Meira landrými fer undir hvern íbúa höfuðborgarsvæðisins en nokkru sinni fyrr

Byggð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur þynnst veru­lega á und­an­förnum ára­tugum og nú fer meira land­rými undir hvern íbúa en nokkru sinni fyrr. Aðeins 35 íbúar bjuggu á hverjum hekt­ara lands árið 2012, sem er mjög dreifð byggð fyrir borg­ar­svæði, en árið 1985 voru 54 íbúar á hverjum hekt­ara.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu og sam­eig­in­legri stefnu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Höf­uð­borg­ar­svæðið 2040, sem kom út í vik­unni.

Íbúum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði um 70 þús­und frá árinu 1985 til árs­ins 2012 og gert er ráð fyrir því að á næstu 25 árum verði fjölg­unin 70 þús­und manns til við­bótar. Auk fólks­fjölg­unar sem spáð er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er gert ráð fyrir að Suð­vest­ur­hornið haldi áfram að vaxa, en þar hefur einnig verið fjölgun und­an­farin ár á meðan íbúa­fjöldi ann­arra lands­hluta hefur ýmist staðið í stað eða minnkað, að því er fram kemur í skýrsl­unni. Síðustu 25 ár hefur fjölgun fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu numið tæp­lega 90 pró­sentum af allri fólks­fjölgun. Gangi þessar spár eftir verða íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins farnir að nálg­ast 300 þús­und árið 2040.

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru sam­mála um að þess­ari fjölgun fólks verður að mæta án þess að bíla­um­ferð auk­ist í sama hlut­falli og án þess að óbyggt land verði brotið í sama mæli og gert hefur verið und­an­farna ára­tugi.

Frá árinu 1985 hafa 37,5 fer­kíló­metrar verið teknir undir íbúða­byggð, sem er álíka stórt land­svæði og Reykja­vík vestan Suð­ur­lands­vegar ásamt Sel­tjarn­ar­nesi.

[caption id="attachment_32945" align="alignnone" width="878"] Sam­an­burður milli áranna 1985 og 2012, skýr­ing­ar­mynd úr stefnu sveit­ar­fé­lag­anna.[/caption]

Þá kemur fram í skýrsl­unni að bíla­um­ferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vaxið hlut­falls­lega meira en íbúa­fjöldi síð­ustu ára­tuga. Fjöldi bíla var 67.500 árið 1985 en árið 2012 voru bíl­arnir orðnir 125.500 tals­ins. Það þýðir yfir 1,5 bíll á hverju heim­ili. Ef bílum fjölgar í sama hlut­falli og fólki munu 40 þús­und bílar bæt­ast við bíla­flot­ann til árs­ins 2040.

Lengd ferða hefur líka auk­ist eftir því sem mörk byggð­ar­innar hafa þan­ist út og hlut­fall ferða sem eru farnar með bíl eru með því hæsta sem finnst í borgum af sam­bæri­legri stærð á norð­lægum slóðum, eða um 75 pró­sent. Að sama skapi er hlutur almenn­ings­sam­gangna lít­ill í alþjóð­legum sam­an­burði, aðeins fjögur pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár