Fundu lífsýni úr hryðjuverkamanni á flótta

Lífsýni úr eina hryðju­verka­mann­inum sem komst lífs af úr Par­ís­ar­árás­unum í nóv­em­ber fannst í íbúð sem lög­regla réðst inn í á þriðju­dag. Hann var mögu­lega annar tveggja sem sluppu úr íbúð­inni eftir skot­bar­daga.

Salah Abdeslam, grun­aður hryðju­verka­maður úr árás­unum í París í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, var mögu­lega meðal þeirra sem komust undan lög­regl­unni í Belgíu í skot­bar­daga í þess­ari viku. Belgíska lög­reglan réðst inn í íbúð í Brussel á þriðju­dag og reyndi að hand­sama þá sem þar voru inni. Skot­bar­dagi upp­hófst sem end­aði þannig að einn grun­aður íslamskur öfga­maður var skot­inn til bana.

Nú hefur verið stað­fest að líf­sýni úr Abdeslam fannst í íbúð­inni. Fjöl­miðlar í Belgíu eru mis­var­kárir í því að túlka það, sumir segja það lík­legt að Abdeslam hafi verið einn þeirra sem komst undan, en aðrir segja aðeins að með því stað­fest­ist að hann hafi verið í íbúð­inni á síð­ustu vikum.

Adbeslam er 26 ára, fædd­ist í Brussel, er franskur rík­is­borg­ari af mara­kóskum upp­runa. Hann er tal­inn hafa átt þátt í hryðju­verka­árás­unum sem urðu 130 að bana í París í nóv­em­ber. Lögregla telur að hann hafi mögu­lega átt að gera sjálfs­morðsárás, en hafi hætt við. Hann er tal­inn hafa fylgt þremur sjálfs­morðs­sprengju­mönnum að Stade de France leik­vell­inum. Bróðir hans sprengdi sig í loft upp á bar á Boulevard Voltaire í árás­unum.

Abdeslam hefur verið á flótta frá því að hryðju­verka­árás­irnar voru gerðar í nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár