Ráðleggja sölu á bréfum í HB Granda - Rússabannið bítur

Næst stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins á eftir Samherja, HB Grandi, er metið á 66,8 millj­arða króna sam­kvæmt nýju verð­mati IFS Grein­ingar. Ráð­legg­ingin í verð­mati á félag­inu er sala á bréfum, en gengið á mark­aði nú er 40.

IFS metur virði hluta­fjár HB Granda nú um 66,8 millj­arða króna eða 36,8 krónur á hlut. Mark­aðs­gengið í dag er 40. Þetta kemur fram í nýrri verð­mats­grein­ingu frá IFS á HB Granda, sem Kjarninn hefur undir höndum.

Virð­is­matið lækkar frá því í ágúst, „aðal­lega vegna lægri sölu­tekna og lægri fram­legð­ar­hlut­falla en við reikn­uðum með“ segir í verð­mats­grein­ing­unni.

Rússabannið slæmt fyrir fyrirtækið

Í síð­asta virð­is­mati IFS var talið að sölu­tekjur af upp­sjáv­ar­fiski kæmu til með að lækka þar sem meira yrði sett í bræðslu vegna við­skipta­banns­ins í Rúss­landi, sem er mik­il­vægur mark­aður fyrir HB Granda, ekki síst vegna sölu á mak­ríl þangað.

Í verð­mat­inu kemur fram að bæði sölu­tekjur og fram­legð­ar­hlut­föll upp­sjáv­ar­fisks hafi lækkað meira en reiknað hafði verið með. „IFS býst hins­vegar við betri afkomu vegna botn­fisks þar sem við áætlum að verð á botn­fiski hafi hækkað áfá um 6,3 pró­sent á þessum fjórð­ungi. IFS telur að verð á botn­fiski komi til með að hækka um 6,3 pró­sent á árinu 2016 og magn auk­ist einnig.  Mark­gengi okkar til tólf mán­aða er það sama og mark­aðs­gengi í dag og mælum við með sölu,“ segir í verð­mats­grein­gunni. 

Lágt olíuverð hjálpar til

Olíuverð hefur farið hratt lækk­andi und­an­farin miss­eri, einkum síð­ustu fimmtán mán­uði. Það fór hæst í um 115 Banda­ríkja­dali á tunn­una, ef miðað er við hrá­olíu, en hefur að und­an­förnu sveifl­ast í kringum 40 Banda­ríkja­dali.

Í verð­mats­grein­ing­unni er gert ráð fyrir að olíu­verð hald­ist áfram lágt sem komi til með að þrýsta upp fram­legð­ar­hlut­föllum í rekstr­inum. „Við reiknum með því að nýju skipin styðji frekar við fram­legð­ar­hlut­föll á spá­tíma­bil­inu. IFS reiknar með að fram­legð af botn­fiski verði tæp 35 pró­sent á spá­tíma­bil­inu og upp­sjáv­ar­fisks tæp 38 pró­sent,“ segir í verð­mats­grein­ing­unni.

Traustur rekstur

HB Grandi hefur átt sín bestu rekstr­arár í sögu félags­ins, und­an­farin ár, og hefur afkoma verið góð, á flesta mæli­kvarða. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var EBITDA (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði og afskriftir) 52,8 millj­ónir evra, eða sem nemur 7,4 millj­örðum króna, og hækk­aði um tæp­lega fimmtán pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra.

Stærsti eig­andi HB Grandi er Vogun hf., félag í meiri­hluta­eigu Krist­jáns Lofts­sonar, með 33,5 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti eig­and­inn með 11,6 pró­sent hlut og Hamp­iðjan kemur þar á eftir með 8,67 pró­sent hlut. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár