Byltingakenndur ferðaklúbbur á Íslandi úrskurðaður pýramídasvindl

Norsk yfir­völd hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að WorldVentures sé pýramídasvindl. Sölu­að­ili þess á Íslandi segir að sér sé „skít­sama“ um nið­ur­stöðu norskra yfir­valda.

WorldVentures
WorldVentures Glaður hópur í ferða­lagi á vegum fyr­ir­tæk­is­ins.

Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag birt­ist við­tal við Guðmund Krist­jáns­son á Frétta­neti Ellý Ármanns. Inntak við­tals­ins var ótrú­legur ferða­klúbbur að nafni WorldVentures sem gerir við­kom­andi kleift að „að ferð­ast saman um heim­inn og það á glæsi­legum hót­elum en ódýrt“. Það fylgir hins vegar ekki frétt­inni að norsk yfir­völd hafa úrskurðað WorldVentures sem ólög­legt pýramídasvindl. Stundin ræddi við Guðmund sem sagði sér vera „skít­sama“ um nið­ur­stöðu norskra yfir­valda. Hann þver­tekur fyrir að um sé að ræða pýramídasvindl. Ekki náð­ist í Ellý Ármanns­dóttur við vinnslu fréttar.

Norsk yfirvöld banna starfsemina

Þann 7. maí í fyrra komst norska happ­drætt­is­fyr­ir­tækja­eft­ir­litið (n. Lotteri- og stiftel­sestil­sy­net) að þeirri nið­ur­stöðu að WorldVentures væri ólög­legt fyr­ir­tæki, þar sem um væri að ræða pýramídasvindl. Samkvæmt úrskurði stofn­un­ar­innar var ástæðan fyrir þessu að meiri­hluti tekna byggir á fjölgun með­lima en ekki sölu á ein­hvers konar vöru. Í Noregi eru pýramídasvindl ólög­leg og er einn helsti mæli­kvarði eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar þar­lendis hversu hátt hlut­fall tekna séu gjöld nýrra með­lima á móti sölu á raun­veru­legri vöru. WorldVentures kol­féll á því prófi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár