Ríkisstjórnin veitir 50 milljóna aukafjármagn til Útlendingastofnunar vegna hælisleitenda

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að veita Útlend­inga­stofnun 50 millj­óna króna auka­fjár­magn strax til þess að bregð­ast við auknum fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra greindi frá þessu á Alþingi nú fyrir skömmu, en fjár­magnið er veitt að hennar frum­kvæði.

Ólöf gerði mál­efni hæl­is­leit­enda að umtals­efni í umræðum um fjár­lögin á Alþingi. Hún sagði nauð­syn­legt að „end­ur­skoða þær tölur“ sem eru í fjár­laga­frum­varp­inu núna hvað varðar mála­flokk­inn. „Ég bið um lið­sinni þings­ins,“ sagði Ólöf á þing­inu og sagði aug­ljóst að fjár­hæð­irnar sem gert er ráð fyrir að veitt verði til mála­flokks­ins séu í engu sam­ræmi við þörf­ina. „Við gátum með engu móti séð þær breyt­ingar sem hér hafa orðið.“

Nú þegar hafa 170 manns sótt um hæli hér á landi það sem af er árinu 2015, en allt árið í fyrra sóttu 175 manns um hæli, sagði Ólöf. Vegna þess­arar miklu aukn­ingar hefði með­ferð­ar­tími umsókna farið að lengj­ast aftur, en unnið hefur verið að því und­an­farin ár að stytta þennan tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár