ættu sig sjálfir, og að upp­taka af sam­tali hans og Sigurðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns, um hvernig forð­ast mætti að greiða skatt af þeim, væri fölsuð. Júlíus Vífill hefur komið með engar eða vill­andi skýr­ingar, auk þess að neita að upp­lýsa um málið.
Samstarfsmaður íslenska ríkisins notaði þrjú félög í skattaskjólum
Fréttir

Sam­starfs­maður íslenska rík­is­ins not­aði þrjú félög í skatta­skjólum

Haukur Harð­ar­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Orku Energy, átti að minnsta kosti þrjú félög í skatta­skjólum sem hann not­aði í við­skiptum sínum fyrir og eftir hrun. Stýrir fyr­ir­tæki sem á í sam­starfi við íslenska ríkið í orku­málum í Kína og hefur Haukur nokkrum sinnum fundað með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, vegna orku­mála. Einsdæmi er að einka­fyr­ir­tæki kom­ist í þá stöðu sem Orka Energy er í í Kína.
Panamaskjölin: Eigendur elstu heildverslunar Íslands stunduðu viðskipti gegnum Tortólu
RannsóknPanamaskjölin

Panama­skjölin: Eigendur elstu heild­versl­unar Íslands stund­uðu við­skipti gegnum Tortólu

Erf­ingjar heild­söl­unnar Ó. Johnson og Kaaber, seldu hluta­bréf til Tortóla­fé­lags fyrir nærri 330 millj­ónir króna. Fjögur systk­ini og móðir þeirra stýrðu félag­inu sem hét Eliano Mana­gement Corp sem hóf lán­tökur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í bönkum í Lúx­em­borg. Systk­inin, meðal ann­ars fyrr­ver­andi frétta­mað­ur­inn Helga Guðrún Johnson, neita að tala um Tortóla­fé­lagið. Skatta­sér­fræð­ingur segir veru­legt skatta­hag­ræði kunna að hafa verið af félag­inu.
Panamaskjölin: Notaði börnin sín í skattaskjóli
AfhjúpunPanamaskjölin

Panama­skjölin: Notaði börnin sín í skatta­skjóli

Sigurður Bollason fjár­festir skuld­batt þrjú börn sín sem lög­ráða­maður þeirra í við­skiptum félaga í skatta­skjólum. Fjögurra og sex ára gömul börn eru skráðir eig­endur skúffu­fé­laga. Sigurður og við­skipta­fé­lagi hans, Magnús Ármann, eru næst umsvifa­mestir í Panama­skjöl­unum á eftir Björg­ólfs­feðgum. Arð­greiðslur frá félögum hjá Mossack Fonseca nema á sjötta millj­arð króna. Millj­arðar voru afskrif­aðir hjá þeim báðum eftir hrun en Panama­skjölin sýna miklar eignir þrátt fyrir það.
Vafasamt leyndarmál að baki miklum hagnaði Borgunar
Fréttir

Vafasamt leynd­ar­mál að baki miklum hagn­aði Borgunar

Pen­inga­slóð hins mikla gróða Borgunar, sem hefur meðal ann­ars skapað gríð­ar­legan hagnað fyrir útgerða­menn, Eng­ey­inga og hóp huldu­manna, liggur að klámi, fjár­hættu­spilum og vændi. Heild­ar­þjón­ustu­tekjur Borgunar, líkt og Valitor, hafa vaxið hratt á örskömmum tíma en nær helm­ingur þessa tekna frá báðum fyr­ir­tækjum koma erlendis frá. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar eru þetta við­skipti sem önnur færslu­hirð­inga­fyr­ir­tæki vilja ekki koma nálægt.
Á félag í skattaskjóli og fær ríkisstyrki til landbúnaðar með GAMMA
FréttirMenntamál

Á félag í skatta­skjóli og fær rík­is­styrki til land­bún­aðar með GAMMA

Hellen Magne Gunn­ars­dóttir er í Pana­ma­gögn­unum ásamt eig­in­manni sínum Erni Karls­syni en þau eiga félag sem á 280 millj­óna króna eignir á Tortólu. Þau stunda við­skipti við Kirkju­bæj­arsklaustur með sjóði í eigu GAMMA sem sér­hæfir sig í land­bún­aði en fyr­ir­tæki þeirra stundar nytja­skóg­rækt. Rík­is­stofnun á sviði skóg­ræktar fjár­magnar nytja­skóg­rækt­ina á jörð­inni til 40 ára.

Mest lesið undanfarið ár