Seðlabankinn getur enn ekkert fullyrt um hvernig símtalið rataði til fjölmiðla

Athugun Seðla­banka Íslands á því hvernig neyð­ar­lána­sím­talið milli Davíðs Odds­sonar og Geirs H. Haarde rataði á síður Morg­un­blaðs­ins stendur enn yfir. Búið er að fara yfir feril máls­ins og athuga hverjir utan bank­ans hafi fengið end­ur­ritið.

Birt­ing Morg­un­blaðs­ins á afriti af sím­tali milli Dav­íðs Odds­son­ar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, og Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þar sem þeir ræða um neyð­ar­lán­sveit­ingu til Kaup­þings þann 6. októ­ber 2008, er enn til athug­unar innan Seðla­banka Íslands. Sú athugun hefur staðið yfir frá 20. nóv­em­ber.

Samkvæmt svari bank­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöðu máls­ins þá er athug­un­inni enn ekki að fullu lokið. „Ferill máls­ins hefur verið skoð­aður og eins athugað hverjir utan bank­ans kunna að hafa fengið end­ur­ritið með rétt­mætum hætti. Við getum á þess­ari stundu ekk­ert full­yrt um það hvernig end­ur­ritið rataði til fjöl­miðla,“ segir í svar­inu.

Birt níu árum síðar

Morg­un­­blaðið birti þann 18. nóv­em­ber afrit af umræddu sím­tali. Í sím­tal­inu ræða þeir neyð­­ar­lána­lán­veit­ingu til Kaup­­þings upp á 500 millj­­ónir evra, sem kost­aði íslenska skatt­greið­endur á end­­anum 35 millj­­arða króna í tap.

Kjarn­inn hafði óskaði eftir því með tölvu­­pósti þann 6. sept­­em­ber 2017 að fá aðgang að hljóð­­rit­un­ af sam­tal­inu og afritið sem gert var. Til­­­gang­­ur­inn var að upp­­lýsa almenn­ing um liðna atburði og vegna þess að framundan var birt­ing á tveimur skýrsl­um, þar af önnur sem unnin er af Seðla­­bank­an­um, þar sem atburðir tengdir sím­tal­inu verða til umfjöll­un­­ar. Beiðnin var rök­studd með því að um væri að ræða einn þýð­ing­­ar­­mesta atburð í nútíma hag­­sögu sem hefði haft í för með sér afdrifa­­ríkar afleið­ingar fyrir íslenskan almenn­ing. Seðla­­bank­inn hafn­aði beiðn­­inni þann 14. sept­­em­ber og byggði þá ákvörðun ein­vörð­ungu á því að þagn­­ar­­skylda hvíldi yfir umræddum upp­­lýs­ing­­um.

Kjarninn ákvað í kjöl­farið að stefna Seðla­­banka Íslands fyrir dóm­stóla til að reyna að fá ákvörðun Seðla­­bank­ans hnekkt og rétt sinn til að nálg­­ast ofan­­greindar upp­­lýs­ingar við­­ur­­kenndan á grund­velli upp­­lýs­inga­laga.

Seðla­banki Íslands ákvað að taka til varna í mál­inu og var það þing­fest. Áður en kom að fyr­ir­töku þess gerð­ist það hins vegar að Morg­un­blaðið birti afrit af sím­tal­inu. Davíð Odds­­son er í dag rit­­stjóri Morg­un­­blaðs­ins.

Dómsmátt og endurrit afhent

Í fram­hald­inu náð­ist sam­komu­lag milli Kjarn­ans miðla, móð­ur­fé­lags Kjarn­ans, og Seðla­banka Íslands um dómsátt í mál­inu. Í dómsátt­inni sagði að fyrir liggi „að end­ur­rit af sím­tali því sem stefn­andi krefst aðgangs að í máli þessu frá stefna birt­ist í Morg­un­blað­inu eftir þing­setn­ingu máls­ins þ.e. 18. nóv­em­ber sl. Eru því ekki efni til þess lengur að synja stefn­anda um afhend­ingu þess. Stefndi mun því afhenda það til stefn­anda. Í þeirri athöfn felst engin við­ur­kenn­ing á rétt­mæti mála­til­bún­aðar stefn­anda í mál­in­u.“

Hér að neðan er hægt að sjá afritið sem Seðlabanki Íslands afhenti Kjarnanum í kjölfarið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár