Facebook stýrir því hvað birtist í fréttaveitunni þinni

Það fyrsta sem þú sérð þegar þú opnar Facebook er alls ekki háð til­viljun, heldur er það byggt á flóknum reikni­að­ferðum. Tengsl þín við eig­anda færsl­unnar, vin­sældir hans og vin­sældir færsl­unnar sjálfrar eru meðal þeirra þátta sem skipta máli. Þetta er gert til þess að þú sjáir alltaf eitt­hvað sem for­rit­arar Facebook hafa reiknað út að þér þyki áhuga­vert.

Fréttaveitan á að sýna þér það sem þú vilt sjá


Eru mynd­irnar af prjóna­verk­efnum Siggu frænku hættar að birt­ast í frétta­veit­unni þinni? Og er skóla­bróð­ir­inn sem deildi alltaf allt of mikið af upp­lýs­ingum skyndi­lega horf­inn? Ástæðan gæti verið sú að þú hefur ekki lækað, deilt eða skrifað athuga­semdir við færsl­urnar þeirra og þau eru því hætt að birt­ast í frétta­veit­unni þinni. Facebook hefur reiknað út að þú hafir ekki áhuga á að lesa þetta. Reikni­að­ferðir Facebook skrá hvað þú smellir á, lækar, deilir eða skrifar athuga­semdir við. Með tíð og tíma hverfa þeir vinir úr frétta­veit­unni hjá þér sem þú smellir aldrei á. Þannig eru líkur á að vinir og vanda­menn sem þú ert ósam­mála hverfi úr frétta­veit­unni og þú sjáir ein­ungis efni sem þú ert sam­mála og líkar við. Það er mark­mið Facebook að sníða frétta­veit­una eftir þínu höfði en þar eiga að vera hlutir sem þú hefur gaman af því að sjá svo upp­lifunin sé góð og þú viljir halda áfram að fara á Facebook.

Allt að 15.000 nýjar færslur á dag


Þessar reikni­að­ferðir hafa verið gagn­rýndar. Þeir sem mæla gegn þeim hafa til að mynda bent á að það gæti eitt­hvað birst í frétta­veit­unni sem not­and­inn hefur áhuga á að sjá, þrátt fyrir að hann sjái ekki ástæðu til þess að læka, deila eða skrifa athuga­semd við færsl­una. Talsmenn Facebook bera fyrir sig að ef ekki væri fyrir reikni­að­ferð­irnar og allt birt­ist í frétta­veit­unni í tíma­röð gæti not­and­inn misst af ein­hverju áhuga­verðu því það sé ógjörn­ingur að fylgj­ast með öllu sem birt­ist þar, slíkt sé magnið. Að með­al­tali birt­ast 1.500 nýjar færslur Facebook-not­anda þegar hann skráir sig inn en ef hann á marga vini geta færsl­urnar farið upp í 15 þús­und á dag.

Tengsl, tími og vinsældir vega þyngst


Facebook hefur frá upp­hafi frétta­veit­unnar stjórnað því hvað verður sýni­legt. Í fyrstu var um smá­vægi­legar fín­still­ingar að ræða þar sem myndir fengu til að mynda meira vægi en stöðu­upp­færslur. Þegar fyr­ir­tækjum var boðið að stofna fylgj­enda­síður síðla árs 2007 urðu reikni­að­ferð­irnar flókn­ari og hafa síðan verið í stöðugri end­ur­skoðun. Þrír þættir hafa síðan þá skipt mestu máli þegar kemur að því að ákvarða hvað birt­ist í frétta­veitu hvers not­anda fyrir sig:

  • Tengsl við eig­anda færsl­unnar – Líklegra er að not­and­inn sjái færslur frá ein­hverjum sem er honum nátengdur. Tíðni læka, athuga­semda og einka­skila­boða eru meðal þess sem getur varpað ljósi á tengsl Facebook-not­enda, svo ekki sé minnst á þegar við­kom­andi hefur skráð ein­hvern sem fjöl­skyldu­með­lim sinn eða maka. Því tengd­ari sem not­and­inn er eig­anda færsl­unnar, því lík­legra er að hún birt­ist í frétta­veit­unni.

  • Vin­sældir færsl­unnar – Í upp­hafi birt­ast færslur á veggjum lít­ils hlut­falls Facebook-vina eig­anda færsl­unnar. Það er í höndum þess­ara vina að ákvarða hvort hún fái útbreiðslu eða ekki. Ef hún er vin­sæl í upp­hafi fær hún meiri útbreiðslu og mun birt­ast í fleiri frétta­veitum. Þannig er lík­legt að vin­sælar færslur sem hafa fengið mörg læk, deil­ingar og athuga­semdir fari víða. Vin­sældir eig­anda færsl­unnar skera einnig úr um hvort hún fái dreif­ingu en þannig er lík­legra að fólk sjái færslu frá eig­anda sem er vanur að birta færslur sem njóta vin­sælda.

  • Tími – Loks skiptir tím­inn máli. Líklegra er að sjá nýjar færslur en gamlar. Vinsælar færslur eru lík­legar til að birt­ast í frétta­veit­unni en það skiptir einnig máli að þær séu nýjar. Þannig eru nýjar og vin­sælar færslur lík­leg­astar til að birt­ast.


Facebook telur þessar aðferðir nauð­syn­legar til að flokka og aðgreina færslur um allt og ekk­ert. Þetta verður til þess að vinir hverfa úr frétta­veit­unni þinni – ásamt fylgj­enda­síðum fyr­ir­tækja og ann­arra sem sumir hverjir hafa eytt tíma og fjár­munum í að byggja upp stóran hóp fylgj­enda.

Frí markaðssetning?


Í árdaga Facebook sáu mörg fyr­ir­tæki sér leik á borði. Þarna var kom­inn vett­vangur til að kynna vörur og þjón­ustu með litlum sem engum til­kostn­aði. Fjölmörg fyr­ir­tæki, þeirra á meðal íslensk, nýttu tæki­færið og söfn­uðu hópi fylgj­enda. Facebook-leikir þar sem fólk var fengið til að læka Facebook-síður urðu gíf­ur­lega vin­sælir.

Fólk gat þannig kom­ist í lukku­pott, unnið konfekt­kassa, spjald­tölvur og allt þar á milli. Sum fyr­ir­tæki tóku einnig upp á því að láta nýja fylgj­endur deila síð­unni til að eiga mögu­leika á vinn­ingi. Þannig birt­ust þau í frétta­veitum hjá vinum fylgj­end­anna og dreif­ing síðna þeirra varð ennþá meiri. Slík dreif­ing er óheimil sam­kvæmt not­enda­skil­málum Facebook.

Sífellt færri aðdáendur sjá færslur


Facebook hefur frá árinu 2011 boðið not­endum sínum að greiða fyrir dreif­ingu efnis. Mörg fyr­ir­tæki keyptu aug­lýs­ingar til að fá fylgj­endur að fylgj­enda­síðum sínum. Þau stóðu í þeirri trú að þau hefðu þar með öðl­ast beina og tak­marka­lausa leið til að nálg­ast fylgj­endur sína. Facebook-frétta­veitan er hins vegar ekki svo ein­föld því eins og komið hefur fram eru þús­undir und­ir­liggj­andi þátta sem ákvarða hvað birt­ist í frétta­veitu hvers og eins.

Þannig hafa þeir sem halda úti fylgj­enda­síðum alls ekki beinan aðgang að fylgj­endum sínum. Á tveimur árum hefur hlut­fall fylgj­enda sem fær færslur í frétta­veitu sína frá fylgj­enda­síðum sem það hefur lækað farið úr 16 pró­sentum niður í sex pró­sent. Þannig má gera ráð fyrir að það sem deilt er á fylgj­enda­síðum nái ein­ungis til sex pró­senta fylgj­enda, nema auð­vitað ef greitt er fyrir dreif­ingu. Facebook segir að þetta stafi af því að not­endur séu farnir að fylgj­ast með fleiri fylgj­enda­síðum. Það sé meðal ann­ars ástæða þess að mið­ill­inn varð að end­ur­skoða reikni­að­ferð­irnar enn á ný sem hefur ýtt undir minnk­aða útbreiðslu. Það sé sam­spil þess að fólk sé að fylgj­ast með fleiri síðum og breyt­ingum í reikni­að­ferðum.

Eina lausnin sem Facebook gefur á þessu vanda­máli er að ráð­leggja stjórn­endum fylgj­enda­síðna að birta færslur sem muni njóta vin­sælda og að greiða fyrir sýni­leika. Sumir hafa gagn­rýnt Facebook harð­lega fyrir þetta, til að mynda sendi banda­rískt fyr­ir­tæki upp­sagn­ar­bréf til Facebook þar sem það sagð­ist ætla að eyða síðu sinni með 70 þús­und fylgj­endum í mót­mæla­skyni við minnk­aða útbreiðslu færslna. Meðal þeirra sem eru sér­lega ósáttir með minnk­aða útbreiðslu eru sam­tök, líkn­ar­fé­lög, skólar og aðrir sem halda úti Facebook-síðum án þess að hafa hagn­að­ar­sjón­ar­mið að mark­miði. Minnk­andi útbreiðsla þýðir að þær síður tapa vett­vangi sínum til að dreifa upp­lýs­ingum til fylgj­enda sinna þar sem stjórn­endur þeirra hafa oft ekki tök og/eða vilja til að greiða fyrir dreif­ingu færslna.

Stór hópur fylgjenda gæti minnkað útbreiðslu


Fyr­ir­tæki og aðrir sem halda úti fylgj­enda­síðum hafa margir hverjir lagt mikið upp úr því að safna stórum hópi fylgj­enda. Stór fylgj­enda­hópur þýðir samt sem áður ekki að útbreiðsla verði meiri. Ef fylgj­end­urnir hafa ekki áhuga á því efni sem fyr­ir­tækið birtir minnkar útbreiðsla færslna og hún birt­ist í frétta­veitu sífellt færri fylgj­enda.

Virkni fylgj­enda skiptir sköpum varð­andi dreif­ingu færslna. Sömu lög­mál gilda um fylgj­enda­síður og venju­lega Facebook-not­endur þar sem dreif­ing færslna fer eftir því hversu mik­illa vin­sælda fyrri færslur nutu og einnig hvernig þeir sem fyrstir sáu færsl­una brugð­ust við henni. Ef færslan fær engin við­brögð í upp­hafi hættir hún að breið­ast út. Fylgj­endur sem hafa engan áhuga á því efni sem deilt er stuðla því að minni dreif­ingu en ef þeir fylgd­ust ekki með síð­unni en þannig gæti verið að færslan birt­ist ekki á veggjum þeirra sem hafa raun­veru­legan áhuga á efni síð­unnar. Því getur borgað sig að velja hóp fylgj­enda af kost­gæfni – því virk­ari fylgj­endur, því meiri útbreiðsla.

*Greinin er hluti af loka­verk­efni höf­undar í blaða- og frétta­mennsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár