16,8 milljónir hafa farið í ferðalög forseta Íslands

Kostn­aður vegna emb­ætt­is­ferða Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, hefur numið rúmum 16,8 millj­ónum króna frá upp­hafi þessa kjör­tíma­bils, 1. ágúst 2012, og út árið 2014. 5.194.327 krónur hafa verið greiddar for­set­anum í dag­pen­inga á þessu tíma­bili.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­konu Vinstri grænna.

Inni í þess­ari upp­hæð er ekki kostn­aður við ferðir ann­arra emb­ætt­is­manna eða maka Ólafs Ragnars.

Frá því að kjör­tíma­bilið hófst 1. ágúst 2012 og út það ár var for­set­inn erlendis í 23 heila daga í emb­ætt­is­er­indum. 13 daga til við­bótar var hann í einka­er­indum. Árið 2013 var hann 70 heila daga í útlöndum og 24 í einka­er­indum og í fyrra var hann erlendis í 56 heila daga í emb­ætt­is­er­indum og 43 í einka­er­indum.

Kostn­aður sem fallið hefur á for­seta­emb­ættið vegna ferða Dorrit Moussaieff er rúm­lega 1,9 millj­ónir á sama tíma­bili. Dorrit hefur aldrei þegið dag­pen­inga en for­seta­emb­ættið hefur greitt far­gjöld fyrir hana vegna þátt­töku hennar í emb­ætt­is­ferðum.

Þá kemur fram í svar­inu að greiðslur til hand­hafa for­seta­valds þegar for­set­inn er í útlöndum hafa numið tæp­lega 22 millj­ónum króna á þessu kjör­tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár