Seðlabankinn og réttur almennings til að vita

Seðla­banki Íslands getur, umfram flestar aðrar stjórn­sýslu­ein­ingar, beitt þagn­ar­skyldu­á­kvæði sér­laga um sig til að veita fjöl­miðlum ekki upp­lýs­ingar.

Seðla­banki Íslands stefndi í síð­ustu viku blaða­mann­inum Ara Brynj­ólfs­syni, sem starfar hjá Frétta­blað­inu, vegna fyr­ir­spurnar sem hann lagði fyrir bank­ann í nóv­em­ber 2018. Fyr­ir­spurnin snérist um að fá upp­lýs­ingar um samn­ing sem bank­inn hafði gert við Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, sem starf­aði þá sem fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans, um styrk og laun í náms­leyfi hennar. Ingi­björg stund­aði MPA-nám í Banda­ríkj­unum sem Seðla­bank­inn greiddi fyrir en hún kom ekki aftur til starfa hjá bank­anum þegar því námi var lokið. Frétta­blaðið seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að virði samn­ings­ins sé á annan tug millj­óna króna og að um sé að ræða mun hærri náms­styrk en öðru starfs­fólki bank­ans hafi boð­ist.

Seðla­bank­inn neit­aði að láta blaða­mann­inn fá umræddan samn­ing og hann skaut mál­inu til úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál sem, eftir átta mán­uði, komst að þeirri nið­ur­stöðu að afhenda ætti gögnin. Úrskurð­ur­inn hefur þó enn ekki verið birtur á vef nefnd­ar­innar þar sem málið er enn í ágrein­ingi. Í honum felst að Seðla­bank­inn taldi að mál­efna­leg rök stæðu til þess að óska eftir því við úrskurð­ar­nefnd­ina að fresta rétt­ar­á­hrifum úrskurð­ar­ins og vísa honum til dóm­stóla.

Í grein sem Stefán Jóhann Stef­áns­son, rit­stjóri Seðla­bank­ans, birti á vef Frétta­blaðs­ins á föstu­dag segir að sá blaða­maður sem óskað hefur upp­lýs­inga hafi „að mínu viti unnið verk sitt í þessum efnum vel og sam­visku­sam­lega og þótt formið krefj­ist þess að honum verði birt stefna, sem ýmsum kynni að finn­ast óþægi­legt, þá er ekki verið að veit­ast að honum per­sónu­lega, og reynt er að milda honum leið­ina eins og fram kemur í stefn­unni og birt­ist m.a. í því að Seðla­bank­inn gerir ekki kröfu um greiðslu máls­kostn­aðar þó svo hann myndi vinna málið.“

„Leyndarhyggja og kúgunartilburðir"

Blaða­manna­fé­lag Íslands for­dæmdi vinnu­brögð Seðla­banka Íslands harð­lega í yfir­lýs­ingu sem birt var á fimmtu­dag. Þar segir að öllum megi vera „ljóst að þessi mál varða almenn­ing í land­inu og því frá­leitt hjá stjórn­endum Seðla­bank­ans að neita að veita þessar upp­lýs­ingar. Af fréttum að dæma virð­ist hér vera um að ræða sér­stakt mál innan bank­ans sem ekki styðst við neinar þekktar reglur eða for­dæmi og því enn mik­il­væg­ara að upp­lýsa málið. Seðla­bank­inn er opin­ber stofnun og getur ekki hundsað að veita almenn­ingi í land­inu upp­lýs­ingar um starf­semi sína, ákvarð­anir stjórn­enda bank­ans og með­ferð opin­bers fjár.“

Þá for­dæmir Blaða­manna­fé­lag Íslands sér­stak­lega það sem það kallar frá­leita til­raun stjórn­enda Seðla­bank­ans „til að þagga niður málið með því að stefna umræddum blaða­manni Frétta­blaðs­ins fyrir dóm með það fyrir augum að stöðva umfjöllun hans um Seðla­bank­ann. Þessi vinnu­brögð bank­ans bera keim af leynd­ar­hyggju og kúg­un­ar­til­burðum sem á ekki að við­gang­ast hjá opin­berum stofn­unum. Að mati Blaða­manna­fé­lags Íslands er ólíð­andi að blaða­menn þurfi að standa í lang­vinnum, dýrum og tíma­frekum mála­rekstri til að fá upp­lýs­ingar frá opin­berum aðilum sem þeir eiga rétt á að fá sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum.“ Undir til­kynn­ing­una skrifar Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins.

Segir við löggjafann að sakast

Seðla­banki Íslands er í þeirri stöðu að vera með ákvæði í sér­lögum um starf­semi sína um þagn­ar­skyldu þegar kemur m.a. að upp­lýs­ingum um fjár­hags­leg mál­efni við­skipta­manna og starfs­manna. Því ákvæði hefur bank­inn beitt óspart á und­an­förnum árum þegar fjöl­miðlar hafa leitað eftir upp­lýs­ingum sem þeir telja að eigi skýrt erindi við almenn­ing, og snerta starf­semi bank­ans eða atburði sem áttu sér stað við og í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

Stefán Jóhann segir í grein sinni á vef Frétta­blaðs­ins að fjöl­miðla­fólk sé vel upp­lýst um lagaum­hverfið og að það vísi­oft til laga­á­kvæða til rök­stuðn­ings upp­lýs­inga­beiðnum sínum. Þetta fólk veit líka mæta­vel að lög geta meinað stofn­unum að veita upp­lýs­ingar, t.d. um per­sónu­leg eða við­skipta­leg mál­efni. Það er því ekki merki um neina mann­vonsku eða kúg­un­ar­til­burði, svo vitnað sé til orða­lags álykt­unar Blaða­manna­fé­lags Íslands, þótt fólk reyni að vanda sig og fara að lögum. Það vita flestir og skilja. Upp­lýs­inga­lögum er ætlað að vera bæði blaða­mönnum og stofn­unum rammi og leið­bein­ing. Ef ein­hver er ósáttur við þau lög og þann far­veg sem þau bjóða upp á eru hin réttu við­brögð að ræða um mögu­lega breyt­ingu á þeim.

Þagnarskylda um stór mál

Kjarninn hefur margoft verið í þeirri stöðu á und­an­förnum árum að leita upp­lýs­inga hjá Seðla­bank­anum en ekki fengið aðgengi að þeim vegna þess að hann hefur borið fyrir sig þagn­ar­skyldu­á­kvæðið.

Árið 2016, í kjöl­far þess að Kjarninn tók þátt í vinnu við opin­berum upp­lýs­inga um Íslend­inga sem var að finna í Panama­skjöl­unum fór hann fram á að fá upp­lýs­ingar um skulda­upp­gjör þar sem þekktum íslenskum athafna­manni var heim­ilt að nota íslenskar skulda­bréfa­eignir aflands­fé­lags í eigu eig­in­konu hans til að gera upp skuld íslenskra félaga sinna á fullu verði þrátt fyrir að höft væru við lýði og að slík leið byð­ist ekki almennt. Sér­fræð­ingar sem rætt var við sögðu upp­gjörið afar óvenju­legt. Seðla­bank­inn tók sér tvo mán­uði til að svara fyr­ir­spurn­inni og gerði það loks með því að vísa til þagn­ar­skyldu­á­kvæð­is­ins.

Árið 2017 óskaði Kjarninn eftir því að fá afrit af sam­tali Davíðs Odds­sonar, þáver­andi seðla­banka­stjóra, og Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þar sem þeir ræddu um afgreiðslu neyð­ar­láns til Kaup­þings 6. októ­ber 2008. Seðla­bank­inn hafn­aði beiðn­inni og vís­aði í að þagn­ar­skylda hvíldi á umræddum upp­lýs­ingum.

Kjarn­inn ákvað í kjöl­farið að stefna Seðla­­­banka Íslands fyrir dóm­stóla til að reyna að fá ákvörðun Seðla­­­bank­ans hnekkt og rétt sinn til að nálg­­­ast ofan­­­greindar upp­­­lýs­ingar við­­­ur­­­kenndan á grund­velli upp­­­lýs­inga­laga.

Seðla­­banki Íslands ákvað að taka til varna í mál­inu og var það þing­­fest. Áður en kom að fyr­ir­töku þess gerð­ist það hins vegar að Morg­un­­blaðið birti afrit af sím­tal­inu í nóv­em­ber 2018. Davíð Odds­­­son er í dag rit­­­stjóri Morg­un­­­blaðs­ins.

Í fram­hald­inu náð­ist sam­komu­lag milli Kjarn­ans miðla, móð­­ur­­fé­lags Kjarn­ans, og Seðla­­banka Íslands um dómsátt í mál­inu. Í dómsátt­inni sagði að fyrir liggi „að end­­ur­­rit af sím­tali því sem stefn­andi krefst aðgangs að í máli þessu frá stefna birt­ist í Morg­un­­blað­inu eftir þing­­setn­ingu máls­ins þ.e. 18. nóv­­em­ber sl. Eru því ekki efni til þess lengur að synja stefn­anda um afhend­ingu þess. Stefndi mun því afhenda það til stefn­anda. Í þeirri athöfn felst engin við­­ur­­kenn­ing á rétt­­mæti mála­til­­bún­­aðar stefn­anda í mál­in­u.“

Fjárfestingarleiðin og ESÍ

Árum saman hefur Kjarninn leitað eftir upp­lýs­ingum um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, sem stóð til boða á árunum 2012 til 2015. Á meðal þeirra upp­lýs­inga sem Kjarninn hefur farið fram á að fá eru um það hvaða ein­stak­lingar og lög­að­ilar nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans og hversu háar fjár­hæðir hver og einn flutti til lands­ins eftir þeirri leið. Seðla­bank­inn hefur neitað að veita efn­is­leg svör og vísað í þagn­ar­skyldu­á­kvæðið.

Kjarninn kærði þá synjun til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem komst að þeirri nið­ur­stöðu í jan­úar síð­ast­liðnum að for­taks­laus þagn­ar­skylda Seðla­banka Íslands gagn­vart við­skipta­mönnum sínum komi í veg fyrir að slíkar upp­lýs­ingar séu gerðar opin­berar „óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Kjarninn hefur einnig farið fram á að fá ýmsar upp­lýs­ingar um Eign­ar­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) og dótt­ur­fé­lag þess Hildu. Þessi félög heyra ekki undir sömu lög og Seðla­banki Íslands og þurftu að fá sér­staka und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, veitti félög­unum und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum 27. nóv­em­ber 2015. Sú und­an­þága rann hins vegar út 15. des­em­ber 2018. Seðla­bank­inn hafði þá ekki svarað fyr­ir­spurnum Kjarnans um mál­efni ESÍ og Hildu mán­uðum saman þrátt fyrir ótví­ræða laga­skyldu sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum um að veita svör við fyr­ir­spurnum sem þess­um. Meg­in­regla stjórn­sýslu­laga er sú, að stjórn­sýslan skuli vera gagnsæ og fyr­ir­spurnum svarað fljótt og vel, er varða almanna­hags­muni.

Efn­is­leg svör hafa ekki borist við fyr­ir­spurn­um, meðal ann­ars um yfir­lit um kaup á lög­fræði­þjón­ustu hjá félög­un­um.

Í árs­reikn­ingum félags­ins hafa ekki komið fram ítar­legar upp­lýs­ingar um starf­semi félag­anna, og var beiðnin meðal ann­ars send af þeim ástæð­um, enda miklir almanna­hags­munir í húfi þar sem félögin hafa stundað eigna­um­sýslu bak við luktar dyr leynd­ar, árum sam­an, með mörg hund­ruð millj­arða króna eignir almenn­ings.

Hefur starf­semin meðal ann­ars verið að miklu leyti utan sjóna almenn­ings, þar sem starf­semin hefur hangið saman við umfangs­mikla vinnu við upp­gjör á slita­búum föllnu bank­anna, Kaup­þings, Lands­bank­ans og Glitn­is, sem nú er lok­ið.

Þrátt fyrir að und­an­þágan hafi runnið út hefur efn­is­legum spurn­ingum Kjarnans enn ekki verið svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár