Urgur í Grænlendingum

Full­trúar Græn­lend­inga á danska þing­inu eru mjög ósáttir við að tveir stórir og öfl­ugir drónar sem ætl­aðir eru til eft­ir­lits á Græn­landi og norð­ur­slóðum verði stað­settir í Álaborg á Jótlandi, víðs fjarri svæð­inu sem þeim er ætlað að fylgj­ast með.

Urgur í Grænlendingum
Grænland Dróna­mynd af græn­lenska þorp­inu Ittoqqortoormiit að vetri til. Græn­lenskar þing­konur eru væg­ast sagt ósáttar við þá ákvörðun að höf­uð­stöðvar stóru drón­anna skuli verða í Álaborg. Mynd: AFP/Pierre Vernay
Hlustaðu 06:23 · Eitt og annað

Mörgum er lík­lega í fersku minni þau ummæli Donalds Trump, þáver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, að Banda­ríkin hefðu áhuga á að kaupa Grænland, rétt eins og um væri að ræða venju­leg fast­eigna­við­skipti. Hug­myndir for­set­ans vöktu athygli og umtal en þrátt fyrir að landa­kaup þessi hafi aldrei komið til álita voru þau þó að ýmsu leyti lýsandi, og það eru fleiri en Banda­ríkja­menn sem hafa auga­stað á Græn­landi. Landið er ríkt af nátt­úru­auð­lindum og lega lands­ins og haf­svæð­is­ins þar fyrir norðan er talin mik­il­væg í mörgu til­liti. Vitað er að auk Banda­ríkj­anna hafa bæði Kín­verjar og Rússar mik­inn áhuga á Græn­landi og norð­ur­slóðum.

Stóra Norðurslóðaverkefnið 

Í des­em­ber árið 2019 greindi Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, frá því að fyrir dyrum stæði stór­á­tak í því sem hún kall­aði „Örygg­is­mál á norð­ur­slóðum“ og nefndi í því sam­hengi 1500 millj­ónir danskra króna, 30 millj­arða íslenska, þegar spurt var um pen­inga. Banda­rísk stjórn­völd lýstu mik­illi ánægju með „stór­átakið“.

Tveimur árum síðar, í febr­úar 2021, greindi Trine Bramsen, þáver­andi varn­ar­mála­ráð­herra, frá sam­komu­lagi sem náðst hefði í þing­inu um það sem ráð­herr­ann nefndi Arktisk Kapacitetspakke, Norð­ur­slóða­verk­efnið.

Stórir og öfl­ugir drónar, gervi­hnatta­eft­ir­lit og rad­ar­stöðvar á jörðu niðri var meðal þess sem ráð­herr­ann til­tók á fundi með frétta­mönnum. Á fund­inum kom fram að þetta stór­aukna eft­ir­lit næði líka til Færeyja. Enn fremur kom fram að heima­menn, einkum á Græn­landi, fengju menntun til að sinna störfum sem tengd­ust Norð­ur­slóða­verk­efn­inu.

Í maí síð­ast­liðnum byrj­uðu 22 græn­lensk ung­menni, á aldr­inum 18 til 25 ára, í sex mán­aða námi sem ber heitið Arktisk Bas­isudd­ann­else. Náminu, sem fór fram í bænum Kangerlussuaq á Vestur-Græn­landi, svipar til byrj­un­ar­náms og þjálf­unar her­manna en með sér­stakri áherslu á græn­lenskar aðstæður. Meðal græn­lenskra ung­menna var mik­ill áhugi fyrir nám­inu og sam­tals sóttu 236 um að kom­ast að, 82 upp­fylltu skil­yrðin en ein­ungis 22 komust að, eins og áður var getið. Á næsta ári er ætl­unin að taka inn álíka stóran hóp, umsókn­ar­frestur er til 1. des­em­ber og er sem sé að renna út.

Ekki hægt að hlaupa út í búð til að kaupa tækin

Nokk­urrar gagn­rýni hefur orðið vart vegna meints seina­gangs við að koma Norð­ur­slóða­verk­efn­inu í gang. Varn­ar­mála­ráðu­neytið og her­inn hafa bent á að það sé meira en að segja það að hrinda þessu stóra verk­efni  í fram­kvæmd og í mörg horn að líta. Um sé að ræða flók­inn tækni­legan búnað sem ekki verði keyptur í næstu raf­tækja­verslun, eins og tals­maður hers­ins komst að orði í við­tali. Enn fremur er löngu ljóst að millj­ón­irnar 1.500 sem Mette Frederik­sen nefndi skömmu fyrir jól árið 2019 hrökkva skammt. Í jan­úar á þessu ári náð­ist sam­komu­lag í þing­inu um stór­aukna fjár­veit­ingu til Norð­ur­slóða­verk­efn­is­ins og fjár­hags­legri hindrun þar með rutt úr vegi, um sinn að minnsta kosti.

Stóru drónarnir verða með bækistöð í Álaborg

Fyrir þrem vikum var greint frá því að lík­lega yrði samið við banda­ríska fyr­ir­tækið General Atomics um kaup á tveimur stórum eft­ir­lits­drónum. Þessir drónar sem nefn­ast MQ-9B SeaGu­ar­dian eru engin smá­flikki, þeir eru 11 metra langir og væng­hafið er 24 metrar. Þeir geta verið á lofti sam­fleytt í 30 klukku­stundir og borið margs konar búnað. Í til­kynn­ingu frá varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu var enn fremur greint frá því að bæki­stöð drón­anna verði í Álaborg á Jótlandi, Flyvestation Aaalborg. Þar verði um það bil 70 manna starfs­lið sem ann­ist umsjón og rekstur drón­anna og auk þess sex sér­fræð­ingar í Karup á Mið-Jótlandi þar sem her­inn er með bæki­stöð. Heima­höfn drón­anna, eins og það var orðað í til­kynn­ing­unni, á Græn­landi yrði í Kanglussuaq (Syðri -Straum­firði) en ekki nánar útskýrt hvað í því fælist.

Grænlenskir þingmenn foxillir

Aaja Chemnitz og Aki-Matilda Høeg Dam, sem eru full­trúar Græn­lands á danska þing­inu (Græn­lend­ingar eiga þar tvo þing­menn) eru væg­ast sagt ósáttar við þá ákvörðun að höf­uð­stöðvar stóru drón­anna skuli verða í Álaborg. Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagði Aki-Matilda Høeg Dam það óskilj­an­lega ákvörðun að hafa höf­uð­stöðvar drón­anna í þrjú þús­und kíló­metra fjar­lægð frá því svæði sem ætl­unin væri að nota þá til eft­ir­lits. Drón­arnir geta mest náð 482 kíló­metra hraða á klukku­stund, það er við bestu aðstæður. „Ef grunur vaknar t.d. um kaf­bát í námunda við Grænland og drón­inn sendur í loftið, frá Álaborg, verður kaf­bát­ur­inn kom­inn veg allrar ver­aldar loks­ins þegar drón­inn kemur,“ sagði þing­mað­ur­inn. Aaja Chemnitz tók undir þetta og sagði að þessi ákvörðun færi algjör­lega í bága við það sem um hefði verið rætt þegar sam­komu­lag náð­ist um Norð­ur­slóða­verk­efnið, en báðar styðja þær Aaja Chemnitz og Aki-Matilda Høeg Dam núver­andi rík­is­stjórn Dan­merkur. Í til­kynn­ingu varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að ákvörð­unin um stað­setn­ingu drón­anna í Álaborg hafi verið tekin í fullu sam­ráði við þing­menn Græn­lend­inga og Fær­ey­inga. Þetta segja þær Aaja Chemnitz og Aki-Matilda Høeg Dam fjarri sanni, við þær hafi ekk­ert verið rætt og þeim ekki verið boðið sæti í þing­nefnd­inni sem mælti með Álaborg sem heima­höfn drón­anna.

Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, var í Kaup­manna­höfn fyrir skömmu til að ræða varnar- og örygg­is­mál Græn­lands og norð­ur­slóða. Hún sagði í við­tali við danska útvarpið að Græn­lend­ingar réðu ekki, enn sem komið er, yfir þeirri þekk­ingu og tækni­bún­aði sem til þyrfti varð­andi rekstur drón­anna „en það mun breyt­ast á næstu árum“.

Troels Lund Poulsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur, fer til Græn­lands fyrir árs­lok til að ræða þessi mál við græn­lenska þing­menn og ráð­herra.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár