Ný gullöld kaffivélarinnar og Melitta Bentz

Sam­kvæmt tölum danskrar neyt­enda­stofu seld­ust sam­tals 220 þús­und kaffi­vélar í Dan­mörku á árinu 2014, það svar­aði til þess að tólfta hvert heim­ili í land­inu hafi eign­ast slíkt tæki. Af þeim voru tæp­lega 30 þús­und af gerð­inni Melitta.

Kjarninn end­ur­birtir nú valda pistla Borgþórs Arn­gríms­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þættir. Frétta­skýr­ingar Borgþórs njóta mik­illa vin­sælda og sú sem er end­ur­birt hér að neðan var upp­haf­lega birt þann 20. sept­em­ber 2015. Nálgast má hlað­varpið á slóð­inni að ofan og á helstu hlað­varpsveitum.

Þegar Melitta Bentz, 35 ára hús­móðir í Dresden í Þýska­landi, stóð yfir eld­hús­vask­inum á heim­ili sínu vorið 1908 og hreins­aði korg­inn úr kaffi­könn­unni, fór hún að velta fyrir sér hvort ekki væri mögu­legt að losna við korg­inn, ekki bara úr könn­unni heldur líka úr kaff­inu. Hús­bónd­inn Hugo var vænt­an­legur heim í kaffi og Melitta hafði skellt í eina epla­köku. Þegar hús­bónd­inn kom inn úr dyr­unum, stóð heima að epla­kakan var til­búin og kaffið sömu­leiðis.

Meðan þau hjónin sátu yfir kaff­inu, og epla­kök­unni, fór Melitta að segja bónda sínum frá hug­mynd sem hún hefði fengið. Hugo skildi ekki alveg útkýr­ing­arnar en lýsti sig fylgj­andi hverju því sem fjar­lægt gæti korg­inn úr kaff­inu. Melitta lét ekki sitja við orðin tóm, með nagla gerði hún lítið gat á botn­inn á lít­illi blikk­dós, fékk svo stórt blað úr stíla­bók sonar síns og kom því fyrir í dósinni. Í þessa heima­til­búnu kaffi­trekt setti Melitta kaffi og hellti svo sjóð­andi vatni í „trekt­ina“ sem hún hafði sett bolla undir. Kaffið var nokkra stund að drjúpa niður í boll­ann en sér til mik­illar ánægju fann frú Melitta að í kaff­inu var ekki vottur af korgi. Henni var ljóst að hún hafði þarna dottið niður á aðferð við að búa til korg­laust kaffi. Líklega hefur hana þó ekki órað fyrir að heilli öld síðar væri upp­finn­ing hennar, í bók­staf­legri merk­ingu, á allra vörum og kaffi­vélar byggðar á þess­ari hug­mynd seldar um allan heim ásamt trektum og þar til gerðum papp­írs­pokum (papp­írs­filt).

Fékk einkaleyfi á uppfinningunni

Melitta Bentz hélt áfram að þróa hug­mynd­ina sem hún hafði fengið og 8. júlí 1908 fékk hún skráð einka­leyfi á „trekt­ar­á­haldi klæddu filt­pappír“ eins og það var kallað. Mánuði síðar stofn­aði hún fyr­ir­tæki sem bar nafn hennar, Melitta. Fyr­ir­tækið var í upp­hafi smátt í sniðum og Melitta fór ekki út fyrir tún­garð­inn í leit að starfs­fólki. Hugo bóndi hennar sagði upp sinni vinnu og tveir synir þeirra hjóna hófu störf hjá fyr­ir­tæk­inu. Fyrst í stað voru kaffi­trekt­irnar ekki trekt­laga heldur lík­astar þeim nið­ur­suðu­dósum sem eru kall­aður heildósir og úr blikki. Þótt Melitta hafi kannski ekki þekkt orðið vöru­þróun hélt hún áfram að bæta gæði trekt­ar­innar, sem um 1930 var orðin trekt­laga og þar að auki komin með rifflur að innan.

Papp­ír­inn varð jafn­framt betri með árunum. Einka­leyfið hélt ekki að eilífu og fyrir miðja síð­ustu öld voru fjöl­mörg fyr­ir­tæki farin að fram­leiða bæði trektar og poka, í ýmsum stærðum. Ennþá var vatnið hitað í katli eða potti og svo hellt yfir kaffið í trekt­inni. Einu til­brigðin við þessa aðferð voru hvort bunan úr katl­inum skyldi vera mjó, hvort best væri að bleyta fyrst aðeins í kaff­inu og hvort vatnið ætti að bull­sjóða eða vera aðeins undir suðu­marki. Þessi atriði öll, eða hvert um sig, voru og eru jafn­vel enn iðu­lega deilu­efni. Ekki hlupu allir upp til handa og fóta yfir þessum nýmóð­ins kaffi­trektum en héldu áfram að hella uppá með sömu aðferð og lengi hafði tíðkast. Taupoki (gamlir nær­bolir sagðir bestir) og blikk­kanna voru þar í aðal­hlut­verki.

Rafmagnið kemur í kaffikönnurnar

Á árunum eftir síð­ari heims­styrj­öld komu fram fjöl­margar nýj­ungar til þess ætl­aðar að gera lífið auð­veld­ara, þar á meðal í eld­hús­inu. Ein þess­ara nýj­unga var kaffi­vélin sem svo er nefnd. Það var þýskt fyr­ir­tæki, Wigoman sem árið 1954 setti á mark­að­inn tæki sem byggði á upp­finn­ingu Melittu Bentz, en bætti þó ýmsu við. Trektin var á sínum stað og pok­inn líka en hins vegar var það raf­magns elem­ent sem hit­aði vatnið og leiddi það í eins konar leiðslu yfir trekt­ina og svo niður í gegnum kaffið og í könnu sem fylgdi kaffi­vél­inni. Þetta voru tíma­mót í kaffi­gerð.

[adspot]Frú Melitta Bentz var þá ekki lengur á lífi, hún lést í lok júní 1950 en hafði skráð sig á spjöld sög­unnar eins og það er kallað. Melitta fyr­ir­tækið er hins­vegar enn til og fram­leiðir kaffi­vélar, raf­magns­katla, trektir og trek­ta­poka. Starf­semin fer fram víða um heim og starfs­menn í dag eru um fjögur þús­und.

Kaffivélar verða almenningseign

Á næstu árum komu tugir teg­unda slíkra kaffi­véla á mark­að­inn, þar á meðal frá Melitta. Vélar þessar voru hver annarri líkar, grund­vall­ar­tæknin ætíð sú sama en útlitið örlítið mis­mun­andi. Ekki verður tölu komið á allar þær teg­undir kaffi­véla sem á þessum árum litu dags­ins ljós. Tækni­þró­unin var lítil, sumar voru með sér­stakri hita­hellu til að halda upp­á­hell­ingnum heitum, aðrar með mis­mun­andi hita­still­ingum á þessum hellum en grund­vall­ar­tæknin óbreytt. Kaffi­brennslur buðu flestar, eða allar, uppá mjög svipað kaffi, milli­brennt, og á Íslandi var það jafn­vel talið fara eftir póli­tík hvaða kaffi var drukkið á heim­ilum lands­manna. Fram­sóknar- og vinstri­menn sagðir drekka Braga kaffi, í gulum pokum, úr kaup­fé­lag­inu en Sjálf­stæð­is­menn Rio kaffi frá Kaaber í blá- og hvítrönd­óttum pokum.

Kaffi­vél­arnar voru til­tölu­lega ódýrar enda tæknin ein­föld. Reyndar voru til margs­konar önnur tæki til kaffi­gerðar, til dæmis ítalskar hellukönnur og pressukönn­urnar sem upp­haf­lega komu senni­lega frá Frakk­landi en ekk­ert þess­ara tækja komst í hálf­kvisti við upp­á­hell­ing­ar­vél­arnar hvað vin­sældir og útbreiðslu varð­aði. Ekki má heldur gleyma skyndi­kaff­inu (oft­ast kallað Neskaffi) sem fyrst kom á mark­að­inn um 1940 og er til í mörgum og mis­mun­andi teg­undum.

Breytt kaffitíska

Um 1990 urðu miklar breyt­ingar í kaffi­drykkju­siðum. Nú var eng­inn maður með mönnum nema að eiga „alvöru“ kaffi­vél sem gæti töfrað fram gæða­kaffi og jafn­vel malað baun­irnar jafn­óðum og hitað mjólk útí kaffið. Tugir eða hund­ruð teg­unda slíkra véla komu á mark­að­inn, mis­jafnar bæði hvað varð­aði verð og gæði. Enn jókst svo sam­keppnin þegar hinar svo­nefndu Nes­presso vélar komu á mark­að­inn, þar var kaffið í formi síróps og margar bragð­teg­undir í boði. Loks komu púð­arnir, eða kodd­arnir eins og sumir kalla fyr­ir­bærið. Þar var kaffi­duftið í litlum poka, sem settur var í þartil­gerða vél, ýtt á takka og þá bun­aði kaffið í boll­ann. Gömlu kaffi­vél­arnar voru þó áfram á mark­aðnum þótt ýmsum þætti það heldur hall­æris­legt að bjóða uppá slíkan upp­á­hell­ing. Einn og einn hélt sig líka við hand­virku upp­á­hell­ing­ar­að­ferð­ina, vatnið hitað í katli og hellt yfir kaffi í trekt.

Ný gullöld

Þótt gömlu hefð­bundnu kaffi­vél­arnar hafi aldrei horfið og átt sína tryggu not­endur dróst sala þeirra mjög saman í flestum löndum á síð­asta ára­tug lið­innar aldar og allt fram til 2013. En tími þeirra var ekki lið­inn. Upp­á­hellt kaffi komst, ef svo má segja, aftur í tísku. Enginn veit bein­línis ástæð­una en ýmsir kaffi­drykkju­spek­ingar telja að margir séu hrein­lega orðnir leiðir á því að drekka kaffi­bland­aða mjólk, eins og sumir kalla vin­sæla kaffi­drykki. Margt ungt fólk vilji ein­fald­lega kaffi en ekki kaffi­bland. Hver svo sem ástæðan er er stað­reyndin sú að sala á hefð­bundnum upp­á­hell­ing­ar­vélum hefur víða um lönd auk­ist stór­lega á síð­ustu tveimur árum. Skrifari þessa pistils lagði leið sína í stóra raf­tækja­verslun í Kaup­manna­höfn fyrir nokkrum dögum. Þar taldi hann 58 mis­mun­andi gerðir kaffi­véla, rúmur helm­ingur þeirra hefð­bundnar upp­á­hell­inga­vélar. Samkvæmt tölum danskrar neyt­enda­stofu seld­ust sam­tals 220 þús­und kaffi­vélar í Danmörku í fyrra, það svarar til þess að tólfta hvert heim­ili í land­inu hafi eign­ast slíkt tæki. Af þessum 220 þús­und vélum voru tæp­lega 30 þús­und af gerð­inni Melitta.

Frétta­skýr­ingin birt­ist fyrst 20. sept­em­ber 2015. Hún er nú end­ur­birt í tengslum við hlað­varpsum­fjöllun um hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár