Fjórtán daga nýgengi landamærasmita er margfalt hærra en í samfélaginu almennt

Sér­fræð­ingar hjá sótt­varna­lækni eru að skoða hvernig megi koma upp­lýs­ingum um fjölda smita á landa­mærum á fram­færi við almenn­ing með nýjum hætti. For­rit­ari segir birta útreikn­inga yfir­valda um nýgengi smita þar valda rugl­ingi í umræð­unni.

Þrátt fyrir að smitin á landamærunum séu að jafnaði bara nokkur á dag eru þau hlutfallslega miklu mun fleiri en greinst hafa innanlands að undanförnu.
Þrátt fyrir að smitin á landa­mær­unum séu að jafn­aði bara nokkur á dag eru þau hlut­falls­lega miklu mun fleiri en greinst hafa inn­an­lands að und­an­förnu. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt töl­fræði­vef yfir­valda um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er 14 daga nýgengi smita á landa­mærum lægra en nýgengi smita inn­an­lands þessa dag­ana. Í dag er staðan þannig að 14 daga nýgengi inn­an­lands­smita stendur í 21,5 og nýgengi landamæra­smita í 5,7 á hverja 100 þús­und íbúa á Íslandi.

Raun­veru­leg tíðni smita í þeim litla hópi fólks sem kemur til Íslands þessa dag­ana er þó miklu mun hærri en inn­an­lands, en sú nið­ur­staða kemur skýrt fram ef þeim smitum sem grein­ast í landamæra­skimunum er miðuð við hverja 100 þús­und far­þega sem til lands­ins koma, en ekki hverja 100 þús­und íbúa á Íslandi.

Ef stuðst er við þá nálgun var 14 daga nýgengi smita á landa­mærum Íslands yfir 1.000 á hverja 100 þús­und far­þega í upp­hafi þessa mán­aðar. Nýgengið er á nið­ur­leið, eftir að hafa farið yfir 1.500 á hverja 100 þús­und komu­far­þega seinni part­inn í mars og farið yfir 3.000 á hverja 100 þús­und far­þega er það var hæst í októ­ber í fyrra.

Már Örlygs­son for­rit­ari hefur und­an­farna mán­uði tekið töl­fræði um landamæra­smitin saman með þessum hætti og birt opin­ber­lega – en hann færir rök fyrir því að þegar talað er um nýgengi landamæra­smita eigi að miða fjölda smita sem grein­ast niður á þann breyti­lega fjölda far­þega sem koma til lands­ins – en ekki íbúa á Íslandi, til að fá ein­hverja gagn­lega nið­ur­stöðu.

„Fólk hefur almennt ekk­ert rosa­lega djúpan skiln­ing á því hvernig þetta er reiknað út. Það er alveg eðli­legt að venju­legt fólk ruglist bara á þessu, því þetta er pínu rugl­andi,“ segir Már í sam­tali við Kjarnann, en honum finnst vert að yfir­völd end­ur­skoði upp­lýs­inga­gjöf sína um nýgengi smita á landa­mær­unum til þess að umræðan ruglist ekki.

Sérfræðingar hjá sóttvarnalækni kanna möguleika á að birta gögn með svipuðum hætti

Kjarninn kann­aði hvort yfir­völd væru að skoða að breyta upp­lýs­inga­gjöf sinni hvað þetta varðar. Sú er raunin.

„Það hefur verið til skoð­unar hjá okkur að birta talna­efni tengt landa­mær­unum með svip­uðum hætti og þarna er lýst,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoð­ar­maður land­læknis, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn.

[adspot]

„Málið er núna á borði sér­fræð­inga hjá sótt­varna­lækni sem eru að kanna mögu­leika á að birta töl­urnar með þessum hætti,“ segir enn­fremur í svari Kjartans Hreins.

Ekki gagnlegt að setja smit á landamærum í samhengi við fjölda íbúa á Íslandi

Sjálfur seg­ist Már hafa séð dæmi þess, í umræðum um sótt­varna­að­gerðir að und­an­förnu, að fólk horfi á það lága nýgengi smita á landa­mærum sem birt­ist á upp­lýs­inga­vef stjórn­valda og haldi því fram það sé lítil ástæða til þess að vera með stífar sótt­varnir á landa­mær­unum – nýgengi smita þar sé svo lítið.

Á meðan er raunin sú að hlut­falls­leg tíðni smita hjá komu­far­þegum til lands­ins er langt umfram tíðni greindra veirusmita í sam­fé­lag­inu almennt.

„Talan á landa­mær­unum er ein­göngu tækni­lega rétt en á engan hátt gagn­leg,“ segir Már og tekur dæmi:

Ef 10 far­þegar í 5.000 manna far­þega­hópi grein­ast smit­aðir í landamæra­skimun kemur það verr út fyrir 14 daga nýgengi smita á landa­mærum eins og stjórn­völd birta upp­lýs­ing­arnar en ef 9 smit grein­ast í einni flug­vél sem kemur til lands­ins með 20 far­þega.

Af þessu ræður Már að upp­lýs­ing­arnar um nýgengi smita á landa­mær­unum sem yfir­völd halda að almenn­ingi hafi ekki gert mikið til að upp­lýsa, heldur þvert á móti. Á þetta hefur hann reynt að benda, en fund­ist eins og hann tali fyrir daufum eyrum.

Sem áður segir eru sér­fræð­ingar hjá sótt­varna­lækni þó nú að skoða mögu­leik­ann á að birta tölur með svip­uðum hætti og Már hefur gert að und­an­förnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár