Yfir 2 milljarða sparnaður í opinberum innkaupum

Fjár­mála­ráð­herra telur sparnað Rík­is­kaupa vegna breyttra áherslna í opin­berum inn­kaupum síð­ustu tveggja ára muni nema rúm­lega tveimur millj­örðum króna .

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra Mynd: xd.is

Áætlaður ávinn­ingur vegna hag­ræðis fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í opin­berum inn­kaupum síð­ustu ára er tal­inn nema yfir tveimur millj­örðum króna. Sparn­að­ur­inn kemur meðal ann­ars frá samn­ingi við Microsoft og hag­kvæm­ari kaupum á flug­miðum Stjórn­ar­ráðs­ins. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Vil­hjálms Árna­sonar á vef Alþingis.

Fyr­ir­spurn Vil­hjálms snýr að breyttum áherslum í opin­berum inn­kaupum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem kynntar voru árið 2016 og fólu þær meðal ann­ars í sér breyttar inn­kaupa­að­ferðir, t.d. sam­eig­in­leg inn­kaup, örút­boð og fækkun birgja.

Áhersl­urnar sem kynntar voru byggðu á nið­ur­stöðum starfs­hóps ráðu­neyt­is­ins frá árinu áður, en sam­kvæmt þeim var áætlað að slíkar breyt­ingar myndu ná fram 2-4 millj­arða króna hag­ræð­ingu í inn­kaupum á almennri vöru og þjón­ustu.

Samkvæmt svari fjár­mála­ráð­herra munu þær breyt­ingar sem Rík­is­kaup hefur nú þegar gert á fyr­ir­komu­lagi ramma­samn­inga skila yfir tveimur millj­örðum krónum í heild­ar­á­vinn­ing yfir líf­tíma samn­ing­anna. Þar að auki nefnir ráð­herra nokkur dæmi um útboð sem skilað hafa mik­illi hag­ræð­ingu, en þau voru eft­ir­far­andi:

  • Útboð á tölvu­bún­aði þar sem áætl­aður ávinn­ingur er rúm­lega 100 millj­ónir króna á ári. 
  • Samn­ingur við Microsoft vegna hug­bún­að­ar­leyfa fyrir ríkið þar sem áætl­aður ávinn­ingur er um 200 millj­ónir króna árlega.
  • Sam­eig­in­leg inn­kaup grunn­skóla á rit­föngum þar sem örút­boð skil­aði verði sem var 64,2% undir kostn­að­ar­á­ætlun.
  • End­ur­skipu­lagn­ing á inn­kaupum í flug­far­miðum stjórn­ar­ráðs­ins sem metið er að skili um 100 millj­óna króna ávinn­ingi út samn­ings­tím­ann.

Vil­hjálmur spurði einnig ráð­herra sér­stak­lega um ávinn­ing af ramma­samn­ingi um kaup á raf­orku til tveggja ára. Ráðherra sagði samn­ing­ana hafi kostað um 1.721 millj­ónir króna fyrir bæði árin, 1.322 millj­ónir fyrir árið 2016 og 1.399 millj­ónir fyrir árið 2017. Hins vegar bætti hann við að erfitt sé að meta fjár­hags­legan ávinn­ing af samn­ing­unum þar sem raf­orku­verð séu breyti­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár