Bjarni: Dylgjað um að ég hafi misnotað stöðu mína og stundað innherjasvik

Bjarni Bene­dikts­son seg­ist ekki hafa búið yfir trún­að­ar­upp­lýs­ingum þegar hann seldi hluta­bréfi og eign í Sjóði 9. Um sé að ræða alvar­legar ásak­anir sem í felist dylgjur um að hann hafi mis­notað stöðu sína og stundað inn­herja­svik. Hvort tveggja sé rangt.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefur birt yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni vegna umfjöll­unar um sölu hans á eignum í Sjóði 9 sama dag og neyð­ar­lögin voru sett, 6. októ­ber 2008. Þar segir Bjarni að látið sé að því liggja í fréttum að hann hafi búið yfir trún­að­ar­upp­lýs­ingum um stöðu fjár­mála­kerf­is­ins, eða Glitnis, ann­ars vegar þegar hann seldi hluta­bréfin, og hins vegar þegar hann seldi eft­ir­stöðvar eignar minnar í Sjóði 9 dag­ana fyrir fall bank­ans. „Þetta eru alvar­legar ásak­anir. Hér er verið dylgja um að ég hafi mis­notað stöðu mína og stundað inn­herja­svik. Hvort tveggja er rangt,“ segir Bjarni í stöðu­upp­færsl­unni.

[links]Þar segir hann einnig að hrun fjár­mála­kerf­is­ins, sem olli hrika­legu áfalli fyrir íslenskan efna­hag, hafi þegar verið skoðað ofan í kjöl­inn. „Okkur Íslend­ingum hefur tek­ist vel að byggja landið okkar upp að nýju. Við þurfum að beina kröftum okkar að upp­bygg­ingu og nýta þau fjöl­mörgu tæki­færi til bættra lífs­kjara. Kosn­ing­arnar framundan eru tæki­færi til þess.“

Stöðu­upp­færslu Bjarna í heild sinni er hægt að lesa hér að neðan:

„Í til­efni af fréttum um sölu á hluta­bréfum í Glitni á árinu 2008 og í Sjóði 9 dag­ana fyrir fall bank­anna vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi:

Öll mín við­skipti við Glitni banka voru eðli­leg. Þau hafa stað­ist ítrek­aða skoðun. Það er aðal­at­riði máls­ins.

Eins og áður hefur komið fram seldi ég hluta­bréf mín í Glitni árið 2008. Sölu­and­virðið var geymt áfram í bank­anum, fyrst og fremst í Sjóði 9. Ég seldi smám saman þá eign yfir árið og færði að hluta í aðra sjóði og á inn­láns­reikn­inga hjá bank­anum.

Látið er að því liggja í fréttum í dag að ég hafi búið yfir trún­að­ar­upp­lýs­ingum um stöðu fjár­mála­kerf­is­ins, eða Glitnis, ann­ars vegar þegar ég seldi hluta­bréfin, og hins vegar þegar ég seldi eft­ir­stöðvar eignar minnar í Sjóði 9 dag­ana fyrir fall bank­ans. Þetta eru alvar­legar ásak­anir. Hér er verið dylgja um að ég hafi mis­notað stöðu mína og stundað inn­herja­svik. Hvort tveggja er rangt.

Allt árið 2008 geis­aði alþjóð­leg fjár­málakrísa sem Ísland fór ekki var­hluta af. Í upp­hafi árs mistók­ust til­raunir íslensku bank­anna við að end­ur­fjár­magna skuld­bind­ingar og hluta­bréfa­verð lækk­aði ört. Þessi staða varð mér til­efni til grein­ar­skrifa í febr­ú­ar­mán­uði 2008 með Illuga Gunn­ars­syni þar sem við vöktum sér­staka athygli á alvar­leika máls­ins og komum með til­lögur til úrbóta. Við und­ir­bún­ing grein­ar­skrif­anna áttum við sam­töl við fjöl­marga sér­fræð­inga innan og utan fjár­mála­kerf­is­ins, sem einkum sneru að því til hvaða ráð­staf­ana mögu­legt væri að grípa til að koma í veg fyrir tjón. Tillögur okkar mót­uð­ust af þessum sam­skiptum.

Nokkur atriði skipta hér mestu:

Í fyrsta lagi er rétt að vekja athygli á því að 29. sept­em­ber 2008 var til­kynnt að ríkið hygð­ist yfir­taka 75% í Glitni en tveimur vikum áður hafði Lehman Brothers bank­inn fallið. Engum gat dulist að upp var komin grafal­var­leg staða í íslenska fjár­mála­kerf­inu. Dagana frá yfir­lýs­ingu um yfir­tök­una og fram að setn­ingu neyð­ar­lag­anna, 6. októ­ber, voru mark­aðir á Íslandi í frjálsu falli.

Í öðru lagi er það rangt að ég hafi beðið um sölu á hlut mínum sama dag og neyð­ar­lögin voru sett, 6. októ­ber 2008. Hið rétta er að ég óskaði eftir því 2. októ­ber, eins og fram­komin gögn sýna, en upp­gjör tók 2-3 við­skipta­daga. Ég seldi í Sjóði 9 en keypti m.a. í sjóðum 5 og 7, sem voru áhættu­minni og geymdi pen­ing­ana áfram í bank­anum.

Í þriðja lagi vil ég að fram komi að ég, líkt og margir aðrir við­skipta­vinir bank­ans, var læstur í mörg ár með pen­inga í sjóði bank­ans.

Í fjórða lagi er látið að því liggja að ég hafi miðlað upp­lýs­ingum um störf Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) til starfs­manns bank­ans. Þetta á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Engum slíkum upp­lýs­ingum var miðlað enda bjó ég ekki yfir slíkum upp­lýs­ingum. Hins vegar mátti öllum vera ljóst að FME væri að vinna í mál­unum. Þetta er eftir að til­kynnt hafði verið um yfir­töku rík­is­ins á bank­anum. Það hefði verið ábyrgð­ar­laust ef menn hefðu ekki verið að róa öllum árum að því að bjarga málum í FME á þessum tíma og ekk­ert frétt­næmt við að ég hafi mögu­lega látið slík orð falla.

Í fimmta lagi liggur fyrir að Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis (RNA) fékk víð­tæk­ustu rann­sókn­ar­heim­ildir sem mögu­legt var. Öllum steinum var velt við. Sér­stak­lega var hugað að öllu því sem gerð­ist í aðdrag­anda hruns­ins. Um þetta allt er fjallað í skýrslu RNA. 
Þá tók slita­stjórn bank­ans öll við­skipti í aðdrag­anda hruns­ins til skoð­unar. Allt sem gerð­ist í aðdrag­anda falls bank­anna hefur því í tvígang verið rann­sakað. Engar athuga­semdir hafa nokkru sinni verið gerðar við við­skipti mín. Ég hef aldrei verið sak­aður, af öðrum en ákveðnum blaða­mönnum og ein­staka póli­tískum and­stæð­ingi, um að hafa gert eitt­hvað mis­jafnt.

Í sjötta lagi vil ég taka fram að ég tók ákvörðun fyrir mörgum árum um að segja mig frá öllum stjórn­ar­störfum fyrir fyr­ir­tæki og los­aði mig við öll hluta­bréf sem ég átti í þeim til­gangi að helga alla mína starfs­krafta for­ystu­hlut­verki í íslenskum stjórn­málum. Ég geri engan ágrein­ing við þá sem segja óvið­eig­andi að for­ystu­fólk í stjórn­málum stundi á sama tíma við­skipti. Ég hef sýnt það í verki hvernig ég tel best að gera skil þarna á milli.

Hrun fjár­mála­kerf­is­ins, sem olli hrika­legu áfalli fyrir íslenskan efna­hag, hefur verið skoðað ofan í kjöl­inn. Okkur Íslend­ingum hefur tek­ist vel að byggja landið okkar upp að nýju. Við þurfum að beina kröftum okkar að upp­bygg­ingu og nýta þau fjöl­mörgu tæki­færi til bættra lífs­kjara.

Kosn­ing­arnar framundan eru tæki­færi til þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár