Haraldur segist hafa fengið grafalvarlega hótun frá ráðuneytisstjóra

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd Alþingis, segir að ráðu­neyt­is­stjóri fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, Guð­mundur Árnason, hafi við­haft grafal­var­lega hótun í garð sinn og ann­arra í sím­tali þeirra á milli síð­ast­liðið föstu­dags­kvöld. Hann seg­ist hafa sent Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra og yfir­manni Guð­mundar, form­legt kvört­un­ar­bréf vegna máls­ins.

Fyrr í dag var greint frá því að meiri­hluti fjár­laga­nefndar bók­aði það á fundi í morgun að „þing­menn innan stjórn­ar­meiri­hluta fjár­laga­nefndar hafa fengið beinar hót­anir um æru- og eigna­missi frá hátt­settum emb­ætt­is­manni eftir að skýrslan hafði verið kynnt.“ Eiga þeir þá við skýrsl­una sem kennd er við Vigdísi Hauks­dóttur, for­mann nefnd­ar­innar, og kall­ast Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari.

Guð­mundur greindi frá því sjálfur að hann teldi að þarna væri verið að tala um hann, og að hann hefði talað við Harald um málið. „Í því sam­tali tjáði ég honum þá skoðun mína og fleiri að ásak­anir í skýrslu sem að sögn nýtur stuðn­ings meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar, þar á meðal hans, feli í sér rætnar og alvar­legar ásak­anir á hendur þeim sem komu að samn­ingum milli gömlu og nýju bank­anna af hálfu rík­is­ins. Ég vildi ganga úr skugga um að hann átt­aði sig á alvar­leika slíkra ásak­ana og að við áskildum okkur rétt til að láta reyna á per­sónu­lega ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram fyrir dóm­stól­um, enda æra okkar og starfs­heiður að veð­i,“ sagði Guð­mundur.

Haraldur segir að „vegna alvar­leika sím­tals­ins hef ég leitað til umboðs­manns Alþingis eftir leið­bein­ingum, upp­lýst for­seta Alþingis um efni sím­tals­ins og sent fjár­mála­ráð­herra, yfir­manni ráðu­neyt­is­stjór­ans, form­legt kvört­un­ar­bréf.“

Í sím­tal­inu hafi Guð­mundur kraf­ist þess að Haraldur upp­lýsti um afstöðu sína til skýrsl­unnar. „Ég benti ráðu­neyt­is­stjór­anum á að nefndin ætti eftir að afgreiða málið og ég hefði ekki skrifað undir neinar ásak­anir, sem ráðu­neyt­is­stjór­inn taldi að fælust í áður­nefndri skýrslu.“ Haraldur segir að skila­boð ráðu­neyt­is­stjór­ans hafi verið skýr. „Ætlun hans um að draga til ábyrgðar þá þing­menn sem tækju þátt í afgreiðslu skýrsl­unnar var aug­ljós með beinni hótun um að þeir skyldu þola æru- og eigna­missi.“

Haraldur segir að sím­talið og sam­skipti Guð­mundar við sig sem alþing­is­mann og full­trúa í fjár­laga­nefnd hafi verið óvið­eig­andi og hótun í sinn garð og ann­arra grafal­var­leg.

Hann hafi því að ráð­legg­ingu umboðs­manns Alþingis sent form­legt kvört­un­ar­bréf til ráð­herra þar sem meðal ann­ars hafi sagt: „Ummæli ráðu­neyt­is­stjór­ans voru ósam­boðin stöðu hans og virð­ingu sem æðsta emb­ætt­is­manns fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Ég sé mig til­neyddan með bréfi þessu að leggja fram form­lega kvörtun yfir fram­komu ráðu­neyt­is­stjór­ans og jafn­framt að fara fram á að farið verði yfir mál hans og brugð­ist við eftir atvikum í sam­ræmi við rétt­indi hans og skyldur, sam­kvæmt við­eig­andi lögum.“

Á meðan málið sé til með­ferðar segir Haraldur ekki rétt að hann ræði það opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár