ESB stofni sameiginlegan her gegn Rússum

Evrópa ætti að sam­eina hern­að­ar­lega krafta sína til að verja álf­una fyrir ágangi Rússa. Þetta leggur Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, til í við­tali við þýska blaðið Welt am Sonntag sem kom út í gær.

„Það mundi sýna Rússum að okkur sé alvara í verndun gilda Evr­ópu­sam­bands­ins,“ sagði Juncker meðal ann­ars í við­tal­inu. „Slíkur her [sam­ein­aður Evr­ópu­her] mundi hjálpa okkur að búa til sam­eig­in­lega utan­rík­is­stefnu og sam­þætta þjóð­varn­ar­á­ætlun, auk þess að takast sinna skyldum Evrópu í heim­inum.“

Juncker sagði NATO ein­fald­lega ekki duga því í varn­ar­banda­lag­inu væru ríki sem ekki væru í Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Sam­eig­in­legur Evr­ópu­her mundi senda mik­il­væg skila­boð til umheims­ins. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Reuters.

ESB býr þegar yfir sveitum sem hægt er að kalla út með skömmum fyr­ir­vara en slíkar sveitir hafa aldrei verið kall­aðar út í stríði eða átökum. Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sagst vilja auka hern­að­ar­lega mögu­leika sam­bands­ins en slíkt hefur mætt and­stöðu meðal Breta.

Bretar telja stærra hern­að­ar­hlut­verk ESB grafa undan NATO en Þjóð­verjar hafa þegar tekið undir hug­mynd Junckers. Ursula von der Leyen, varn­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands, sagði í við­tali við þýska útvarps­stöð að „fram­tíð okkar sem Evr­ópu­búa felur í sér að á ein­hverjum tíma­punkti verði Evr­ópu­her.“

Breski sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn (UKIP) hefur þegar sagt hug­myndir um Evr­ópu­her vera „hræði­legan fyrir Bretland.“ Mike Hookem, tals­maður UKIP í varn­ar­málum, hefur bent á Evruna sem dæmi: „Við höfum öll séð hversu illa ESB hefur klúðrað evru­hag­kerf­inu, svo hvernig getum við ímyndað okkur að treysta þeim fyrir vörnum Bret­lands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár