Gunnar Bragi minnir á að stjórnendur Samherja eigi börn

Vara­for­maður Mið­flokks­ins seg­ist hugsa til starfs­manna Samherja þessa dag­ana þegar stríðs­fyr­ir­sagnir um fyr­ir­tækið séu í fjöl­miðlum. Hann gagn­rýnir fjöl­miðla og segir það galið að ætla að styrkja þá með rík­isfé.

Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist hugsa til starfs­manna Samherja sem horfi nú á stríðs­fyr­ir­sagnir um fyr­ir­tækið og stjórn­endur þess. „Það er slæmt fyrir okkur öll þegar eitt af öfl­ug­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins er sakað um vafa­sama við­skipta­hætti. Eðlilegt er að þeir sem ábyrgð bera svari fyrir það. Þeir og aðrir sem að fyr­ir­tæk­inu standa eða starfa hjá því eiga fjöl­skyldur, börn sem skilja ekki orðin sem notuð eru eða hvers vegna fjöl­skyldu­fað­ir­inn eða móð­irin bland­ast inn í þá umræðu sem búin var til með æsifrétta­stílnum. Æsingur fjöl­mið­ils­ins til að ná athygl­inni er stundum svo mik­ill að annað skiptir ekki máli. Athygl­iskeppnin er eins og aur­skriða sem engu eirir og síst sann­leik­anum sem kannski kemur í ljós seint og um síðir.“

Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Gagnrýnir samband Ríkisútvarpsins við Stundina

Þar gagn­rýnir Gunnar Bragi enn fremur það sem hann kallar sér­stakt sam­band milli Rík­is­út­varps­ins og Stund­ar­innar, sem birtu bæði umfjall­anir um ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætti Samherja í tengslum við við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu.

Hann segir Rík­is­út­varpið og Stundin hafa áður sængað saman „og þá mat­reitt málin eftir eigin höfði til þess eins að gera hlut­ina enn verri. Því er mik­il­vægt að bíða eftir heild­ar­mynd­inni áður en opin­berar aftökur hefj­ast.“ Gunnar Bragi til­greinir ekki hvaða umfjöllun hann er að vísa þar í.

[adspot]Hann gerir svo fjöl­miðla yfir höfuð að umtals­efni í grein­inni og segir að æsingur þeirra til að ná athygl­inni sé stundum svo mik­ill að annað skipti ekki máli. „Athygl­iskeppnin er eins og aur­skriða sem engu eirir og síst sann­leik­anum sem kannski kemur í ljós seint og um síðir. Á þá ekki að upp­lýsa um það sem miður fer eða þegar líkur eru á ein­hverju broti? Jú, svo sann­ar­lega en hvernig það er gert skiptir máli.“ Gunnar Bragi til­tekur engin dæmu um þetta í grein­inni.

Segir styrki til fjölmiðla galna hugmynd

Að lokum opin­berar Gunnar Bragi það að Mið­flokk­ur­inn hafi lagt fram til­lögu um að hætt yrði við að styrkja einka­rekna fjöl­miðla um allt að 400 millj­ónir króna í heild við fjár­laga­vinn­una, en frum­varp um slíka styrki hefur verið dreift á Alþingi og til stendur að mæla fyrir því á næst­unni.

Gunnar Bragi segir styrk­ina vera galna hug­mynd þegar ríkið sé þegar að setja um fimm millj­arða króna í Rík­is­út­varpið. „Það að reyna að koma öllum fjöl­miðlum á rík­is­spen­ann minnir óþægi­lega á sam­fé­lög þar sem stjórn­völd reyna að stýra öllum fjöl­miðlum. Fjöl­miðlar verða að geta starfað án rík­is­styrkja. Mið­flokk­ur­inn mun á næst­unni kynna hug­mynd að því hvernig efla megi einka­rekna fjöl­miðla án þess að binda þá á rík­is­jöt­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár