25 þingmenn leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn í Vatnsmýri

25 þing­menn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi um að efnt verði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs skuli áfram vera í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík.

Þing­menn­irnir koma úr Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokknum, Sjálf­stæð­is­flokknum og Sam­fylk­ing­unni.

Ögmundur Jónasson og Lilja Rafney Magn­ús­dóttir úr VG, Kristján Möller úr Sam­fylk­ing­unni og þau Elín Hirst, Jón Gunn­ars­son, Ásmundur Frið­riks­son, Brynjar Níelsson, Geir Jón Þórisson, Haraldur Bene­dikts­son, Val­gerður Gunn­ars­dóttir og Vil­hjálmur Árnason úr Sjálf­stæð­is­flokknum.

Allir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins sem ekki eru í rík­is­stjórn eru flutn­ings­menn, fyrir utan Frosta Sig­ur­jóns­son sem ekki er flutn­ings­maður til­lög­unnar. Þetta eru þau Hösk­uldur Þór­halls­son, Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arn­ar­dóttir, Haraldur Ein­ars­son, Jóhanna María Sig­munds­dóttir, Karl Garð­ars­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Vigdís Hauks­dóttir, Páll Jóhann Pálsson, Willum Þór Þórsson, Þor­steinn Sæmunds­son og Þórunn Egils­dóttir.

Markmið þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar er að þjóðin fái tæki­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­völl­ur­inn og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð, að því er fram kemur í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. m.a. „Ljóst er að ríkir almanna­hags­munir fel­ast í greiðum sam­göngum innan lands og að stað­setn­ing flug­vall­ar­ins og mið­stöðvar inn­an­lands­flugs hefur afar mikla þýð­ingu í því sam­hengi. Þá er ekki síður ljóst að vegna sjúkra- og neyð­ar­flugs, svo og hlut­verks síns sem vara­flug­völlur, gegnir flug­völl­ur­inn mjög mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir almenn­ing,“ segir í til­lög­unni. 

Þá er sagt brýnt að þjóðin fái tæki­færi til að segja hug sinn varð­andi málið og hafa þannig áhrif á end­an­lega nið­ur­stöðu máls­ins, sem gæti meðal ann­ars falist í til­færslu á skipu­lags­legu ákvörð­un­ar­valdi með lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár