Forkosningar Sósíalistaflokksins í Frakklandi: Hætta til hægri, upplausn til vinstri

Manuel Valls, Arnaud Montebourg og Benoit Hamon eru taldir lík­leg­astir til þess að taka við af Francois Hollande sem fram­bjóð­andi Sós­í­alista í frönsku for­seta­kosn­ing­unum í vor. Bergþór Bjarna­son fjallar um for­kosn­ing­arnar.

Fyrri umferð for­kosn­inga franska Sós­í­alista­flokks­ins fer fram á morgun, sunnu­dag­inn 22. jan­úar. Þetta er flokkur frá­far­andi for­seta, François Hollande, sem verður ekki í fram­boði í vænt­an­legum for­seta­kosn­ingum í maí í vor. Það er í fyrsta skipti í sögu lands­ins sem frá­far­andi for­seti sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri eftir aðeins eitt kjör­tíma­bil. Áhugi almenn­ing s á þessum kosn­ingum er lít­ill og mun minni en á for­kosn­ingum Lýð­ræð­is­flokks Nicolas Sarkozys, fyrrum for­seta, þar sem François Fillon vann glæsi­legan sigur í nóv­em­ber.

Fram­bjóð­endur hjá Sós­í­alistum eru sjö en þrír berj­ast á toppnum. Þeir eru Manuel Valls sem var for­sæt­is­ráð­herra Hollandes þar til fyrir skemmstu, Arnaud Montbourg, fyrrum iðn­að­ar­ráð­herra, og sá þriðji er Benoit Hamon, fyrrum mennta­mála­ráð­herra. Þá tvo síð­ar­nefndu rak Valls á sínum tíma úr rík­is­stjórn­inni fyrir að and­mæla efna­hags­stefnu hennar.

Valls hefur verið sak­aður um að hafa ýtt for­set­anum til hliðar með þeim rökum að hann hafi verið kom­inn í von­lausa stöðu vegna óvin­sælda sinna. Reyndar hefur for­set­inn hækkað um átta pró­sentu­stig í vin­sælda­kosn­ingum eftir yfir­lýs­ingu sína um að hann sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri. Valls virð­ist hins vegar eiga dálítið erfitt með að spila sig upp sem einu von vinstri­manna, rík­is­stjórn hans varð sífellt óvin­sælli og hann getur ekki hlaup­ist undan því að hafa setið að völdum síð­ustu ár og fram­fylgt stefnu for­set­ans. Hann er einnig sak­aður um að hafa klofið vinstri­menn og að vera bæði ónær­gæt­inn og ráð­ríkur. Manuel Valls var lengi vel efstur í skoð­ana­könn­unum, ef taka má mark á þeim, en hefur heldur lækkað og stendur nú í stað meðan hinir tveir sem eru lengra til vinstri flokknum hafa verið að sækja í sig veðrið.

Það virð­ist einnig vera lenska í for­kosn­ingum fyrir vænt­an­legar for­seta­kosn­ingar að almenn­ingur kýs ekki eins og áætlað er. Hjá hægri­mönnum duttu þeir sig­ur­strang­leg­ustu út. Sarkozy, fyrrum for­seti, strax í fyrri umferð­inni og Alain Juppé, fyrrum for­sætis- og utan­rík­is­ráð­herra, sem hafði í tvö ár verið efstur í öllum könn­unum, í þeirri seinni. For­set­inn er hættur við og hvers vegna skyldi for­sæt­is­ráð­herra hans ekki fjúka líka? Enginn virð­ist eiga sitt á þurru hjá kjós­endum.

Arnaud Montbourg var fyrir síð­ustu for­seta­kosn­ingar hinn svo­kall­aði „þriðji maður“ í próf­kjöri Sós­í­alista og studdi svo Hollande þegar hann vann útnefn­ingu sína. Hann hefur mikið gagn­rýnt Hollande og Valls fyrir sós­íal-líber­al­isma sem rek­inn hefur verið síð­ustu þrjú ár og vill iðn­væða landið að nýju og setja franska fram­leiðslu í for­gang. Fylgja eins konar vernd­ar­stefnu sem virð­ist mjög eiga upp á pall­borðið víða um heim um þessar mundir, til dæmis hjá Donald Trump í Banda­ríkj­unum og Theresu May í Bret­landi. Montbourg hefur hingað til verið annar í könn­unum á eftir Manuel Valls en síð­ustu tvær vikur hefur „þriðji mað­ur­inn“, Benoit Hamon, kom­ist á flug og er stundum annar í könn­unum. Hann þótti standa sig best í öðrum sjón­varp­s­kapp­ræðum fram­bjóð­end­anna á sunnu­dag­inn var. Hamon er lík­lega sá fram­bjóð­andi Sós­í­alista sem hvað ferskastur þykir, hefur ýmsar nýjar hug­myndir, til dæmis að lög­leiða lág­marks­fram­færslu fyrir alla, óháð vinnu, eins og nýlega hefur verið rætt í Finn­landi.

Þessar kosn­ingar eru því að opn­ast og erfitt að spá um úrslit á sunnu­dags­kvöld. Fari svo að Manuel Valls, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, verði efstur þá á hann eftir að eiga í erf­ið­leikum með að safna saman fylgi hinna sem falla úr leik. Hinir tveir sem lík­lega keppa hvað harð­ast um sæti í annarri umferð, Montbourg og Hamon, eru á svip­aðri póli­tískri línu og því lík­legra að þeir geti safnað saman fylgi hins, falli annar hvor þeirra út, og þá er Valls í vondum málum.

Á fimmtu­dags­kvöld í síð­ustu viku fóru fram þriðju kapp­ræður milli fram­bjóð­end­anna sjö, á besta tíma rík­is­sjón­varps­ins France2 og voru heldur líf­legri en þær fyrri. Sig­ur­veg­ara seinni umferð­ar­innar, sem fram fer 29. jan­úar bíður svo ekki létt hlut­verk. Eins og stendur er verð­andi fram­bjóð­andi Sós­í­alista­flokks­ins fimmti í könn­unum á lands­vísu. François Fillon er efstur en hefur tapað frá því að hann vann próf­kjör Lýð­ræð­is­flokks­ins. Marine Le Pen úr Þjóð­ern­is­fylk­ing­unni er önnur og nú fyrrum efna­hags­ráð­herra, Emmanuel Macron, þriðji en hann neit­aði að taka þátt í for­kosn­ingum Sós­í­alista. Macron er rétt fyrir ofan Jean-Luc Mélenchon sem er fjórði en hann er enn lengra til vinstri við Sós­í­alista­flokk­inn.

Sterkur orðrómur er um að Ségolène Royal umhverf­is­ráð­herra, sem tap­aði á móti Sarkozy í for­seta­kosn­ing­unum 2007 og er reyndar fyrr­ver­andi sam­býl­is­kona Hollandes for­seta, sé orðin ráð­gjafi Macrons og muni fljót­lega lýsa yfir stuðn­ingi við hann. Einnig heyrð­ist í síð­ustu viku að Hollande sjálfur muni jafn­vel gera slíkt hið sama og þannig veita Sósalisa­flokknum náð­ar­höggið. Macron gæti því orðið eina von þeirra sem telj­ast til vinstri við öfga hægri­menn og hið klass­íska hægri í Frakk­landi.

Pistill­inn birt­ist einnig á vef­svæði Bergþórs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár