Hvaða reynslu hafa aðstoðarmenn ráðherra?

Ummæli Tryggva Gunn­ars­sonar, umboðs­manns Alþingis, um ráð­herra og aðstoð­ar­menn þeirra í Við­tal­inu á RÚV á mánu­dags­kvöld hafa vakið nokkra athygli. Þar sagð­ist hann telja að ráð­herrar þurfi reynda ráð­gjafa til að vega upp á móti sínu eigin reynslu­leysi og það sé meðal ann­ars sá lær­dómur sem megi draga af leka­mál­inu.

„Þarna kemur til starfa fólk sem hefur ekki það sem ég kalla mikla sam­fé­lags­reynslu. Það hefur ekki veru­lega reynslu af þing­störfum, ekki af þessum sam­skiptum að koma málum í gegnum stjórn­sýsl­una, það hefur oft á tíðum ekki mikla reynslu úr atvinnu­líf­inu, það hefur kannski fyrst og fremst reynslu úr póli­tískum störfum fyrir stjórn­mála­flokk­ana,“ sagði Tryggvi um ráð­herra. Hann sagð­ist telja að búa þurfi ráð­herrum betri aðstöðu til að rækja störf sín, reynda aðstoð­ar­menn sem gætu veitt hlut­lausa ráð­gjöf í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu­hætti.

Kjarninn ákvað að skoða reynslu þeirra sem gegna störfum aðstoð­ar­manna ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Þau eru fjórtán tals­ins. Öll eru með háskóla­próf, til dæmis eru fjögur þeirra lög­fræð­ingar og tvö eru búfræð­ingar. Þá eru sagn­fræð­ingar, stjórn­mála­fræð­ingar og við­skipta­fræð­ingar á meðal þeirra. Meiri­hluti þeirra hafði starfað fyrir flokk við­kom­andi ráð­herra áður en þau voru ráðin í störf aðstoð­ar­manna. Minnst fimm hafa setið í stjórnum ung­liða­hreyf­inga og nokkur voru kosn­inga­stjórar flokk­anna áður en þau urðu aðstoð­ar­menn.

Aðstoðarmenn forsætisráðherra


Ásmundur Einar Daðason er fæddur árið 1982 og er 32 ára. Hann er búfræð­ingur frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri og með BS-próf í
almennum búvís­indum frá Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. Hann var sauð­fjár­bóndi til árs­ins 2011 og rak inn­flutn­ings- og sölu­fyr­ir­tæki með land­bún­að­ar­vörur, en hann hefur einnig starfað sem þing­maður frá 2009. Hann tók við starfi aðstoð­ar­manns með­fram þing­störfum í nóv­em­ber 2013.

Jóhannes Þór Skúlason er fæddur árið 1973 og er 42 ára. Hann er með BA-próf í sagn­fræði frá Háskóla Íslands og starf­aði sem grunn­skóla­kenn­ari í Selja­skóla þar til hann tók við starfi aðstoð­ar­manns for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, árið 2011. Hann var líka um margra ára skeið þjálf­ari MORFÍS-liða í hjá­verkum. Þegar Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra í maí 2013 tók Jóhannes við starfi aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafði ekki starfað í Fram­sókn­ar­flokknum fyrir þennan tíma en var mjög virkur í starfi InDefence-hóps­ins.

Aðstoðarmenn fjármálaráðherra


Svan­hildur Hólm Vals­dóttir er fædd árið 1974 og er 40 ára gömul. Hún er mennt­aður lög­fræð­ingur og lauk prófi frá Háskóla Íslands árið 2009. Hún starf­aði í fjöl­miðlum frá 1995 til 2009, sem blaða­maður, útvarps­maður og síð­ast í sjón­varpi, bæði á RÚV og Stöð 2. Hún var ráðin fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins haustið 2009 og svo aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar haustið 2012. Hún fylgdi Bjarna svo í fjár­mála­ráðu­neytið þegar hann varð ráð­herra vorið 2013. Hún hafði sinnt félags­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, og var í stjórn og svo annar vara­for­maður SUS árin 1997 til 2001.

Teitur Björn Ein­ars­son er fæddur árið 1980 og er 34 ára. Hann er lög­maður, útskrif­að­ist frá Háskóla Íslands 2006 og öðl­að­ist mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir hér­aðs­dómi 2007. Hann starf­aði hjá LOGOS lög­manns­stofu eftir útskrift, var í fram­kvæmda­stjórn og stjórn Eyr­ar­odda 2007 til 2011 og svo lög­maður hjá OPUS lög­mönnum frá 2011 og þar til hann var ráð­inn í fjár­mála­ráðu­neytið sum­arið 2014. Teitur hefur gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, var vara­for­maður SUS og hefur setið í ráðum og nefndum flokks­ins. Hann hefur einnig boðið sig fram í próf­kjöri fyrir Alþing­is­kosn­ingar.

Aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra


Ingvar Pétur Guð­björns­son er fæddur árið 1979 og er 35 ára gam­all. Hann er búfræð­ingur frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri. Hann hefur einnig lagt stund á stjórn­mála­fræði og sagn­fræði í Háskóla Íslands. Áður en hann varð aðstoð­ar­maður Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur árið 2013 starf­aði hann sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu í átján mán­uði. Áður starf­aði hann hjá Lands­virkjun, við almanna­tengsl og kynn­ing­ar­mál, og við skrif­stofu­störf hjá Slát­ur­hús­inu á Hellu. Hann sat í sveit­ar­stjórn Rangár­þings ytra 2002 til 2010 og aftur frá 2011 til 2012. Hann hefur verið mjög virkur í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars í stjórn SUS og í full­trúa- og kjör­dæm­is­ráðum.

Aðstoðarmaður félags- og húsnæðismálaráðherra


Matthías Páll Imsland er fæddur árið 1974 og er 41 árs gam­all. Hann lauk BA-prófi í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og er með MS-próf frá Háskól­anum í Lundi. Hann hefur einnig stundað nám í við­skipta­fræði við HÍ og stjórn­un­ar­nám við North Park Uni­versity í Chicago. Matthías hefur gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í gegnum tíð­ina. Meðal ann­ars hefur hann verið í mið­stjórn og lands­stjórn flokks­ins. Hann starf­aði sem rekstr­ar­stjóri þjón­ustu­deildar Símans eftir nám og hefur starfað sem sviðs­stjóri fræðslu-, félags- og menn­ing­ar­sviðs á Blöndu­ósi og í iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu. Hann var for­stjóri Iceland Express til árs­ins 2011 og svo fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs WOW-air til 2012. Hann vann sem ráð­gjafi eftir það og var svo kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar. Síðan þá hefur hann verið aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur.

Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra


Inga Hrefna Svein­bjarn­ar­dóttir er fædd árið 1981 og er 33 ára gömul. Hún er með BA-próf í stjórn­mála­fræði frá Háskóla Íslands, sem hún lauk árið 2012. Hún starf­aði á skrif­stofu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Valhöll frá árinu 2007 til hausts­ins 2012, þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún var svo ráðin aðstoð­ar­maður Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra í júní 2013.

Aðstoðarmenn innanríkisráðherra


Kristín Har­alds­dóttir er fædd árið 1970 og er 44 ára. Hún er lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og er með LLM-gráðu í Evr­ópu­rétti frá Háskól­anum í Lundi. Hún hefur starfað sem full­trúi á lög­mann­stofu, var lög­fræð­ingur í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu og iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu í sex ár og síðar lög­fræði­legur aðstoð­ar­maður dóm­ara við EFTA-dóm­stól­inn í Lúx­em­borg. Hún hefur verið sér­fræð­ingur við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík frá 2009 og for­stöðu­maður Auð­linda­rétt­ar­stofn­unar laga­deild­ar­innar. Hún hefur einnig setið í stjórnum fyr­ir­tækja og nefndum á vegum rík­is­ins. Hún var ráðin lög­fræði­legur aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er fædd árið 1987 og er 27 ára. Hún lauk ML námi í lög­fræði frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2012 og var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna frá vori 2013 og þar til hún var ráðin aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra rétt fyrir jól. Hún hefur starfað hjá emb­ætti sýslu­manns á Akranesi, hjá úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála og hjá Marel. Hún var kosn­inga­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar. Hún hefur verið virk í störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, verið for­maður félags ungra sjálf­stæð­is­manna á Akranesi og setið í stjórn SUS.

Aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra


Sigríður Hall­gríms­dóttir er fædd árið 1971 og er 44 ára. Hún er með MBA-gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík. Áður en hún tók við starfi aðstoð­ar­manns Illuga Gunn­ars­sonar var hún ráð­gjafi hjá almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM. Hún hefur meðal ann­ars starfað sem fram­kvæmda­stjóri hjá Sjá, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjá Creditinfo Group og hjá Industria. Hún hefur einnig setið í stjórnum nokk­urra fyr­ir­tækja. Hún hefur einnig setið í stjórnum félaga­sam­taka og verið virk í störfum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hún er for­maður Hvatar, félags sjálf­stæð­iskvenna í Reykja­vík.

Aðstoðarmenn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra


Helga Sigurrós Val­geirs­dóttir er fædd 1979 og er 35 ára gömul. Hún er með BS-gráðu í sjáv­ar­út­vegs­fræðum frá Háskól­anum á Akureyri og meistara­gráðu í alþjóða­við­skiptum frá Geronble Graduate School of Business. Hún starf­aði á Fiski­stofu frá árinu 2004 með hléum, síð­ast sem sviðs­stjóri upp­lýs­inga­sviðs Fiski­stofu, þar til hún var ráðin aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sum­arið 2013. Hún var starfs­maður sátta­nefnd­ar­innar um end­ur­skoðun á lögum um stjórn fisk­veiða, sat í verk­efn­is­stjórn um mótun atvinnu­stefnu fyrir Ísland og hefur tekið þátt í ýmsu sam­starfi í sjáv­ar­út­vegs­málum á alþjóða­vett­vangi.

Benedikt Sig­urðs­son er fæddur árið 1964 og er 50 ára gam­all. Hann er með BA-gráðu í sagn­fræði frá Háskóla Íslands. Hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga í ágúst 2013 en var fyrir það sviðs­stjóri sam­skipta hjá Actavis á Íslandi. Hann var aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar frá 2009 til 2011 og 2006 til 2008 var hann fjöl­miðla­full­trúi hjá Kaup­þingi. Tólf ár þar á undan vann hann sem frétta­maður.

Aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra


Ing­veldur Sæmunds­dóttir er aðstoð­ar­maður umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Hún er fædd árið 1970 og er 44 ára gömul. Hún er með BS-próf frá CBS, við­skipta­há­skól­anum í Kaup­manna­höfn, og diplómu í alþjóð­legri mark­aðs­hag­fræði frá Business Academy Copenhagen North. Hún hefur líka stundað nám í stjórnun og stefnu­mótun í Háskóla Íslands. Hún starf­aði sem versl­un­ar­stjóri og síðar vöru­stjóri hjá Pennanum, og sem vöru­stjóri hjá Hátækni. Hún var svo kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar og var svo ráðin aðstoð­ar­maður þegar rík­is­stjórnin var mynduð.

Aðstoðarmaður utanríkisráðherra


Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir er fædd árið 1984 og er 30 ára gömul. Hún er með BA-gráðu í almanna­tengslum frá Háskól­anum í Westminster, og hefur stundað nám í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun í Háskóla Íslands. Áður en hún varð aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra í sept­em­ber 2013 var hún skrif­stofu­stjóri þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins frá árinu 2010, og var aðstoð­ar­maður kosn­inga­stjóra flokks­ins árið 2009. Hún var líka til skamms tíma aðstoð­ar­maður for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún hefur gegnt ýmsum félags­störfum, og setið í nefndum á vegum Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár