Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fær 517 milljónir til viðbótar

Iðnaðar- og við­skipta­ráðu­neytið benti á það í sept­em­ber að enn væru 1,2 millj­arðar króna ósóttar í sjóðnum.

Framlög rík­is­ins til Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða verða aukin um 517 millj­ónir króna, þrátt fyrir að 1,2 millj­arður króna hafi legið óhreyfður í sjóðnum í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Millj­ón­irnar bæt­ast við sjóð­inn í fjár­lögum næsta árs, sam­kvæmt til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar. Auk þess hefur 850 millj­ónum verið bætt inn í sjóð­inn sam­kvæmt frum­varpi til fjár­auka­laga fyrir árið sem er að líða.

Iðnaðar- og við­skipta­ráðu­neytið greindi frá því í sept­em­ber síð­ast­liðnum að við und­ir­bún­ing fjár­laga fyrir næsta ár hefði komið í ljós að „umtals­verðir fjár­munir“ eða 1,2 millj­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðnum. Þessum fjár­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­kvæmd.

Af þessum sökum var gert ráð fyrir 149 millj­óna króna fram­lagi til Fram­kvæmda­sjóðs ferða­manna­staða í fjár­laga­frum­varpi næsta árs, en ráðu­neytið sagði þá að ákvarð­anir um frek­ari fram­lög yrðu teknar við með­ferð fjár­laga­frum­varps­ins, þegar búið væri að greina stöð­una. Kjarninn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um þessa grein­ingu.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur nú til 517 millj­ónir til við­bótar, svo að sjóð­ur­inn fái sam­tals 666 millj­ónir króna á næsta ári.

850 milljónum bætt við í fjáraukalögum

Í fjár­lögum þessa árs var gert ráð fyrir 145,8 millj­óna króna fram­lagi í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. Þeirri upp­hæð mót­mælti stjórn­ar­and­staðan og sagði ljóst að upp­hæðin myndi ekki duga til og ljóst væri að bæta þyrfti við fjár­magni á fjár­auka­lögum.

Það hefur svo komið á dag­inn, en í frum­varpi til fjár­auka­laga fyrir árið í ár, sem er til með­ferðar á Alþingi nú, er lagt til að 850 millj­ónir króna til við­bótar verði settar í sjóð­inn. Auk þess bætt­ust 12,2 millj­ónir við í breyt­inga­til­lögu við aðra umræðu vegna þess að tekjur af gistin­átta­skatti voru meiri en áætlað var.

Þetta 850 millj­óna króna fram­lag var til­kynnt strax í vor, eftir að rík­is­stjórnin ákvað að setja aukið fé í sjóð­inn. Fjár­laga­nefnd var kynnt þetta í vor. Meiri­hluti nefnd­ar­innar segir að það sé verk­klag sem sé til fyr­ir­myndar, á meðan minni­hlut­inn gagn­rýnir þetta harð­lega. „Verið er að setja fjár­magn í verk­efni sem áttu að vera á fjár­lögum. Með því að setja það í fjár­auka­lög er verið að brjóta lög um fjár­reiður rík­is­ins enda ekk­ert ófyr­ir­séð eða óvænt á ferð. Það að fjár­mála­ráð­herra kynni áformin fyrir fjár­laga­nefnd breytir engu þar um,“ segir í nefnd­ar­á­liti minni­hluta nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár