Tekjufall hjá bankaræningjum

Tækni­legar fram­farir eru oft­ast taldar af hinu góða og gagn­ast öllum. Ekki er það þó algilt. Breyt­ingar í með­ferð fjár­muna hafa gert banka­ræn­ingja nær atvinnu­lausa. Í fyrra var gerð 1 til­raun til banka­ráns í Danmörku, þær voru 237 árið 1992.

Tímarnir hafa sannarlega breyst frá því að Olsen Banden var og hét.
Tímarnir hafa sann­ar­lega breyst frá því að Olsen Banden var og hét. Mynd: Skjáskot úr kvikmynd frá 1969

Upp með hendur, niður með brækur ellegar ég slæ þig í rot, sagði banka­ræn­ing­inn Svarti-Pétur í Bíólagi Stuð­manna. Fjár­öfl­un­ar­ferð Péturs end­aði í Húsa­felli og bank­inn end­ur­heimti féð, segir í þessu lagi sem flestir þekkja. Þetta var nú allt í þykjust­unni eins og sagt er og fékk far­sælan endi, nema fyrir Svarta- Pétur. Bankarán eru ekki óþekkt fyr­ir­bæri hér á Íslandi og sum þeirra hefur aldrei tek­ist að upp­lýsa. Ekki enn í það minnsta.

Árum saman voru banka­rán nán­ast dag­legt brauð í Danmörku. Árið 1992 voru framin þar 237 banka­rán, sem sé eitt rán á dag alla þá daga árs­ins sem bankar í land­inu voru opnir. Bankarán voru svo algeng að þau þóttu vart frétt­næm, nema um væri að ræða mikla fjár­muni, eða vopnum hefði verið beitt. Fyrir nokkrum árum spurði danskt viku­rit fólk á förnum vegi hvað því dytti fyrst í hug þegar orðið banka­rán væri nefnt. Flestir svör­uðu „ungur grímu­klæddur maður sem hrópar upp með hendur – þetta er rán, stekkur svo yfir afgreiðslu­borðið, neyðir gjald­ker­ann til að opna kass­ann og afhenda seðl­ana sem þar liggja“.

[adspot]

Bank­arnir beittu ýmsum aðferðum til að koma í veg fyrir að óprút­tnir náungar gætu hlaupið á brott með seðla­búntin. En þjófarnir kunnu líka sitt fag og tókst oft að sleppa með ráns­feng­inn. Stundum tókst lög­regl­unni að hafa hendur í hári þeirra en oft spurð­ist ekk­ert til pen­ing­anna sem rænt var og ekki heldur til þjóf­anna. Þótt þjófarnir næð­ust kannski um síðir tókst sjaldn­ast að end­ur­heimta féð.

Ávísanir, hraðbankar og kort

Lengi vel var engin önnur leið til að taka út pen­inga en að fara í bank­ann á afgreiðslu­tíma virka daga, iðu­lega frá kl. 9.15 til 16.00, með banka­bók­ina. Lokað á laug­ar­dögum og sunnu­dögum. Þeir sem ekki höfðu verið fyr­ir­hyggju­samir og tekið út skot­silfur virka daga, gátu lent í vand­ræðum. Síðar komu ávís­anir til sög­unnar, þær auð­veld­uðu lífið. Svo komu hrað­bank­arnir.

Fyrsti hrað­bank­inn var opn­aður í London í júní 1967. Hann var mjög frá­brugð­inn þeim hrað­bönkum sem við þekkjum í dag. Traustir við­skipta­vinir gátu fengið sér­stakt kort sem ein­ungis var hægt að nota í við­kom­andi banka. Þegar nota átti kortið, setti eig­and­inn það í „vél­ina“ líkt og gert er í dag. Ekki var hægt að velja upp­hæð, hún var fyr­ir­fram ákveðin af bank­anum. Þegar skrif­ari þessa pistils bjó í London á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar var upp­hæðin 15 sterl­ingspund. Einungis var hægt að taka einu sinni út á kortið í hvert skipti því vélin skil­aði ekki kort­inu. Það fékk eig­and­inn sent í pósti nokkrum dögum síðar.

Á síð­ustu tveimur ára­tugum síð­ustu aldar var þró­unin ör. Fyrstu greiðslu­kortin (kredit­kort) á Íslandi litu dags­ins ljós árið 1980, svo komu debet­kortin og ávís­anir hurfu að mestu leyti. Hrað­bank­arnir spruttu upp, ef svo má að orði kom­ast, og þar sáu fingra­langir mögu­leika á skjót­fegnum gróða. Engu skipti þótt hrað­banka­kass­arnir, sem oft voru utandyra, væru níð­þungir og ramm­lega festir og ættu að vera þannig að mjög erfitt væri að opna þá til að kom­ast í seðl­ana. Árið 2016 var 16 sinnum reynt að ræna hrað­banka með aðstoð sprengi­efnis eða þar sem öflug vinnu­tæki, t.d. vél­skóflur, komu við sögu. Þetta heyrir lík­lega sög­unni til, á síð­asta ári var ekki eitt ein­asta til­vik af þessu tagi í Danmörku. Þjófarnir hafa líka ýmis konar „hjálp­ar­tæki“ eins og yfir­lykla­borð og mynda­vélar. Þeir sem nota hrað­banka vita að þar er hvatt til að halda hendi yfir lykla­borð­inu þannig aðrir geti ekki séð lyk­il­orðið.

Mjög hefur dregið úr seðlanotkun

Breytt tækni (kortin, heima­bank­arnir og nú síð­ast síma­tæknin) hefur gert það að verkum að seðla­notkun hefur dreg­ist veru­lega saman.

Stór hópur fólks gengur aldrei með reiðufé á sér og eftir að kór­óna­veiran fór að herja á heims­byggð­ina hættu margar versl­anir að taka við reiðufé. Þessar breyt­ingar hafa þó ekki dregið úr áhuga óprútt­inna á að krækja í pen­inga. Alls kyns svindl á net­inu hefur stór­auk­ist, margir hafa látið lokk­ast af alls kyns gylli­boðum, um skjót­feng­inn gróða. Á tíma­bili voru ótrú­lega margir erf­ingjar mik­illa auð­æfa, einkum í Afríku, í vand­ræðum með að geyma pen­ing­ana eða koma þeim úr landi. Ríflegri umbun var lofað þeim sem tækju að sér að aðstoða erf­ingj­ann. En, sá greið­vikni þurfti hins vegar að veita ýmsar upp­lýs­ingar, korta­númer og þess háttar, áður en hægt yrði að ganga frá hlut­unum. Þetta er ein­ungis eitt dæmi um hug­mynda­flug svindlar­anna. Málum af þessu tagi fjölgar sífellt en „gam­al­dags“ banka­rán heyra nán­ast sög­unni til, að minnsta kosti í okkar heims­hluta.

Þau fimm stærstu

Danmörk var árum saman evr­ópu­meist­ari í bankaránum, algjör­lega í sér­flokki. Danir voru ekki stoltir af þessum „meist­aratitli“ en nú eru þeir dottnir niður í næst neðsta sætið sem þeir deila með fleiri þjóðum.

Hér á eftir er listi yfir fimm stærstu pen­inga­þjófn­aði í sögu Dan­merkur.

Í apríl árið 2008 létu fimm eða sex menn til skarar skríða hjá pen­inga­flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu Loomis í Glostrup, skammt frá Kaup­manna­höfn. Þeim tókst að kom­ast á brott með 62 millj­ónir danskra króna (1200 millj­ónir íslenskar). Upphæðin hefði getað orðið mun hærri hefðu ræn­ingj­arnir ekki misst marga kassa með seðlum í flýt­inum. Þeir töfðu fyrir lög­regl­unni með því að koma fyrir ein­hverju sem líkt­ist sprengjum og nagla­lykkjum, sem sprengja dekk. Fjórir menn hlutu dóma og þeir fengu sjö til tíu ára fang­elsi. Einungis lít­ill hluti pen­ing­anna sem stolið var komu í leit­irnar.

Í ágúst árið 2008 var framið vel und­ir­búið rán hjá pen­inga­flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu Dansk Vær­di­håndter­ing í Brøndby fyrir vestan Kaup­manna­höfn. Ræn­ingj­arnir höfðu stolið tíu sorp­flutn­inga­bílum sem þeir lögðu þvers á umferð­ar­götum og kveiktu í. Nagla­lykkjum höfðu þeir líka stráð á göt­urnar til að tefja fyrir lög­regl­unni. Lög­reglan hafði veður af að eitt­hvað stæði til en eigi að síður tókst ræn­ingj­unum að kom­ast á brott með 60 millj­ónir danskra króna (1130 millj­ónir íslenskar). Eftir löng og flókin rétt­ar­höld árið 2010 voru 14 menn dæmdir í sam­tals 110 ára fang­elsi. Af millj­ón­unum 60 hafa til þessa ein­ungis fund­ist 4.

Í nóv­em­ber árið 2000 stöðv­uðu ræn­ingjar pen­inga­flutn­inga­bíl frá fyr­ir­tæk­inu S&P Security, í Glostrup. Í bílnum var 41 milljón danskra króna (773 millj­ónir íslenskar) sem verið var að flytja úr versl­unum danska Coop fyr­ir­tæk­is­ins. Nokkrir menn voru dæmdir fyrir ránið en til þessa dags hefur hvorki fund­ist tangur né tetur af pen­ing­unum.

Í des­em­ber árið 2007 var litlum Toyota pall­bíl ekið gegnum girð­ingu við pen­inga­geymslu Danske Bank í Brabrand við Árósa. Í bílnum voru þrír menn sem rændu mörgum pen­inga­töskum úr flutn­inga­bíl við geymsl­una. Ræn­ingj­arnir komust á brott með 27 millj­ónir danskra króna (509 millj­ónir íslenskar). Þeir náð­ust síðar en aðeins tókst að end­ur­heimta 220 þús­und af millj­ón­unum 27.

Í byrjun nóv­em­ber 1988 var lög­reglu­maður skot­inn til bana við póst­húsið á Købma­gergade í mið­borg Kaup­manna­hafnar. Þar voru að verki ræn­ingjar sem höfðu á brott með sér 13 millj­ónir danskra króna (245 millj­ónir íslenskar). Lög­regl­unni gekk illa að kom­ast á slóð ræn­ingj­anna og það var ekki fyrr en í apríl árið eftir að fjórir menn voru hand­teknir og nokkru síðar þrír til við­bótar. Aldrei hefur tek­ist að upp­lýsa hver það var sem hleypti af skot­inu sem varð lög­reglu­mann­inum að bana. Þrír menn voru dæmdir í tíu ára fang­elsi, hinir fjórir fengu styttri dóma. Ræn­ingj­arnir voru félagar í hópi sem fékk nafnið Blek­ingega­debanden, eftir sam­nefndri götu á Amager þar sem hóp­ur­inn hafði aðsetur. Um þennan hóp, sem kom víða við í dönskum afbrota­heimi, hafa verið skrif­aðar bækur og gerðir sjón­varps­þættir.

[adspot]

Það má geta þess að nú er unnið að gerð kvik­myndar um stærsta rán í sögu Dan­merkur, Loomis ránið árið 2008. Það eru kvik­mynda­fyr­ir­tækin Zentropa og Nordisk Film sem gera mynd­ina sem hefur fengið nafnið „De lydløse“. Ætlunin er að hún verði frum­sýnd á næsta ári.

Í lokin má nefna að margir Íslend­ingar kann­ast við kvik­mynd­irnar um Olsen Banden. Þar var ætíð lagt upp með nákvæma áætlun Egons Olsen (jeg har en plan) um skjót­feng­inn gróða. Þær fyr­ir­ætl­anir gengu sjaldn­ast eftir, en mynd­irnar um félag­ana þrjá eru ekki byggðar á raun­veru­legum atburðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár