Spurt og svarað um efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna COVID-19

Munu lánin mín hækka? Hvað með verð­bólg­una? Erum við komin aftur til árs­ins 2008? Það vakna margar spurn­ingar í tengslum við heims­far­aldur COVID-19 og stjórn­völd hafa kynnt miklar efna­hags­að­gerðir til að bregð­ast við vand­anum.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar ásamt formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Hörpu í dag.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, kynnti aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar ásamt for­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hörpu í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 eru án hlið­stæðu, segir í sam­an­tekt um þær á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Heild­ar­um­fang aðgerð­anna gæti numið yfir 230 milljöðrum króna, sem felst ann­ars vegar í frestun greiddra gjalda og hins vegar auknum útgjöldum, skatta­lækk­unum og lána­fyr­ir­greiðslu með rík­is­á­byrgð. Auk þess mun rík­is­sjóður styðja við hag­kerfið með lægri skatt­tekjum og auknum útgjöldum sem leiða af verri efna­hags­að­stæðum. Þessar aðgerðir leggj­ast á sveif með lækkun Seðla­banka Íslands á stýri­vöxtum, bindi­skyldu og sveiflu­jöfn­un­ar­auka.

Aðgerð­unum er fyrst og fremst ætlað að vinna gegn atvinnu­leysi og tíma­bundnum tekju­missi ein­stak­linga með hluta­at­vinnu­leys­is­bótum, aðgengi að sér­eign­ar­sparn­aði, frestun skatt­greiðslna fyr­ir­tækja og fyr­ir­greiðslu vegna rekstr­ar­lána til þeirra.

Þegar bein áhrif far­ald­urs­ins verða í rénun verður stutt mynd­ar­lega við end­ur­reisn hag­kerf­is­ins með auknum opin­berum fram­kvæmdum sem stuðla að lang­tíma­hag­vexti, skatta­af­slætti vegna vinnu á verk­stað og átaki í mark­aðs­setn­ingu Íslands fyrir ferða­menn.

Hér að neðan er að finna svör við algengum spurn­ingum sem kunna að vakna og fengin eru af vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Hver eru áhrif COVID-19 á efnahagslífið?

COVID-19 far­ald­ur­inn hefur nei­kvæð áhrif á efna­hags­lífið um allan heim. Búast má við tölu­verðri fækkun ferða­manna sem koma hingað til lands á næstu mán­uðum. Vegna far­ald­urs­ins fara Íslend­ingar einnig sjaldnar í búðir og á veit­inga­staði og þá hefur þurft að fella niður ýmsa við­burði. Fram­leiðsla getur einnig dreg­ist saman. Tekjur fjölda fyr­ir­tækja skerð­ast vegna ástands­ins, ekki síst í ferða­þjón­ustu. Líklegt er að mörg fyr­ir­tæki grípi til upp­sagna til að bregð­ast við þessu, en aðgerðir stjórn­valda miða að því að verja störf eins og kostur er. Far­ald­ur­inn hefur því tölu­verð áhrif á efna­hags­lífið á Íslandi en búist er við því að áhrifin gangi til baka þegar far­ald­ur­inn er geng­inn yfir, enda eru und­ir­stöður hag­kerf­is­ins traustar.

Hvernig aðgerða eru stjórnvöld að grípa til?

[links]Aðgerðir stjórn­valda eru afar umfangs­miklar og veita öfl­ugt mót­vægi við efna­hags­á­hrif far­ald­urs­ins. Aðgerð­irnar miða fyrst og fremst að því að auð­velda heim­ilum og fyr­ir­tækjum að takast á við það tíma­bundna tekju­tap sem þau kunna að verða fyrir. Þannig minnkum við óvissu og höldum hjólum atvinnu­lífs­ins gang­andi ásamt því að koma í veg fyrir fjár­hags­erf­ið­leika eftir því sem frekast er unnt. Það má ekki gleyma því að ástandið er tíma­bundið og aðgerðir stjórn­valda munu styðja vel við efna­hags­lífið þegar far­ald­ur­inn er geng­inn yfir.

Mun verðbólga hækka?

Verð­bólga er núna 2,4% sem er nálægt mark­miði Seðla­banka Íslands um 2,5% verð­bólgu. Eins og sakir standa er ekki búist við því að hún hækki veru­lega á næstu mán­uðum. Seðla­banki Íslands hefur það hlut­verk að tryggja stöðuga og lága verð­bólgu og mun grípa til aðgerða til að tryggja það ef þess ger­ist þörf.

Munu lánin mín hækka?

Ekki er búist við því að verð­bólga hækki veru­lega á næstu mán­uðum og því er ekki gert ráð fyrir að verð­tryggð lán hækki meira en í venju­legu árferði. Vextir á íbúða­lánum hafa farið lækk­andi og eru nú mjög lágir í sam­an­burði við hvernig þeir hafa verið sögu­lega. Ekki er gert ráð fyrir vaxta­hækkun á næst­unni.

Mun atvinnuleysi aukast?

Aðgerðir stjórn­valda miða að því að draga úr aukn­ingu atvinnu­leysis eins og unnt er en það er fyr­ir­sjá­an­legt að aðstæður á vinnu­mark­aði verði erf­iðar á meðan COVID-19 far­ald­ur­inn veldur fækkun ferða­manna og minni umsvifum í hag­kerf­inu. Þegar far­aldr­inum linnir er engin ástæða til að ætla annað en að hag­kerfið taki við sér og þá mun atvinnu­leysi minnka á ný.

Erum við komin aftur til ársins 2008?

Nei, ástandið er mjög ólíkt því sem var þá. Í kjöl­far banka­hruns­ins gripu stjórn­völd til veiga­mik­illa aðgerða til að treysta stoðir efna­hags­lífs­ins og koma í veg fyrir að álíka ástand geti skap­ast aftur. Skuldir hafa lækkað mikið og stjórn­völd hafa mun meira svig­rúm til að styðja við efna­hags­lífið í þess­ari nið­ur­sveiflu. Það sama gildir um bank­ana sem standa afar traustum fótum. Ólíklegt er að verð­bólga og lán hækki mikið eins og þau gerðu í kjöl­far banka­hruns­ins. Einnig er ólík­legt að kaup­máttur minnki mikið eins og hann gerði í hrun­inu.

Hvað má búast við að niðursveiflan vari lengi?

Það er erfitt að segja en miðað við þær upp­lýs­ingar sem við höfum núna er lík­leg­ast að hag­kerfið muni taka við sér á næsta ári.

Fleiri spurn­ingar og svör má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár