Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Prag

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Við hlust­uðum á Iron Maiden í sjö tíma streit í nótt. Við hlust­uðum bara á góðu lögin og aldrei á sama lagið tvisvar. Þegar klukku­tími var á áfanga­stað stöðv­aði Robert rút­una til að leggja sig. Þá vorum við allir orðnir fullir og sumir mjög. Baldur fór í koju klukkan fimm, Halli sirka klukku­tíma síðar og ætli klukkan hafi ekki verið sjö þegar Böbbi var búinn að bursta tenn­urnar og datt inn í rút­una. Það var nú ekk­ert mjög tign­ar­legt en djöf­ull var það fyndið. Ótrúlegt en satt, þarna vorum við hvorki búnir að hlusta á Number of the Beast né Run to the Hills. Maiden. Bara Maiden.

Ég rumskaði svo þegar Robert ræsti bíl­inn til að klára akst­ur­inn. Ég veit nákvæm­lega ekk­ert hvað klukkan var þá og svo vakn­aði ég bara klukkan þrjú. Flexi hafði skutlað sér eitt­hvað niður í bæ, sem og Robert sem er fæddur hér og upp­al­inn. Hann gerir þó ekki mikið með þá stað­reynd og verður alltaf frekar foj þegar þetta ber á góma. Hann lítur alls ekki út eins og Tékki og hagar sér heldur ekki þannig. Svo ég alhæfi nú aðeins. Ég hef ekk­ert séð af Prag í þetta skiptið nema húsa­sundið þar sem rútan er. Og kem svo sem ekki til með að gera það heldur, klukkan er 21.52, Elu­veitie á fyrsta lagi og við áætlum brott­för klukkan eitt. Alveg týpískur túr­dagur þar sem maður sér ekk­ert nema rútu og skítugan tón­leika­stað. Þannig er það nú bara.

[caption id="attachment_13150" align="alignnone" width="3264"] Bibbi í sím­anum. Hann er búinn að taka við af hund­inum, sem þarfasti þjónn­inn.[/caption]

Við hengsl­uð­umst eitt­hvað fram eftir degi. Allt var með seinni skip­unum, stóra rútan skil­aði sér gríð­ar­seint sökum langs akst­urs og ekk­ert var klárt í sánd­tékk fyrr en allt of seint. Rúss­arnir taka sinn tíma dag hvern og sá tími er helst til langur. Sér­stak­lega á dögum sem þessum þar sem tím­inn er eng­inn. Við lentum því í gríð­ar­legu tíma­hraki og ekki hjálp­aði til að sviðs­mað­ur­inn var hálf­viti. Sumir eru ekki starfi sínu vaxnir, aðrir eru leið­in­legir, en þegar menn eru dónar, van­hæfir og drullu­sokkar hef ég enga samúð. Hálfviti, það er það sem hann var. Við stigum því af svið­inu um leið og opnað var inn í sal og þá var varla búið að tengja allar snúrur.

En þá fór Skálmaldar-vélin í gang. Við klæddum okkur í fötin, börðum í axlir hvers ann­ars og á svið. Og þetta gigg átum við. Salurinn alger­lega pakk­fullur og eng­inn átti séns. Flexi leysti þetta svo á sínum enda eins og Flexi gerir og allt sánd­aði eins og ljónið. Og krá­dið, maður minn. Tékkar vita alveg hvernig skemmtun fer fram. Allir í rosa­legum gír og hvert ein­asta lag ger­sam­lega steinlá. Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í hljóm­sveit.

Og Tékkar eru fal­legir. Menn­irnir eru svo sem bara eins og menn eru, en kon­urnar hljóta að vera geim­verur. Þarna stóðu þær bara fyrir framan sviðið, lítt til hafðar, skæl­bros­andi hænur í holdum sem fylltu út í umbúð­irnar. Blóð­heitar, sveittar og til í að skemmta sér. Þetta var allt svo gott.

Giggið var alveg svaða­lega heitt og ég varð ofboðs­lega sveittur. Beneath-svita­böndin sem ég bísaði af strák­unum á Rokkjötnum komu sterk inn og ég strauk af enn­inu á mér með vinstri í hvert skipti sem ég spil­aði opinn streng. Eftir að hafa pakkað í snatri þok­uðum við okkur svo í sturt­una einn af öðrum. Hún var ljóm­andi, reyndar hálf­stífluð svo sturtu­botn­inn tók ekki við. Þetta varð því hálf­gert örbað en ég reyndi að skúra mig eins og ég mest mátti. Og það af ástæðu.

Fyr­ir­tækið sem við leigjum rút­una af er stað­sett hér í Prag og þar sem svo hitti á að við kæmum hér laust eftir miðjan túr létu þau sig ekki muna um að koma og skipta á rúmunum okkar. Þvílík himna­send­ing eftir allt sem rúm­fötin hafa þurft að drekka í sig á síð­ustu vikum. Ég get hrein­lega ekki beðið eftir því að skoppa þarna upp í á eftir, brak­andi hreinn í enn hreinna rúm. Ég ætla að hlaða ein­hverju af flakk­ar­anum hans litla bróður yfir á tölv­una mína og gera hrein­lega í því að halda mér vak­andi eftir að við leggjum af stað. Njóta. Litlu hlut­irnir eru svo óskap­lega mik­il­vægir.

Halli er hérna að deila út íslensku nammi. Þetta er nú maður sem auð­velt er að þekkja. Ég finn hell­ing fyrir því hversu und­ar­legt er að hafa Gunna ekki hér með okkur, en það er hins vegar alls ekk­ert und­ar­legt að hafa Halla. Hann er búinn með þrjú gigg og það er bara eins og ekk­ert sé sjálf­sagð­ara. Óskap­lega er gott að hafa svona fólk nálægt sér sem leysir það sem út af stendur.

Ég spái rólegu kvöldi í kvöld, en þessar spár eiga það nú til að splundr­ast. Ég not­aði tæki­færið þegar ég hreins­aði út úr koj­unni minni áðan fyrir skipti og tók til í dót­inu mínu. Nú er stóra hólfið í bak­pok­anum orðið óhreinatau en litla hólfið er undir hreint. Sokk­arnir sem ég keypti í Barcelona eru allir búnir og það er und­ar­legt. Ég er þónokkuð viss um að ég not­aði þá alls ekki alla sjálfur. Þessi mistería leys­ist víst senni­lega aldrei.

Á morgun hefst þriggja daga Póllands-leggur og hann er með örlítið öðru sniði en restin. Þannig túra þrjú þar­lend bönd með okkur og við spilum þá fjórðu í röð­inni af sex. Ég hlakka til, mig grunar að þetta geti orðið skemmti­legt. En ég spái því að við fáum alls ekki sánd­tékk, sem er svo sem í lagi því hlé milli banda verður 40 mín­útur.

Klukkan er 22.23, við erum pakk­aðir og klárir í brott­för. Góður dagur og allt eins og það á að vera.

Meist­ara­legt dags­ins: Iron Maiden.

Sköll dags­ins: Flexi seg­ist vera búinn að fá leið á Manager.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár