Bakslag í stríðinu gegn fátækt

Um helm­ingur heims­byggð­ar­innar lifir á minna en sem nemur þús­und íslenskum krónum á dag.

Glíman gengur verr
Glíman gengur verr Sára­fá­tækt fer vax­andi í Afríku sunnan Sahara-eyði­merkur.

Tæpur helm­ingur mann­kyns dregur fram lífið á minna en 5,50 doll­urum á dag, eða sem nemur 890 íslenskum krónum (kaup­mátt­ar­jöfn­uðum). Komið hefur bakslag í bar­átt­una gegn sára­fá­tækt á und­an­förnum árum, en með sára­fá­tækt (e. extreme poverty) er vísað til þess að lifa á minna en 1,90 doll­urum á dag. Samkvæmt gögnum Alþjóða­bank­ans gengur nú helm­ingi hægar að vinna gegn slíkri fátækt en árið 2013 og fer sára­fá­tækt bein­línis vax­andi í Afríku sunnan Sahara-eyði­merkur. 

Í nýlegri skýrslu Oxfam um ójöfnuð og fátækt í heim­inum er bent á að ein meg­in­á­stæða auk­innar fátæktar sé ójöfn­uður auðs og tekna. Samkvæmt World Inequality Report frá 2018 sem gefin er út af rann­sókn­ar­stofn­un­inni World Inequality Lab runnu 15 sent hvers doll­ara sem heims­byggðin vann sér inn á tíma­bil­inu 1980 til 2016 til fátæk­ustu 50 pró­senta mann­kyns meðan rík­asta 1 pró­sentið fékk 27 sent af hverjum doll­ara í sinn hlut. 

Fólki sem dregur fram lífið á 1,90 doll­urum á dag hefur fækkað um hátt í einn og hálfan millj­arð frá 1981. Fræði­menn hafa þó gagn­rýnt 1,90 doll­ara við­miðið og bent á að 7,40 doll­arar á dag (1.195 íslenskar krónur) séu algjört lág­mark til að geta lifað sæmi­legu lífi og séð börnum sínum far­borða. Alls 70,8 pró­sent mann­kyns voru undir 7,40 doll­ara við­mið­inu árið 1981 en 58,1 pró­sent árið 2013 og má að miklu leyti rekja árang­ur­inn til gríð­ar­legs hag­vaxtar í Kína. Vegna fólks­fjölg­unar þýða þessar hlut­falls­tölur þó að um millj­arði fleiri lifa á minna en 7,40 doll­urum í dag en árið 1981.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár