Niðurfærsla á námslánum myndi kosta ríkið 11 milljarða króna

Það myndi kosta ríkið tæp­lega ell­efu millj­arða króna að færa niður verð­tryggð náms­lán með sama hætti og gert var við verð­tryggð íbúða­lán í leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Fjár­mála­ráðu­neytið fékk gögn frá Lána­sjóði íslenskra náms­manna fyrir tíma­bilið 2008 til 2009 og not­ast var við með­al­stöðu náms­lána á þessum árum. Þessi aðferð er sögð gefa góða mynd af því hver lækkun lána yrði miðað við for­sendur leið­rétt­ingar verð­tryggðra íbúða­lána. „Staða náms­lána í árs­lok 2009 nam 103 millj­örðum kr. Í árs­lok 2014 nam þessi fjár­hæð 213 millj­örðum kr. Um 42 millj­arðar kr. (um 20%) af þeirri fjár­hæð eru settir á afskrifta­reikn­ing hjá sjóðnum enda er reiknað með því að allt að helm­ingur náms­lána greið­ist ekki upp að fullu,“ segir í svar­inu.

Miðað við sömu for­sendur um hækkun umfram vísi­tölu­gildi, og not­aðar voru við lækkun verð­tryggðra íbúða­lána, er því áætlað að lækkun náms­lána gæti numið tæpum ell­efu millj­örðum króna. „Hafa þarf í huga að þessi aðgerð snertir skuld­ara náms­lána með allt öðrum hætti en lækkun á verð­tryggðum íbúða­lánum þar sem afborg­anir náms­lána eru að mestu háðar tekjum en ekki fjár­hæð skuldar. Lækkun á verð­tryggðum náms­lánum leiðir þannig ekki til lægri greiðslu­byrði fyrir lán­taka, heldur stytt­ist láns­tím­inn. Vaxandi fjöldi lán­þega sjóðs­ins nær ekki að greiða lán sín að fullu á ævinni og fyrir þá skiptir lækkun höf­uð­stóls litlu máli,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár