Engin vindorkuver í 300 metra hæð yfir sjó

Borg­ar­byggð hefur kort­lagt þau svæði sem yfir­völd í sveit­ar­fé­lag­inu telja óhentug fyrir virkjun vind­orku og úti­loki slíka land­notkun. Sjónræn áhrif vind­orku­garða eru talin ein af helstu umhverfis- og sam­fé­lags­á­hrifum þeirra.

Vindorkuver
Vind­orku­ver Nokkur vind­orku­ver eru á teikni­borð­inu í Borg­ar­byggð.

Borg­ar­byggð hefur látið kort­leggja sveit­ar­fé­lagið út frá ákveðnum for­sendum um hvar skuli ekki reisa vind­orku­ver í fram­tíð­inni. Vind­orku­ver skulu til dæmis ekki rísa á óbyggðum víð­ernum, jöklum, í land­halla yfir 30 pró­sent, í innan við kíló­metra frá byggð og í nágrenni frið­lýstra menn­ing­arminja. Þá eru svæði í meira 300 metra hæð yfir sjáv­ar­máli sögð óhentug fyrir slík orku­mann­virki. 

Kort­lagn­ingin er hluti af vinnslu­til­lögu aðal­skipu­lags Borg­ar­byggðar til næstu tólf ára. Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að stefnu­mótun um nýt­ingu vind­orku sé mótuð á grunni kort­lagn­ingar á mögu­legum svæðum fyrir nýt­ingu hennar út frá fjar­lægð frá byggð, flutn­ings­kerfi og öðrum tak­mörk­unum vegna land­notk­unar. „Sveit­ar­fé­lagið mun taka ákvarð­anir um vindlundi þegar þeir hafa verið settir í nýt­ing­ar­flokk ramma­á­ætl­unar.“ 

Kort­lagn­ingTak­mark­anir á nýt­ingu lands í Borg­ar­byggð fyrir raf­orku­fram­leiðslu með vind­myllum.Tak­mark­anir eru t.d. hæð yfir sjó, fjar­lægð frá mann­virkjum, land­halli, vernd og víð­erni.

Í kort­lagn­ing­unni eru tak­mark­anir þau svæði sem eru sögð óhentug fyrir virkjun vind­orku og úti­loka slíka land­notkun. Tak­mark­anir voru valdar í sam­ráði við vinnu­hóp Borg­ar­byggðar um end­ur­skoðun aðal­skipu­lags­ins.

 Þær tak­mark­anir sem miðað var við í kort­lagn­ingu fyrir Borg­ar­byggð eru meðal ann­ars frið­lýst svæði, valin hverf­is­vernduð svæði, óbyggð víð­erni, jöklar, brunn- og grann­svæði vatns­verndar, svæði með land­halla yfir 30 pró­sent, nær­svæði umhverfis byggð (1 km), vegi (0,1 km) og flutn­ings­mann­virki raf­orku­kerf­is­ins (0,1 km), frið­lýstar menn­ing­arminjar og 100 m frið­helgað svæði utan þeirra og hind­r­anafletir flug­valla. 

„Sjónræn áhrif vind­orku­garða eru talin ein af helstu umhverfis- og sam­fé­lags­á­hrifum þeirra en mat á sjón­rænu áhrif­unum veltur á ýmsum breytum svo sem stað­setn­ingu vind­orku­garðs­ins og hæð vind­myll­anna. Áhrif sýni­leika þarf að skoða fyrir hvern kost fyrir sig og erfitt að meta þau heild­rænt fyrir stórt land­svæði eins og hér er til skoð­unar.“ 

Samþykkt var á síð­asta fundi sveit­ar­stjórnar Borg­ar­byggðar að aug­lýsa vinnslu­til­lögu aðal­skipu­lags­ins. Á kynn­ing­ar­tíma verða íbúa­fundir haldnir.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár