Eyddi 368 síðum í að gera líf söguhetjunar að helvíti

Þegar geim­far­inn Mark Watney verður stranda­glópur á Mars þarf hann að treysta á sjálfan sig til að lifa af í fjögur jarðár. Hjálpin berst ekki fyrr.

Geimfarinn Mark Watney á ótrúleg ævintýri á Mars í skáldsögunni The Martian
Geim­far­inn Mark Watney á ótrú­leg ævin­týri á Mars í skáld­sög­unni The Martian

Þann 2. októ­ber hefj­ast sýn­ingar á kvik­mynd­inni The Martian sem byggð er á skáld­sögu Andy Weir með sama titli og kom fyrst út árið 2011. The Martian komst á met­sölu­lista New York Times í mars í fyrra. Sagan sem sögð er í bók­inni er mögnuð en þar má lesa dag­bók­ar­færslur banda­ríska geim­far­ans Mark Watney sem hefur orðið stranda­glópur á Mars eftir að gríð­ar­mik­ill sand­stormur hrakti félaga hans frá banda­rísku geim­ferða­stof­un­un­inni (NASA) af yfir­borði rauðu plánet­unar.

Watney þarf að lifa af á Mars í fjögur ár eða þar til, sam­kvæmt útreikn­ingum sínum, NASA getur sent björg­un­ar­leið­angur til Mars. Hann hefur enga leið til að hafa sam­band við jörðu og þarf þess vegna að treysta alfarið á sjálfan sig til þess að kom­ast af.

En það er ekki aðeins sagan sem sögð er í bók­inni sem er áhuga­verð heldur einnig hvernig hún er skrifuð af Andy Weir og hvernig hún var gefin út eftir óhefð­bundnum leiðum, ef miðað er við hefð­bunda bóka­út­gáfu met­sölu­bóka í prent­uðu formi.

Allt á sér stoð í raunveruleikanum

Ólíkt vin­sæl­ustu vís­inda­skáld­sögum getur allt átt sér stað í raun­veru­leik­anum. „Einn dag­inn, milli þess sem ég sinnti mínum ónör­da­legu verk­efnum, byrj­aði ég að ímynda mér ferða­lag manna til Mars,“ skrifar Andy Weir í pistli á Salon.com árið 2014. „Ég skrif­aði meira að segja for­rit til þess að reikna spor­braut­ar­feril þess­arar ímynd­uðu ferðar frá jörðu til Mars. […] Ég þurfti að taka bil­anir með í reikn­ing­inn þegar geim­far­arnir myndu lenda á yfir­borði Mars. Hvað skyldi ger­ast ef eitt­hvað færi úrskeiðis? Hvernig mundi ég und­ir­búa ferð­ina svo hóp­ur­inn hefði vara­á­ætl­anir? Hvað ef vara­á­ætl­an­irnar færu úrskeiðis?“

Í þessum þönkum sínum átt­aði Weir sig á því að ískyggi­leg svör við þessum spurn­ingum væru hugs­an­lega efni í áhuga­verða sögu. „Þarna fædd­ist hug­myndin að The Martian,“ skrifar hann. „Svo ég eyddi 368 síðum í að gera líf óheppnu sögu­hetj­unar Mark Watney að hel­víti.“

Matt Damon í hlutverki Mark Watney, geimfarans óheppna sem verður strandaglópur á Mars.
Matt Damon í hlut­verki Mark Watney, geim­far­ans óheppna sem verður stranda­glópur á Mars.

Frá­sagn­ar­stíll­inn í bók­inni er fyrstu per­sónu frá­sögn geim­far­ans óheppna; dag­bók­ar­færsla hans þar sem hann reifar vanda­málin sem að honum steðja og hugs­an­legar lausnir við ótrú­leg­ustu vanda­málum. Weir seg­ist hafa haft áhyggjur af því að bókin yrði þurr og leið­in­leg áður en hann átt­aði sig á að vís­indi gætu raun­veru­lega leitt sög­una. Höf­und­ur­inn rekur þannig flókin reikn­ings­dæmi þar sem Watney reynir að eyða nitri úr and­rúms­lofti mann­gerða skýl­is­ins sem geim­far­arnir höfðu reist á Mars og hversu margar kalor­íur hann þarf að inn­byrða úr kart­öfl­unum sem hann ræktar svo hann kom­ist örugg­lega lífs af.

Öðru hvoru flyst frá­sögnin svo til jarðar þar sem starfs­menn NASA ótt­ast um líf Watney og reyna svo að bjarga honum.

Kaflarnir ritrýndir á vefnum

Bókina gaf Weir fyrst út á vef­síðu sinni, kafla fyrir kafla. Áhuga­fólk um allan heim gaf honum þar vís­bend­ingar um hugs­an­legar hættur sem gætu staðið að Watney og leið­réttu útreikn­inga hans. „Um síðir fóru les­endur að biðja mig um að koma bók­inni í heild­tætt form á Amazon svo hægt væri að lesa hana á spjald­tölvum. Svo ég fann mynd af Mars og setti á kápuna og seldi fyrir 99 sent því Amazon leyfði mér ekki að gefa hana.“

Í við­tali við Adam Savage, sem þekkt­astur er fyrir að vera einn þátta­stjórn­anda í Myth Busters á Discovery-sjón­varps­stöð­inni, útskýrir Weir hvernig hann lagði sig sér­stak­lega fram í rann­sóknum fyrir bók­ina til að gera sög­una eins senni­lega og áreið­an­lega og hægt er. Viðtalið má sjá í mynd­band­inu hér að neðan.

Í pistli sínum skrifar Weir að eftir að hann hóf að gefa hana út á vef­síðu sinni hafi hann fengið tölvu­pósta frá geim­förum, starfs­mönnum stjórn­stöð NASA, tækni­mönnum kjarn­orkukaf­báta, efna­fræð­ingum, eðl­is­fræð­ingum og land­fræð­ingum, auk fjölda ann­arra. „Allir höfðu gott að segja um tækni­lega nákvæmni bók­ar­innar þó sumir hafi sent leið­rétt­ingar á villum hjá mér. Þær villur leið­rétti ég nær allar í síð­ustu útgáf­unni sem prentuð var,“ skrifar Weir.

Svo ég fann mynd af Mars og setti á kápuna og seldi fyrir 99 sent því Amazon leyfði mér ekki að gefa hana.

Eftir að bókin kom út hjá Amazon komst hún á topp list­ans yfir mest seldu bæk­urnar í flokki vís­inda­skáld­sagna á vefnum og henni var hlaðið niður 35 þús­und sinnum á þremur mán­uðum. Nánast um leið og bóka­út­gef­endur höfðu sam­band við Weir hófu stóru kvik­mynda­verin verð­stríð um kvik­mynda­rétt­inn að sög­unni. Bókin hefur nú verið gefin út í hljó­bók­ar­formi á ensku og þýdd á fjöl­mörg tungu­mál, þó ekki íslensku.

Sagan hefur nú verið kvik­mynduð í leik­stjórn Ridley Scott sem hefur hlotið fjöl­mörg verð­laun fyrir kvik­myndir sínar. Þar má nefna stór­mynd­irnar Alien (1979), Gladi­ator (2000) og Black Hawk Down (2001). Með hlut­ver Mark Watney fer ósk­arsverð­launa­haf­inn Matt Damon. Auk hans fara meðal ann­ars Jessica Chastain, Kristen Wiig, Kate Mara, Jeff Daniels og Sean Bean með hlut­verk í mynd­inni. Myndinni hefur verið lýst sem sam­suðu af Apollo 13 eftir Ron Howard og Cast Away eftir Robert Zemeckis. Stiklu úr kvik­mynd­inni má sjá í mynd­band­inu hér að neðan.

Í ekki svo fjarlægri framtíð

Jafnvel þó saga Weir styð­ist við raun­veru­leg vís­indi og þekk­ingu mann­kyns í dag er þetta enn vís­inda­skáld­saga. Höf­und­ur­inn við­ur­kennir til dæmis að hafa vís­vit­andi hundsað hættur á borð við óhindr­aða sól­ar­geislun þegar hann hann­aði sögu­sviðið. En hversu langt er þar til tæknin leyfir mann­kyn­inu að senda mönnuð geim­för til Mars?

NASA hefur þegar lent níu könn­un­ar­förum á yfir­borð Mars. Það síð­asta, Curiosity, lenti árið 2012 og sendir enn myndir af yfir­borði Mars og rann­sókn­ar­gögn sem það aflar úr jarð­vegi plánet­unar. Utan þess­ara verk­efna hafa þónokkrir gervi­hnettir kom­ist á spor­braut um Mars eða flogið fram­hjá og sent gögn til jarðar. Fjögur verk­efni eru auk þess í þróun. ExoMars verður sent frá jörðu á næsta ári auk InSight. Báðum förum er ætlað að lenda á Mars.

Á dög­unum voru drög að nýju verk­efni kynnt en þar er ætl­unin að lenda geim­fari á yfir­borði Mars, safna jarð­vegs­sýnum og snúa aftur til jarðar. NASA áætlar að vef­kefnið verði mögu­legt á þriðja ára­tug þess­arar aldar og verði geim­far Space X-einka­fyr­ir­tæk­is­ins notað til þess að kom­ast á yfir­borð Mars og aftur til jarðar.

For­stjóri Space X, Elon Musk, segir tæki geim­ferða­fyr­ir­tæk­is­ins nógu öflug til að geta ferð­ast alla leið til Mars en sjálfur hefur hann sagst vilja eyða síð­ustu ævi­árum sínum á plánetuni. Slíkt kann þó að vera ómögu­legt, enn um sinn, því sam­kvæmt nýlegri rann­sókn vís­inda­manna við tækni­stof­un­ina í Massachusetts (MIT) gætu áætl­anir hol­lenska fyr­ir­tæk­is­ins Mars One um að lenda fjórum mann­eskjum á Mars árið 2025 verið gall­aðar.

Mars One miðar að því að geim­far­arnir geti búið á Mars í nokkurn tíma, ræktað þar plöntur (eins og Mark Watney í The Martian) og fram­leitt vatn úr jarð­veg­inum. Vís­inda­menn MIT segja slíkt hins vegar enn ómögu­legt. Of mikil eld­hætta mundi til að mynda skap­ast við það eitt að plönt­urnar fram­leiði súr­efni í vist­ar­verum land­nem­anna.

The Martian verður frum­sýnd í kvik­mynda­húsum á Íslandi 2. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár