Einar hafi vel getað afgreitt NPA samninga sjálfur

Félags­mála­ráð­herr­ann Inga Sæland segir að Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks, hefði átt að tryggja fólki með fötlun lög­bundna þjón­ustu þegar hann var borg­ar­stjóri. Hún blæs á gagn­rýni hans og segir að sveit­ar­fé­lögum verði ekki sökkt í kostn­aði.

Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir að Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefði sjálfur átt að afgreiða fjölda þeirra NPA-samn­inga sem safn­ast hafa upp, óaf­greiddir, í Reykja­vík, eins og lög hafi lengi kveðið á um. Lög­fest­ing samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks hafi ekki búið til ný verk­efni fyrir sveit­ar­fé­lögin.

„Það sem er upp­safnað er því miður vegna van­bú­inna fjár­hags­á­ætl­ana sveit­ar­fé­laga til að taka utan um fatlað fólk í sínu sveit­ar­fé­lagi. Það er ekk­ert öðru­vísi en það,“ segir Inga og vísar til orða Einars um að 42 samn­ingar um NPA liggi fyrir hjá borg­inni. Inga segir að borgin, undir stjórn Einars, hafi allan tíman haft þá skyldu að afgreiða NPA-samn­inga.

„Hann er að sveifla sér upp á dekk og blæs í allar áttir ein­hverjum ósann­indum og virð­ist ekki alveg vera bein­tengdur við raun­veru­lega hlut­ina, eins og þeir eru,“ segir Inga. „Þetta fólk hefur þurft að bíða alltof lengi …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár