Blaðamaður The Guardian segir ummæli Bjarna vera kolröng

Blaða­maður The Guardian segir það af og frá að umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar með eignir í Sjóði 9 hafi verið til að koma höggi á hann og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þvert á móti hafi umfjöll­un­inni verið flýtt til að hafa minni áhrif á kosn­ingar.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jon Henley, blaða­maður breska blaðs­ins The Guardian, sem vann umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra með eignir í Sjóði 9 í kringum hrunið í sam­starfi við Stundina og Reykja­vík Media, segir það alrangt að umfjöll­unin hafi verið gerð til að koma höggi á Bjarna og Sjálf­stæð­is­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­inga.

[links]Upp­lýs­ing­arnar sem umfjöll­unin byggir á hafi komið til The Guardian snemma í sept­em­ber í stóru gagna­magni úr banka­skjölum og tölvu­póstum. Hann hafi í kjöl­farið haft sam­band við íslenska starfs­bræður sína 5. sept­em­ber og í kjöl­farið hafi þeir byrjað að vinna úr gögn­unum. Ákveðið hafi verið að flýta birt­ingu umfjöll­un­ar­innar vegna til þess að hafa minni áhrif á þær kosn­ingar sem fram undan eru á Íslandi. Það hafi verið gert að und­ir­lagi íslensku blaða­mann­anna sem komu að vinnslu hennar. Þetta kemur fram í bréfi sem Henley sendi mbl.is.

Segir ummæli Bjarna röng

Tilefni bréfa­send­ing­ar­innar var að Bjarni sagði í frétt á mbl.is skömmu eftir að umfjöll­unin var birt að til­gangur hennar væri aug­ljós­lega að koma höggi á sig og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann sagði enn fremur að Henley hefði sagt sér að „menn hafi legið á þess­um gögn­um í nokkr­ar vik­ur og eru að koma með þau í dag. Það eru til­vilj­an­ir í þessu.“

[adspot]Þessu hafnar Henley alfarið í bréfi sínu. Þar segir hann meðal ann­ars: „„Ég vil að það sé á hreinu að þetta er al­gjör­lega rangt. Í fyrsta lagi er það aug­ljós­lega út í hött að gefa það í skyn að The Guardian hafi ein­hverra póli­tískra hags­muna að gæta í ís­lensku kosn­ing­un­um eða myndi nokk­urn tím­ann reynt að hafa áhrif á þær.[...]„For­sæt­is­ráð­herr­ann ger­ir sér kannski ekki grein fyr­ir því að það er mjög tíma­frekt að vinna úr þús­und­um ra­f­rænna skjala. Þegar við hóf­umst handa hafði ég í hyggju að birta þetta um tveim­ur mán­uðum síðar, kannski snemma í nóv­em­ber. Okk­ur lá ekk­ert á því við höfðum upp­lýs­ing­arn­ar út af fyr­ir okk­ur.“

Segir íslensku blaðamennina hafa viljað draga úr áhrifum á kosningarnar

Henley segir í bréf­inu að eftir að rík­is­stjórnin sprakk 15. sept­em­ber og boðað var til kosn­inga 28. októ­ber þá hafi strax orðið aug­ljóst að umfjöll­unin var orðin meira aðkallandi en áður. „Ég vildi vinna á mjög vand­aðan og ná­kvæm­an hátt úr gögn­un­um og þótti best ef þau yrðu birt vinnu­vik­una sem hófst 16. októ­ber eða jafn­vel vik­una á eft­ir.[....]En starfs­bræður mín­ir frá Íslandi töldu að með því að birta frétt­ina svo skömmu fyr­ir kosn­ing­ar myndi það hafa óæski­leg áhrif á kosn­ing­arn­ar; þeir vildu birta þetta eins fljótt og mögu­legt var og í síð­asta lagi í lok vik­unn­ar sem hófst 2. októ­ber. Þannig að í stað­inn fyr­ir að vilja fresta birt­ingu frétt­ar­inn­ar þar til síð­asta föstu­dag til að valda for­sæt­is­ráð­herr­an­um og flokkn­um sem mest­um skaða ákváðum við að flýta birt­ing­unni um þó nokkr­ar vik­ur til draga úr skað­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár