„Við vildum ekki að fólk gæti keypt land“

„Fyrir sjö vikum frömdu sex manns sjálfs­víg á einni helgi," segir fjöl­miðla­konan og kyn­fræð­ing­ur­inn Ulrikke Andersen. Sjálf hefur hún þekkt 67 manns sem framið hafa sjálfs­víg. Hún bendir á að þegar fólk lifi í stöðugri fátækt eða stöð­ugum ótta þjá­ist það af áfallastreitu.

Ulrikke Andersen með fegurðina í baksýn.
Ulrikke Andersen með feg­urð­ina í bak­sýn.

Ulrikke býður inn í stof­una þar sem hún býr i gamla bænum í Nuuk. „Afi minn byggði þetta hús,“ segir hún. „Þannig að við höfum verið hér í átta­tíu ár.“

For­eldrar hennar búa á efri hæð­inni. Brosandi býður hún upp á kaffi og dregur fram kaffi­bolla frá Íslandi. Á gólf­inu dormar hundur. Ulrikke strýkur honum og segir hann vera traustan félaga. Fas hennar er eins yfir­vegað og það er hlý­legt. 

Ulrikke er alin upp í Nuuk, í fjöl­skyldu sem hefur búið þar kyn­slóðum saman. Hún lýsir Græn­landi þannig að það sé ekki ein heild heldur margir heimar. „Við erum ekki ein þjóð í raun­inni,“ segir hún. „Við höfum þrjú tungu­mál. Ekki bara mál­lýskur – þetta eru ólík orð, ólíkar merk­ingar, ólík menn­ing.“

Þá talar hún um Vestur-, Austur- og Norður-Grænland, og það hvernig fólk skilji ekki endi­lega hvert annað. „Á Norður-Græn­landi líta þau stundum á okkur sem …

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­innar – lifði af sjálfs­vígstil­raun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upp­lýs­ingum, grein­ingum og hugs­unum til sam­landa sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ungur hug­sjóna­maður sem nýtir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfs­vígstil­raun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um til­finn­ingar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeld­is­fullur“

Þegar Embla Krist­jáns­dóttir hóf sam­búð með Niels Thom­as­sen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­inum sem hún elskaði, þar sem stjórn­semi, afbrýði­semi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeld­inu, axl­aði ábyrgð og hefur unnið þrot­laust í sjálfum sér síð­asta ára­tug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ingar sínar og standa ber­skjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár