„Við förum þétt af stað og erum ánægðar eftir daginn“

Formenn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins fund­uðu stíft í allan dag. Kristrún Frosta­dóttir segir mik­il­vægt að sú vinna sem farin verði í stuðli að áfram­hald­andi lækkun vaxta og verð­bólgu. Á morgun fá þær til sín full­trúa úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu til að fara yfir rík­is­fjár­málin. Heilt yfir í við­ræðum for­mann­anna þriggja séu sam­eig­in­legir þræðir fleiri en ágrein­ings­málin.

Þéttum fund­ar­degi lauk síð­degis hjá for­mönnum Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins. Þær Kristrún Frosta­dóttir, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Inga Sæland fund­uðu á stað sem ekki var gef­inn upp, en fund­ur­inn stóð, með stuttum hléum inn á milli, frá hálf níu í morgun og til um klukkan fjögur. 

„Þetta hefur bara gengið mjög vel. Við förum þétt af stað og erum ánægðar eftir dag­inn,“ segir Kristrún í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Eftir stuttan fund þeirra í þing­hús­inu í gær kom fram að þær væru allar sam­mála um að fækka ráðu­neytum. „Það skiptir máli að senda skýr skila­boð um að það þarf að taka víða til og það er full ástæða til þess að passa upp á þetta lag stjórn­sýsl­unnar. Við viljum auð­vitað gera það með þeim hætti að það bitni ekki á grunn­þjón­ustu,“ segir hún.

Í dag hafi þær fyrst og fremst tekið fyrir stóru lín­urnar og unnið eftir mál­efna­legum flötum. „Það þarf að vinna þetta nánar eftir því sem dag­arnir líða og þá getum við fengið fleiri aðila til að koma að þeirri vinnu. Við erum að byrja á stórum mála­flokkum eins og heil­brigð­is­málum og hús­næð­is­málum, við ræddum til að mynda stöðu eldra fólks og atvinn­upp­bygg­ingu og fleira. Við erum að feta okkur gegnum þessar stóru línur og þetta hefur bara gengið mjög vel,“ sgeir Kristrún.

Hefur eitt­hvað komið upp í við­ræð­unum sem blasir við að sé sér­stakur ágrein­ingur um? 

„Við fórum þá leið að byrja út frá sam­eig­in­legum flötum og nálg­ast þessar við­ræður með þeim hætti vegna þess að við vitum að það er auð­vitað sem skiptir mestu máli, að finna rauðan þráð og sam­eig­in­lega taug. En það eru ekki mörg ágrein­ings­mál sem hafa komið upp, og miklu fleira af sam­eig­in­legum þráðum sem við höfum fundið í þessum við­ræðum. Þannig að við erum fyrst og fremst núna að ein­beita okkur að því að koma okkur saman um þá mála­flokka,“ segir hún. 

Næstu daga stefni þær á að funda þétt og ætla að hitt­ast aftur í fyrra­málið í þing­hús­inu. Þar munu þær hitta full­trúa úr stjórn­sýsl­unni, meðal ann­ars full­trúa frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu til að fara yfir stöð­una í rík­is­fjár­mál­unum. 

„Við erum allar mjög með­vit­aðar um að allt sem verður gert núna á fyrstu mán­uðum, og auð­vitað nátt­úr­lega út kjör­tíma­bilið, þarf að stuðla að áfram­hald­andi lækkun vaxta og verð­bólgu þannig að við viljum fara inn í alla mála­flokk­ana með þennan ramma alveg á hreinu,“ segir Kristrún.

Nú eruð þið auð­vitað bara á fyrstu metrum við­ræðna en get­urðu sagt til um hvort þú teljir raun­hæft að þið náið að ljúka þessu þannig að þið náið að mynda rík­is­stjórn? 

„Þetta hefur bara gengið mjög vel og auð­vitað fer maður ekki út í svona við­ræður nema maður ætli sér að klára þær. En við þurfum auð­vitað bara að gefa þessu nokkra daga til þess að átta okkur á stöð­unni. Við erum alla­veg­ana bara frekar bjart­sýn á þessum tíma­punkti,“ segir hún.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár